Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Er utanríkisstefna Bandaríkjanna 200 ára gömul?
Á bloggrúnti rakst ég á eftirfarandi stórmerkilegu fullyrðingu (hér):
"Utanríkisstefna Bandaríkjanna hefur í stórum dráttum ekki breyst mikið á síðustu 200 árum en það hefur heimurinn aftur á móti gert og með auknum viðskiptum landa í milli og tækniframförum, eru átök sem áður afmörkuðust við heimshluta byrjuð að hafa víðtæk áhrif um heim allan. "
Hið rétta er að utanríkisstefna Bandaríkjanna hefur umbreyst á seinustu 100 árum. Hún gerði það um það leyti sem fyrri heimsstyrjöldin skall á í Evrópu. Bandaríkjamenn deildu hart sín á milli um hvort þeir ættu að koma bandamönnum til liðs eða ekki - sem þeir gerðu svo á endanum. 30 árum eftir lok þeirrar heimsstyrjaldar skall á önnur í Evrópu. Aftur var deilt, en þegar Þjóðverjar sökktu bandarísku skemmtiferðaskipi var ekki aftur snúið og Bandaríkjamenn skelltu sér af fullum þunga í slaginn í Evrópu. Í kjölfar þeirrar heimsstyrjaldar kom Kalda stríðið og flestir þekkja framhaldið.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta sjálfur en bendi í staðinn á fróðlega ritröð byggða á bók sem fæstir þekkja til sem aftur veldur því að furðulegar fullyrðingar eins og sú hér að ofan vaða uppi gagnrýnislaust. Njótið vel!
The New Deal and the Emergence of the Old Right
The Postwar Renaissance I: Libertarianism
The Postwar Renaissance II: Politics and Foreign Policy
New Deal and Cold War: The Link of State Domination
National Review and the Triumph of the New Right
The Early 1960s: From Right to Left
The New Left Was Great (Before It Collapsed)
Í stuttu máli: Utanríkisstefna Bandaríkjanna hefur umbreyst frá því að vera afskiptaleysi og landvarnir í að vera fóstrustarfsemi fyrir hernaðarlega veikburða hluta hins kapítalíska heims, og rúmlega það!
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Áskorun: Hættu að bruðla með fé skattgreiðenda!
Ég stóðst ekki að skrifa örlitla áskorun á Ósýnilegu höndina, innblásin af athugasemdum við þar seinustu færslu mína á þessari síðu:
"Ég lýsi hér með eftir fordæmi frá þeim þing- og sveitarstjórnarmönnum sem tala í nafni takmarkaðs ríkisvalds og hóflegrar skattheimtu en eru jafnframt í lykilstöðu til að fleyta rjómann af tekjum landsmanna í eigin þágu ferðalaga og opinberra kokkteilboða (en gera það ekki)."
Fordæmið er sem sagt að segja nei við ríkis- og sveitarstjórnarstyrktum ferðalögum á tilgangslausar ráðstefnur og fundaraðir í útlöndum, sé trú stjórnmálamannsins í raun og veru sú að bruðl með fé skattgreiðenda sé hið versta mál.
Þriðjudagur, 29. janúar 2008
Mun ríkisvaldið sakna skatta á tekjur einstaklinga?
Eftirfarandi tafla er fengin af vef fjárlagafrumvarpsins 2008:
Tafla 1 | Rekstraryfirlit A-hluta | ||||
Rekstrargrunnur, m.kr. | Reikningur 2005 | Reikningur | Fjárlög | Áætlun | Frumvarp |
Skatttekjur | 335.322 | 377.386 | 343.223 | 404.764 | 422.266 |
Skattar á tekjur einstaklinga | 88.227 | 103.935 | 94.600 | 121.400 | 128.500 |
Samkvæmt þessari töflu gæti ríkisvaldið lagt niður alla skattheimtu á tekjur einstaklinga og eingöngu orðið af rúmum 40 milljörðum miðað við árið 2005 (sem er að stærðargráðu svipuð tala og tekjuafgangur ríkissjóðs í dag). Ekki tekið með í reikninginn eru gríðarlega jákvæð áhrif slíkrar breytingar á hagkerfið, og heldur ekki auknar tekjur af t.d. virðisaukaskatti auk þess sem fjármagnstekjuskattur mundi sennilega skila mun meira í ríkiskassann en nú er.
Mér finnst þetta vera magnað að sjá, og þá sérstaklega í ljósi nýgenginnar umræðu um einhverjar smábreytingar á persónuafslætti sem gagnast mjög fáum mjög takmarkað.
Takk fyrir ábendinguna Ingi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 29. janúar 2008
Einni snobb-sýndarleiks-ferðinni færra
Ólafur F. Magnússon virðist vera skynsamur maður. Hann hefur ákveðið að spara reykvískum útsvarsgreiðendum fyrsta farrýmis flugferð til Stokkhólms, auk dagpeninga í nokkra daga, á hitting þar sem borgarstjórar sýna sig og sjá aðra í sínu fínasta pússi, borga skattfjárgreiddan mat, drekka skattfjárgreitt áfengi og segja að lokum við blaðamenn að "mikill árangur" hafi náðst um "mikilvæg mál" sem á einhvern undraverðan hátt tengja íbúa norrænna höfuðborga saman en ekki íbúa annarra borga, smábæja og sveita á Norðurlöndum.
Hvað næst? Hluthafar Kaupþings að sætta sig við fyllerísferð forstjórans á ráðstefnu fyrirtækja á Norðurlöndum sem heita nafni sem byrjar á K?
Íslenskur pólitíkusar ættu að gera meira af því að segja nei við páfuglasýningum eins og þessari furðulegu "höfuðborgarráðstefnu". Hver einasti skreppingur af þessu tagi kostar líklega á stærðargráðunni 100-300 þúsund sem er hátt í mánaðarlaun hjá ákveðnum borgarstarfsmönnum. Miklu nær væri að hreinsa götur, passa börn eða kenna lestur í stað þess að senda íslenska pólitíkusa á fyllerí erlendis. Nú eða kannski lækka skatta sem nemur kostnaði við þetta bruðl! Já, jafnvel bara það!
Borgarstjóri ætlar ekki á höfuðborgarráðstefnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Kennarastéttin reynir að ná lögvarinni einokunarstöðu
Nú hélt ég að það væri erfitt að manna stöður í íslensku mennta- og barnapössunarkerfi. Erfitt að laða að fólk í stéttina. Erfitt að halda í gott fólk. Nei svo virðist ekki vera því Kennarasambandið óskar nú eftir enn einu pappírslagi á milli venjulegs fólks og hinna gríðarlega faglegu kennara! "Leyfisbréf" já? Ekki þurfti ég svoleiðis þegar ég kenndi í hlutastarfi við minn gamla menntaskóla á meðan ég var enn í grunnnámi í háskóla. Ég sá ekki að ég væri mikið skelfilegri kennari en þeir þaulreyndu og útúrsérmenntuðu, þótt auðvitað geri maður sín byrjendamistök.
Þessi eilífa krafa um fleiri pappíra og fleiri titla er ekki kennarastéttinni til bóta þegar kemur að ráðningum og að halda í fólk. Hún veit það líka. Þegar stéttafélag heimtar fleiri stimpla og leyfisbréf þá er það til að loka fyrir of mikla samkeppni við meðlimi sína. Ef stéttafélag fær ríkið til að samþykkja "ákveðin lágmarksskilyrði" (sem vitaskuld verða erfiðari og erfiðari á hverju ári) þá er hinum þrautþjálfuðu meðlimum stéttafélagsins tryggð ákveðin lögvarin einokunarstaða, og síðan hvenær hefur slíkt verið neytendum, notendum, kaupendum og nemendum til hagsbóta?
Kennarar fagna frumvarpi um kennaramenntun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Vinstrimenn sætta sig ekki við leikreglur lýðræðisins
Vinstrimenn eru engir unnendur lýðræðisins nema vitaskuld þegar þeir eru réttu megin við 50% línuna (með eða án samflots við miðjuflokka sem gjarnan vinna með bæði vinstri- og hægrimönnum, eins óþolandi og það er).
Á það hefur verið bent að ólætin sem bókstaflega trufluðu fund borgarstjórnar eru sennilega brot á íslenskum hegningarlögum. En það er víst fyrirgefið á meðan vinstrið fremur lögbrotin. Hegningarlögin eru jú bara fyrir kapóna eins og Árna Johnsen, ekki satt?
Á það hefur verið bent að skoðanakönnun Fréttablaðsins var furðulega nálægt atburðunum í ráðhúsinu til að vera hrein tilviljun (a.m.k. heilmikil tilviljun ef svo var). Var hún pöntuð?
Á það hefur verið bent að engin lögbrot eða brot á stjórnskipun borgarinnar hafa átt sér stað með myndun hins nýja meirihluta. Allt þetta endalausa hjal um "vilja borgarbúa" og "meirihluta kjósenda" má senda í ruslatunnuna. Kosningar fóru fram, flokkarnir fengu borgarfulltrúa í samræmi við úrslit þeirra í samræmi við gildandi reglur, og þeir einstaklingar sem náðu kjöri ræða sín á milli um samstarf og málefnasamning (að vísu vantaði fráfarandi meirihluta málefnasamning en sennilega er ástæðan sú að þeim vantaði lög og reglur til að skikka þeim að hafa einn slíkan).
Fólk fjölmennti í pallana og gerði aðhróp og truflaði fund borgarstjórnar. Einhvern tímann hefði það þótt vera ástæða til að ryðja pallana svo stjórnvaldið gæti sinnt sínum störfum. Bara ekki þegar vinstrimenn eiga í hlut. Þeir skilja jú ekki leikreglurnar, greyin.
Heldur einhver að Sjálfstæðismenn hafi verið ánægðir með valdataflið í Reykjavík í haust? Aldeilis ekki. Fjölmenntu þeir í pallana og kröfðust nýrra kosninga? Nei, því þeir skilja leikreglurnar, og að stundum þarf að sætta sig við að einhverjir skipta um skoðun, sem er jú ennþá löglegt á Íslandi (en ekki bara þegar það hentar vinstrinu).
Segja atburðina í Ráðhúsinu sögulega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 26. janúar 2008
Þessi samningur er óhagkvæmur fyrir Ísland
Um nýjan tvíhliða fríverslunarsamning EFTA og Kanada segir (feitletrun mín):
"Samningurinn er sagður vera hagstæður fyrir Ísland. Hann hafi í för með sér niðurfellingu tolla á öllum iðnaðarvörum og ýmsum öðrum vörum sem Ísland framleiðir og flytur út. Sem dæmi megi nefna sjávar- og landbúnaðarafurðir, útivistarfatnað, fiskikör og aðrar vörur úr plasti, vogir, vélar og tæki. Í staðinn veitir Ísland Kanada tollfrjálsan aðgang fyrir iðnaðarvörur og ákveðnar landbúnaðarvörur."
Ágiskun mín er sú að þessar "ákveðnu" landbúnaðarvörur séu allt nema kinda- og nautakjöt, mjólkurvörur af ýmsu tagi og grænmeti sem finnst í íslenskum gróðurhúsum. Mér þætti vænt um að fá það staðfest.
Því hefur oft verið haldið fram af unnendum ESB-báknsins að það veiti fátækum þróunarríkjum tollfrjálsan aðgang að markaði ESB með landbúnaðarvörur. Svo er ekki. Um er að ræða "ákveðnar" landbúnaðarvörur, þær sem standast "lágmarkskröfur" sem svo skemmtilega vill til að afrískir bændur uppfylla ekki nema að takmörkuðu leyti. Tæknilegar hindranir og sérklausur eru viðskiptahindranir 21. aldar nú þegar almenningur er loksins byrjaður að átta sig á skaðsemi tollamúra og beinna viðskiptahindrana (þá sérstaklega fyrir þá fátækustu).
Að Kanadabúar geti nú selt "ákveðnar landbúnaðarvörur" tollfrjálst á Íslandi þýðir á mannamáli að Kanadabúar geta ekki selt eitt né neitt tollfrjálst á Íslandi sem nú þegar er niðurgreitt og varið með öðru móti gegn erlendri samkeppni í íslenskum landbúnaði. Kanadískt kindakjöt, kanadískt smjör og kanadískt kál mun ekki veita tilsvarandi íslenskum vörum neina samkeppni með tilkomu hins nýja samnings. Vitið til!
Samningar undirritaðir í Sviss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 20. janúar 2008
Skólum vantar markaðseftirlit, ekki gæðaeftirlit
Þegar bent er á brotalamirnar í rekstri hins opinbera er "lausnin" sem bent er á oftar en ekki sú sama: Fleiri eyðublöð, fleiri ráðgjafa, fleiri titla, meira skrifræði.
Þegar brotalamirnar lagast ekki við það er enn og aftur stungið upp á sömu "úrræðunum": Fleiri eyðublöð, fleiri ráðgjafa, fleiri titla, meira skrifræði.
Menntakerfið er rekið á þeirri fádæma vitlausu hugmynd að það sem hið opinbera (skattgreiðendur) greiðir fyrir þarf hið opinbera einnig að reka. Stjórnmálamenn eru ekki að innheimta skatta til að greiða fyrir menntun barna. Nei, stjórnmálamenn eru að innheimta skatta og sólunda svo tíma sínum í bein afskipti af einhverju sem þeir eru ekki neitt sérstaklega góðir í, sem er daglegur rekstur og yfirumsjón með stórum og fjölmennum vinnustöðum með margbrotinn viðskiptavinahóp (börn á skólaaldri og foreldrar þeirra).
Með einu pennastriki væri hægt að breyta hinu íslenska grunnskólakerfi (og skólakerfinu öllu ef út í það er farið) þannig að fé fylgir barni, og að sá skóli sem menntar barnið fær peninginn en sá skóli sem missir barn af skólabekk hjá sér situr uppi með sárt ennið. Þar með væri markaðsaðhald innleitt, og því fylgir í fæstum tilvikum stærri og stærri bunki eyðublaða og verkferla sem ekki bæta eitt né neitt eða laga!
Mikilvægt að auka gæðaeftirlit í skólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 16. janúar 2008
Víðtækar afleiðingar (núverandi, staðnaðrar) hlýnunar Jarðar!
Heimild. Sumir tenglar virka e.t.v. ekki lengur.
Acne, agricultural land increase, Africa devastated, African aid threatened, Africa hit hardest, air pressure changes, Alaska reshaped, allergies increase, Alps melting, Amazon a desert, American dream end, amphibians breeding earlier (or not), ancient forests dramatically changed, animals head for the hills, Antarctic grass flourishes, Antarctic ice grows, Antarctic ice shrinks, anxiety, algal blooms, archaeological sites threatened, Arctic bogs melt, Arctic in bloom, Arctic ice free, Arctic lakes disappear, asthma, Atlantic less salty, Atlantic more salty, atmospheric defiance, atmospheric circulation modified, attack of the killer jellyfish, avalanches reduced, avalanches increased, Baghdad snow, bananas destroyed, bananas grow, beetle infestation, bet for $10,000, better beer, big melt faster, billion dollar research projects, billions face risk, billions of deaths, bird distributions change, bird visitors drop, birds return early, birds driven north, blackbirds stop singing, blizzards, blue mussels return, bluetongue, boredom, bridge collapse (Minneapolis), Britain Siberian, British gardens change, brothels struggle, bubonic plague, budget increases, Buddhist temple threatened, building collapse, building season extension, bushfires, business opportunities, business risks, butterflies move north, camel deaths, cancer deaths in England, cardiac arrest, caterpillar biomass shift, cave paintings threatened, challenges and opportunities, childhood insomnia, Cholera, circumcision in decline, cirrus disappearance, civil unrest, cloud increase, cloud stripping, cockroach migration, cod go south, cold climate creatures survive, cold spells (Australia), computer models, conferences, coral bleaching, coral reefs dying, coral reefs grow, coral reefs shrink , cold spells, cost of trillions, cougar attacks, cremation to end, crime increase, crocodile sex, crumbling roads, buildings and sewage systems, cyclones (Australia), damages equivalent to $200 billion, Darfur, Dartford Warbler plague, death rate increase (US), Dengue hemorrhagic fever, dermatitis, desert advance, desert life threatened, desert retreat, destruction of the environment, diarrhoea, disappearance of coastal cities, diseases move north, Dolomites collapse, drought, drowning people, ducks and geese decline, dust bowl in the corn belt, early marriages, early spring, earlier pollen season, Earth biodiversity crisis, Earth dying, Earth even hotter, Earth light dimming, Earth lopsided, Earth melting, Earth morbid fever, Earth on fast track, Earth past point of no return, Earth slowing down, Earth spinning out of control, Earth spins faster, Earth to explode, earth upside down, Earth wobbling, earthquakes, El Niño intensification, end of the world as we know it, erosion, emerging infections, encephalitis, equality threatened, Europe simultaneously baking and freezing, evolution accelerating, expansion of university climate groups, extinctions (human, civilisation, logic, Inuit, smallest butterfly, cod, ladybirds, bats, pandas, pikas, polar bears, pigmy possums, gorillas, koalas, walrus, whales, frogs, toads, turtles, orang-utan, elephants, tigers, plants, salmon, trout, wild flowers, woodlice, penguins, a million species, half of all animal and plant species, mountain species, not polar bears, barrier reef, leaches), experts muzzled, extreme changes to California, fading fall foliage, famine, farmers go under, fashion disaster, fever,figurehead sacked, fir cone bonanza, fish catches drop, fish downsize, fish catches rise, fish stocks at risk, fish stocks decline, five million illnesses, flesh eating disease, flood patterns change, floods, floods of beaches and cities, Florida economic decline, flowers in peril, food poisoning, food prices rise, food prices soar, food security threat (SA), footpath erosion, forest decline, forest expansion, frostbite, frosts, fungi fruitful, fungi invasion, games change, Garden of Eden wilts, genetic diversity decline, gene pools slashed, giant squid migrate, gingerbread houses collapse, glacial earthquakes, glacial retreat, glacial growth, glacier wrapped, global cooling, global dimming, glowing clouds, god melts, golf Masters wrecked, Gore omnipresence, grandstanding, grasslands wetter, Great Barrier Reef 95% dead, Great Lakes drop, greening of the North, Grey whales lose weight, Gulf Stream failure, habitat loss, Hantavirus pulmonary syndrome, harvest increase, harvest shrinkage, hay fever epidemic, hazardous waste sites breached, health of children harmed, heart disease, heart attacks and strokes (Australia), heat waves, hibernation ends too soon, hibernation ends too late, homeless 50 million, hornets, high court debates, human development faces unprecedented reversal, human fertility reduced, human health improvement, human health risk, human race oblivion, hurricanes, hurricane reduction, hydropower problems, hyperthermia deaths, ice sheet growth, ice sheet shrinkage, illness and death, inclement weather, infrastructure failure (Canada), Inuit displacement, Inuit poisoned, Inuit suing, industry threatened, infectious diseases, inflation in China, insurance premium rises, invasion of cats, invasion of herons, invasion of midges, island disappears, islands sinking, itchier poison ivy, jellyfish explosion, Kew Gardens taxed, kitten boom, krill decline, lake and stream productivity decline, lake shrinking and growing, landslides, landslides of ice at 140 mph, lawsuits increase, lawsuit successful, lawyers' income increased (surprise surprise!), lightning related insurance claims, little response in the atmosphere, lush growth in rain forests, Lyme disease, Malaria, malnutrition, mammoth dung melt, Maple syrup shortage, marine diseases, marine food chain decimated, marine dead zone, Meaching (end of the world), megacryometeors, Melanoma, methane emissions from plants, methane burps, melting permafrost, Middle Kingdom convulses, migration, migration difficult (birds), microbes to decompose soil carbon more rapidly, monkeys on the move, Mont Blanc grows, monuments imperiled, more bad air days, more research needed, mortality increased, mountain (Everest) shrinking, mountains break up, mountains taller, mortality lower, mudslides, National security implications, natural disasters quadruple, new islands, next ice age, Nile delta damaged, noctilucent clouds, no effect in India, Northwest Passage opened, nuclear plants bloom, oaks dying, oaks move north, oblivion, ocean acidification, ocean waves speed up, opera house to be destroyed, outdoor hockey threatened, oyster diseases, ozone loss, ozone repair slowed, ozone rise, Pacific dead zone, personal carbon rationing, pest outbreaks, pests increase, phenology shifts, plankton blooms, plankton destabilised, plankton loss, plant viruses, plants march north, polar bears aggressive, polar bears cannibalistic, polar bears drowning, polar bears starve, polar tours scrapped, porpoise astray, profits collapse, psychosocial disturbances, puffin decline, railroad tracks deformed, rainfall increase, rainfall reduction, rape wave, refugees, reindeer larger, release of ancient frozen viruses, resorts disappear, rice threatened, rice yields crash, riches, rift on Capitol Hill, rioting and nuclear war, rivers dry up, river flow impacted, rivers raised, roads wear out, rockfalls, rocky peaks crack apart, roof of the world a desert, rooftop bars, Ross river disease, ruins ruined, salinity reduction, salinity increase, Salmonella, salmon stronger, satellites accelerate, school closures, sea level rise, sea level rise faster, seals mating more, sewer bills rise, severe thunderstorms, sex change, sharks booming, sharks moving north, sheep shrink, shop closures, shrimp sex problems, shrinking ponds, shrinking shrine, ski resorts threatened, slow death, smaller brains, smog, snowfall increase, snowfall heavy, snowfall reduction, soaring food prices, societal collapse, songbirds change eating habits, sour grapes, space problem, spiders invade Scotland, squid population explosion, squirrels reproduce earlier, spectacular orchids, storms wetter, stormwater drains stressed, street crime to increase, suicide, Tabasco tragedy, taxes, tectonic plate movement, teenage drinking, terrorism, threat to peace, ticks move northward (Sweden), tides rise, tourism increase, trade barriers, trade winds weakened, tree beetle attacks, tree foliage increase (UK), tree growth slowed, trees could return to Antarctic, trees in trouble, trees less colourful, trees more colourful, trees lush, tropics expansion, tropopause raised, tsunamis, turtles crash, turtles lay earlier, UK Katrina, Vampire moths, Venice flooded, volcanic eruptions, walrus displaced, walrus pups orphaned, walrus stampede, war, wars over water, wars sparked, wars threaten billions, water bills double, water supply unreliability, water scarcity (20% of increase), water stress, weather out of its mind, weather patterns awry, weeds, Western aid cancelled out, West Nile fever, whales move north, wheat yields crushed in Australia, white Christmas dream ends, wildfires, wind shift, wind reduced, wine - harm to Australian industry, wine industry damage (California), wine industry disaster (US), wine - more English, wine -German boon, wine - no more French , winters in Britain colder, wolves eat more moose, wolves eat less, workers laid off, World bankruptcy, World in crisis, World in flames, Yellow fever
Þriðjudagur, 15. janúar 2008
Blása heitu lofti til að mótmæla hlýnun
"Breytendur", mótmælasamtök gegn síbreytilegu loftslagi Jarðar, blása nú heitu lofti til að mótmæla hitabreytingum andrúmsloftsins seinustu tvo áratugi (sem eru sennilega staðnaðar núna og jafnvel að hefja niðursveiflu aftur). Athyglisvert áhugamál sem vissulega náði takmarki sínu: Að komast í fréttir.
Þeir eru til sem trúa því að CO2 sameindin (undir 0,04% andrúmsloftsins, uppbyggingarefni líkama okkar, hráefni plöntuvaxtar og afurð eldfjalla) sé drifkraftur loftslagsbreytinga. Gott og vel, gefum okkur að það sé satt (þótt flestar vísbendingar bendi í hina áttina). Spurningin sem þá vaknar er: Hvað með það?
Ég held að menn geri sér ekki grein fyrir afleiðingum þess að siga ríkisvaldinu á CO2-losandi iðju mannkyns. Sem stendur er brennsla jarðaefnaeldsneytis okkar langmikilvægasta uppspretta orku, og þeim mun mikilvægari eftir því sem fólk er fátækara (sólar- og vindorka er snobborka ríkra Vesturlandabúa og stórkostlega niðurgreidd; kjarnorka krefst gríðarlegrar tækniþekkingar; fallvötn finnast ekki nema á tiltölulega fáum blettum á Jörðinni; hin illa lyktandi gufuorka liggur víðast hvar djúpt og dýrt í jörðu niðri). Hvað yrði um núverandi útbreiðslu batnandi lífskjara á Jörðinni ef tappinn er settur á aukna nýtingu og notkun jarðefnaeldsneytis? Hvernig eiga fátæklingar í olíu- og kolaríkum löndum að lyfta sér upp á okkar snobbaða lífskjarastig án hagkvæmrar orkuuppsprettu?
Þessi barátta gegn hagkvæmustu orkugjöfum Jarðar er ekki alveg hugsuð til enda. Ef "hættan" er sú að einhver öfgaveðurbrigði magnist þá er mun léttara fyrir ríkt og mett fólk að byggja flóðgarða og steinsteypt hús en sveltandi fátæklinga. Ef "hættan" er sú að yfirborð sjávar er að hækka er mun auðveldara fyrir ríkt fólk að aðlagast lífinu á hærri jörð en fátæklinga sem lifa á núinu á nákvæmlega þeirri landspildu sem þeir búa á núna.
Niðurstaðan er því sú að gefið (en ekki sannað) að CO2-sameindin sé nú allt í einu orðin að afkvæmi djöfulsins þá er lausnin ekki sú að hatast við hana heldur gera fólki kleift að auðgast nægilega mikið (frjáls markaður, einhver!) til að lágmarka illmennsku hennar og neikvæð áhrif á líf og lífskjör.
Mótmæltu hlýnun jarðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)