Miðvikudagur, 14. október 2020
Hlustum á vísindin!
Danskir vísindamenn hafa nú komist að því að fólk í blóðflokknum O er síður í smithættu vegna COVID-19 en annað fólk.
Ég bíð nú spenntur eftir því að "hlustum á vísindin"-fólkið krefjist þess umsvifalaust að þessari uppgötvun verði rúllað út í íslensk sóttvarnarlög, og að O-fólk fái á ný að endurheimta lífið sem yfirvöld hafa tekið af þeim.
Og um leið allir aðrir, nema þeir sem þurfa á sérstakri vernd að halda, því sóttvarnaraðgerðir eru hættulegri en veiran.
Miðvikudagur, 14. október 2020
Fólk að berjast fyrir lífi sínu
Lögreglan þurfti að dreifa stórum hópi fólks í Liverpool í gærkvöldi en fólkið hafði hópast saman á torgi í miðborginni nokkrum klukkustundum áður en hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins tóku gildi.
Myndskeið af þessu má m.a. sjá hér.
Og hvað sýnir þetta myndskeið? Jú, fólk að berjast fyrir lífi sínu og gegn tilraunum yfirvalda til að eyðileggja líf þess.
Það er einfaldlega svo að mjög harðar sóttvarnaraðgerðir eru miklu frekar að eyðileggja líf en bjarga lífum. 25% atvinnuleysi á Suðurnesjum fyrir jól, einhver? Þetta er mannskemmandi, niðurdrepandi og bæði andlega og líkamlega stórhættulegt ástand fyrir fólk. Og má skrifa á sóttvarnaraðgerðir. Þannig er það.
Ég býst við miklu fleiri átökum milli óbreytts almennings og yfirvalda vegna hinna svokölluðu sóttvarnaraðgerða, og ekki bara í Englandi heldur mun víðar.
Ríkið gegn almenning.
Yfirvöld gegn óbreyttum borgurum.
Elítan í öruggu störfunum gegn atvinnulausum.
Stjórnmálamenn gegn starfandi fólki.
![]() |
Hópuðust saman í Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. október 2020
Edward Snowden varar okkur við - aftur
Fyrir þá sem hafa áhuga á einkalífi, dulkóðun og opinberu eftirliti mæli ég með litlu 2,5 klst viðtali Joe Rogan við Edward Snowden, hér. Þar ræðir hann meðal annars um baráttu bandaríska alríkisins gegn dulkóðun á rafrænum samskiptum.
![]() |
Raunveruleg dulkóðun heyri sögunni til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. október 2020
Jólagjöfin í ár (í eintölu)
Í ljósi þess að yfirvöld eru að fletja út veiru, hagkerfi og samfélag blasir við að jólahaldið verður mörgum mjög erfitt í ár, jafnvel óbærilegt. Jól á bótum, atvinnuleysi, félagsleg einangrun og ekkert framundan. Skelfilegt, satt að segja.
Ég er því með hugmynd sem ég hef þannig séð ætlað mér að stinga upp á við mitt fólk (og hef lengi langað til):
Að fólk lýsi því yfir að það vilji bara eina jólagjöf. Og að hún sé þá eitthvað almennilegt.
Ef þú ert vanur eða vön að fá gjafir frá þremur einstaklingum, eða tíu, eða hvað það nú er, þá segir þú einfaldlega við þetta fólk: Þetta er gjöfin sem ég vil, eða þetta er óskalisti minn þar sem má bara velja einn hlut, og það verður þessi aðili sem kaupir gjöfina og pakkar inn fyrir mig, svo einföld millifærsla - frjálst framlag - á viðkomandi, og gleðileg jól.
Kannski einhver forritari geti búið til lítið app sem miðlar málum? Svona eins og "box"-lausn MobilePay í Danmörku?
Viljir þú enga hluti þá er auðvitað hægt að setja framlögin í eitthvað annað, svo sem góðgerðarmál. Nú eða bara að afþakka gjafir með öllu. Vantar þig eitthvað hvort eð er? Enn einn blómavasann, kannski? Eða ný heyrnatól í ræktina sem er búið að knésetja með sóttvarnaraðgerðum? Kannski ekki.
Ég er jafnvel á því að börn muni taka þátt í svona löguðu þótt auðvitað sé gaman að fá marga pakka. Betra er eitt gott reiðhjól eða voldugur fjarstýrður bíll en mýgrútur af ódýrum og eitruðum plastleikföngum.
Er þetta eitthvað sem gæti gert lífið léttara og um leið tryggt gleðileg jól án fjárútláta í allskonar húfur og hanska og plastglingur sem enda ofan í skúffu á jóladag?
Þriðjudagur, 13. október 2020
Réttur hvers til lífs?
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir mikilvægt að átta sig á muninum á tilmælum og reglum sem stjórnvöld gefa út í sambandi við kórónuveirufaraldurinn. Réttur fólks til lífs trompi ýmis önnur réttindi.
Hvaða fólks?
Hvaða líf?
Ég spyr ekki í kaldhæðni því þetta skiptir máli. Sóttvarnaraðgerðir eru að hafa neikvæð áhrif á líf margs fólks. Í versta falli leiða þær til sjálfsmorða, en tíðni þeirra er nú á rjúkandi uppleið og enn er svartasta skammdegið framundan með auknu atvinnuleysi og jólahaldi á bótum.
Yfirvöld treysta sér greinilega ekki í einfaldar aðgerðir til að verja þá veikustu og leyfa öðrum að halda áfram með líf sín. Já, líf sín!
Lífum unga fólksins er fórnað, að ástæðulausu. Og til að gera illt verra þá segir unga fólkið ekkert. Því er heldur ekki boðið í viðtöl. Það er bara látið sigla sinn sjó: Falla úr námi, renna á atvinnuleysisskrá og sagt að láta félagslíf eiga sig. Allt sem gefur lífinu gildi. Lífinu, sem forsætisráðherra segir að eigi að trompa réttindi. Er þá sennilega búið að fórna bæði lífum og réttindum, sem og framtíðinni, og þá er fátt eftir.
Er það þetta tromp sem forsætisráðherra er að tala um? Að hún geti trompað líf annarra? Að veira, sem leggst frekar vægt á langflesta, trompi menntun, andlega heilsu og framtíð almennings? Að yfirvöld trompi þegna sína?
Sóttvarnir eru vissulega mikilvægar en þegar þær eru orðnar að hamri, og eina verkfærið í verkfæratöskunni, þá lítur allt annað út eins og nagli.
![]() |
Réttur til lífs og heilsu trompi önnur réttindi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 12. október 2020
Tvær mjólkurfernur og þögn unga fólksins
Maður nokkur opnaði ísskápinn sinn og leit þar inn. Hann sá tvær mjólkurfernur. Önnur var ný og dagsetningin á henni var viku fram í tímann. Hin var gömul og mjólkin þar nálægt því að renna út.
Maðurinn tók nýrri fernuna og henti henni í ruslið. Það varð jú að tryggja næga kælingu fyrir eldri fernuna.
Hann hefði að vísu ekki þurft að henda nýrri fernunni. Hann gat haldið báðum og notið þeirra beggja.
Þetta gera yfirvöld núna: Æsku unga fólksins er fórnað - henni hent í ruslið að ástæðulausu til að verja þá sem eldri eru. Þó mætti alveg tryggja bæði þeim yngri og eldri stað í samfélaginu sem er þeim ekki óbærilegur. Það er hægt að verja þá eldri án þess að fleygja þeim yngri í ruslið. Hugtakið kallast "focused protection" og er útskýrt hérna.
Ungt fólk er alls ekki nógu duglegt að láta heyra í sér. Það er stórfurðulegt. Ég fékk eftirfarandi skeyti frá aðila sem bað um nafnleynd:
Hvers þurfa félagslyndir að gjalda?
Undirritaður hefur nýhafið nám við Háskóla Íslands og líkar ágætlega. Þrátt fyrir að sitja inn í herbergi allan sólarhringinn, þekkja engan sem er með mér í námi og hafa varla farið út úr húsi í rúmar 6 vikur þá má hafa gaman af þessu.
Námið einkennist af Zoom-tímum, kennurum sem kunna ekki á tæknina, festast á stærðfræðidæmum sem enginn getur hjálpað með og algjöran skort á almennu félagslyndi. Nokkrir hittingar voru í byrjun en lokað var fyrir það fyrir rúmum 3-4 vikum og síðan þá þá hefur lítið verið um félagsskap.
Háskóli er tvíþættur, leik og starf, yin og yang. Einn helmingurinn virkar ekki án hins. Sem af er komið af önn hafa 10 manns skráð sig úr námi og eftir standa 36. Þetta endar eins og fræga barnabókin og verður kallað "Tíu litlir verkfræðinemendur". Ég hef aldrei hitt neinn af kennurum mínum og myndi ekki kannast við þá út á götu, ég hef aldrei talað við langflesta af þessum 36 sem eru eftir í náminu og sem yfirlýstur félags- og partýpinni þá fellur það hart.
Ungt fólk hefur litlar sem engar líkur á að deyja úr Covid, helst er það gamla fólkið. Þó falla aðgerðirnar hvað þyngst á unga fólkið. Við getum ekki farið í ræktina og pottinn, kíkt í partí, farið niðrí bæ eða talað við kennarana.
Mín tillaga er að herða vel á aðgerðum fyrir viðkvæma hópa og leyfa unga fólkinu að spreyta sig á því að byrja í háskóla.
Farvel!
En enginn segir neitt, ekki einu sinni svokallað Stúdentaráð Háskóla Íslands sem ætti að vera fremst í flokki að mótmæla hertum aðgerðum. Samtök framhaldsskólanemenda bjóða ekki upp á annað en óskalista um fleiri fjarfundarbúnaði í stað þess að benda á að aðgerðir eru hreinlega að sópa krökkum úr skólum og út á götu, og þaðan af verra.
Hættum að henda fólki í ruslið, takk!
![]() |
Skylda nemendur til að mæta á prófstað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 10. október 2020
Lærðu menn ekkert í vor?
Hjá Landspítalanum berast nú ógnvekjandi tölur. Að vísu eru þær allar í formi spádóma en nógu sláandi til að fylla stóra frétt.
Miðað við spár Landspítalans virðist staðan vera sú að menn hafi ekkert lært undanfarna mánuði.
Til dæmis hefur lengi blasað við að spítalar hýsa aldraða einstaklinga sem eiga miklu frekar heima á hjúkrunarheimilum. Þau heimili hafa ekki verið byggð nógu hratt og enginn kemst því neitt.
Einnig hefur nú komið í ljós að ungt fólk tekur COVID-19 veirunni tiltölulega létt og að það eigi að verja aldraða og aðra veikburða fyrir þessari veiru og öðrum. Engu að síður búast menn við miklu álagi. Það er sem sagt búið að gera ráð fyrir að þeir sem eru veikastir fyrir veirunni fái framan í sig hósta og hnerra COVID-19 smitaðra eins og enginn sé morgundagurinn og raðist í spítalarúmin á færibandi.
Landspítalinn segist geta teygt sig lengra en svartsýnustu spár gera ráð fyrir en samt er lýst yfir áhyggjum og um leið vita menn að svartsýnustu spár hafa aldrei ræst - ekki einu sinni nálægt því.
Ekkert er minnst á aðra kvilla eða sjúkdóma. Dánartíðni vegna þeirra er ekki í sviðsljósinu. Deyi sykursjúkur hjartasjúklingur þá rýkur hann sennilega beint í COVID-19 tölfræðina þótt sú veira hafi bara verið punkturinn yfir i-ið. Þannig má halda uppi óverðskulduðu orðspori fyrir veiruna sem stórhættulegur fjöldamorðingi.
Að þessu sögðu blasir við að menn virðast ekki hafa lært neitt seinustu mánuði og allt skal sett í sömu spennitreyju og í febrúar þegar menn vissu lítið og allir voru sammála um að vera á varðbergi.
![]() |
Þriðja bylgja meiri áskorun en sú fyrsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 10. október 2020
Hvernig kemst ég í nefnd?
Ég hef áður auglýst eftir upplýsingum um hvernig maður kemst í opinbera nefnd en endurtek nú þá auglýsingu. Þetta er örugglega mjög gaman, sérstaklega þegar efnið er háfleygt og á vangaveltustigi. Það má hæglega fylla margar blaðsíður með slíkan efnivið.
Mér til ágætis get ég nefnt að margir vinir og vinnufélagar nota mig eins og nokkurs konar uppflettirit. Einu sinni spurði mig vinnufélagi af hverju hann fengi alltaf hausverk eftir hádegi. Ég lagaði það vandamál með því að benda honum á að drekka meira vatn. Annar spurði mig um þróun vetnistækninnar í Evrópu, sem eins konar valkost við olíu og gas. Ég gat þulið upp mörg sjónarhorn á því efni og hjálpað viðkomandi að mynda sér skoðun. Við yfirmenn hef ég talað um persónuleikagreiningar sálfræðinga og hvernig þær geta hjálpað mönnum í þeirra stöðu að velja heppileg verkefni fyrir undirsáta sína.
Það yrði því mikill fengur að því að fá mig í nefnd og væri fínt að fá svolítinn aur í vasann fyrir það sem ég geri hvort eð er: Les allskonar um allskonar.
Veljið mig!
![]() |
Nefnd um gervigreind sett á fót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. október 2020
Óeining er uppspretta heiðarlegrar umræðu
Óeining er innan þingmeirihlutans um sóttvarnaaðgerðir heilbrigðisráðherra, ekki síst í kjölfar síðustu auglýsinga ráðherrans um og eftir helgina. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins.
Loksins!
Loksins kom fram fyrsta vísbending þess efnis að íslensk stjórnvöld ætli ekki eingöngu að hugsa um sóttvarnir heldur líka allskonar annað: Atvinnu, verðmætasköpun, frelsi, sjálfsmorð, dauðsföll af öðrum orsökum en veiru, misnotkun vímuefna, dapra framtíðarsýn atvinnulausra og mikilvægi þess að yfirvöld taki ábyrgð á öllum málaflokkum sínum og rekstrareiningum, ekki bara veirudeild spítalanna.
Það vantar tvímælalaust jafnvægi í umræðuna. Kannski er til auðveld leið til að bæta úr því. Nú eru daglegar uppfærslur á fjölda COVID-19 smitaðra og ýmislegt því tengt (fjöldi sýna, smita, innlagna á spítala, smita frá upphafi og hvaðeina). Kannski aðrar stofnanir ættu að gera hið sama? Vogur gæti birt fjölda innlagna hjá sér. Símaþjónustur fyrir þá í sjálfsmorðshugleiðingum birta fjölda símtala sem þeim berast. ÁTVR birtir sölutölur og setur í samhengi við aðgerðir yfirvalda. Krufningadeildir birta jafnóðum dánarorsakir þeirra sem koma á þeirra borð. Landlæknir uppfærir daglega skrá sína yfir dánarorsakir. Vinnumálastofnun heldur úti tölfræðibirtingum sem sýna jafnóðum hvað margir eru að raðast á atvinnuleysisskrá. Menntamálayfirvöld birti jafnóðum tölur yfir brottfall úr framhalds- og háskólum.
Þannig fæst kannski samhengið sem margir þurfa svo mjög á að halda. Og þá eykst kannski sú óeining sem er orðin svo nauðsynleg innan ríkisstjórnarinnar.
![]() |
Þrír ráðherrar í hópi efasemdamanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 7. október 2020
Tvöföld skimun við landamærin hefur tryggt eðlilegt líf á Íslandi. Ekki
Þann 14. ágúst í ár var tekin upp tvöföld skimun við landamærin og ferðalöngum gert að vera í stofufangelsi í 5 daga á milli skimana. Söluræða yfirvalda var einföld, og ágætlega rifjuð upp af Vefþjóðviljanum. Með orðum forsætisráðherra:
Með þessu er talið að dregið verði úr líkum á því að frekari raskanir verði á daglegu lífi landsmanna vegna sóttvarnaraðgerða innanlands.
Með öðrum orðum: Kæru Íslendingar, við látum ferðaþjónustuna róa sinn sjó. Það er lítil fórn fyrir að endurheimta eðlilegt samfélag þar sem allt er opið, fólk fær að umgangast aðra og allir komast í klippingu.
Raunin varð allt, allt önnur og söluræðan varð að verðlausum pappír. Hin tvöfalda skimun þurrkaði upp seinustu dreggjar ferðamannastraumsins og fjöldi fyrirtækja búinn að segja upp starfsfólki. Margir sjá fram á að halda upp á jólin með atvinnuleysisbótum. Senn bætist hárgreiðslufólkið við og fjölmargar aðrar stéttir.
Lokun landamæranna skilaði engu. Nákvæmlega engu.
Í stað þess að draga í land halda yfirvöld bara áfram. Í upphafi var ákveðinn skilningur á vegferð yfirvalda en núna er að myndast sterk undiralda óánægju og jafnvel mótmæla. En enn skal haldið áfram á sömu vegferð. Skerum af fótinn til að laga sýkingu í tánögl. Hálshöggvum til að koma í veg fyrir hausverk. Drepum ferðaþjónustuna til að bjarga hárgreiðslufólkinu, og drepum svo hárgreiðslufólkið til að bjarga skólabörnunum, en sendum þau svo heim til að hlífa kennurunum, og svona rúllar boltinn þar til engin brekka er eftir og allt liggur í auðn.
Einhver ráðherrann í ríkisstjórn þarf að fara berja í borðið og krefjast nýrrar nálgunar. Berja fast.
![]() |
Hárgreiðslustofur loka og grímuskylda í verslunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |