Á að banna sölu flugelda til almennings?

"Það eitt kemur í veg fyrir bann við flugeldasölu til almennings á Íslandi að nákvæmlega núna er tíðarandinn því óvilhollur. Hver veit hvað gerist ef hann sveigist í aðra átt, þótt ekki sé nema tímabundið?"

Meira hér.

Forræðishyggjan er ekki hætt þótt reykbann sé nú á skemmtistöðum! Vittu til - raddir flugeldasölubanns munu berast til Íslands fyrr en síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Þó að ég kaupi ekki flugelda sjálfur (læt nægja að kaupa stjörnuljós fyrir börnin), þá finnst mér þeir gersamlega ómissandi. Það eru engin áramót nema að óskipulagðar sprengingar og læti berist um allan bæ. Engin opinber flugeldasýning gæti komið í staðinn. Það er svo skemmtilegt þegar fólkið fær að gera þetta sjálft.

Sindri Guðjónsson, 3.1.2008 kl. 22:40

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Já veistu, hjartanlega sammála. Svo eru til nokkrir vinklar málinu sem eru aldrei nefndir (enda misfjarstæðukenndir), t.d.

  • Hvað ætli mörg mannslíf muni tapast ef björgunarsveitin verður að fjársveltri og getulausri ríkisstofnun í ætt við lögregluna og heilbrigðiskerfið? Er hægt að vega þau töpuðu mannslíf upp á móti hinum tiltölulega fáu augnslysum vegna áramótaflugeldanna?
  • Hvernig ætli slysatíðnin þróist þegar flugeldar verða að hreinni svartamarkaðs- og smyglvöru sem eingöngu þeir ósvífnustu munu þora nálgast?
  • Ferðamannastraumurinn sem liggur til Íslands vegna hinnar óskipulögðu flugeldasýningar skilar milljónum í ríkiskassann sem eflaust komast langt með að dekka hinn litla slysakostnað vegna slysa tengdum löglegri flugeldanotkun. Ef svarti markaðurinn tekur við flugeldasölunni og ferðamennirnir hætta að koma, hvernig lítur reikningsdæmið þá út?

Punktur minn er þessi: Enginn getur séð fram í tímann og vitað hvað gerist ef hið frjálsa framtak hinnar sjálfssprottnu áramótahefðar Íslendinga - uppskot flugelda - lendir á bannlistanum. Enginn!

Nú fyrir utan að slík forræðishyggja er ekki réttlætanleg nema stjórnmálamenn beinlínis viðurkenni að á Íslandi er rekið fóstruríki (sem þarf þá að réttlæta sjálfstætt).

Geir Ágústsson, 3.1.2008 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband