Um banvæn áhrif þess að sækja messu: Engin

Smit, undanfarna mánuði:

ice-smit

Dauðsföll sem yfirvöld rekja til COVID-19 (sem í sjálfu sér er vafasöm tölfræði, enda aðallega háaldraðir einstaklingar að deyja úr "einhverju"):

ice-deaths

Tilvitnunin á myndinni er auðvitað í málpípu úlfur-úlfur kórsins.

Spurningin er bara: Hvenær sér fólk í gegnum úlfur-úlfur gólin?

Jólahaldið hafði nákvæmlega engin áhrif á smit og hvað þá dauðsföll. Engin! Ekki einu sinni sölusýningin sem fjármálaráðherra sótti sést á neinu línuriti og þar var fólk víst að knúsast og kyssast í tugatali.

Og hvað með gjörgæsluna? Hér er svarið:

ice-icu

Það er hávetur á norðurhveli Jarðar og veikburða einstaklingar eru að deyja úr allskonar veirum og meinum, jafnvel kulda og undir það seinasta lífsleiða og einmanaleika.

Í mörgu ríkjum þar sem er nú verið að þjarma allverulega að almenningi, atvinnulífi, samfélagi, félagslífi, menntun, félagslegum þroska, frumkvöðlum og foreldrum er hreinlega engin röksemd fyrir svokölluðum aðgerðum, önnur en sú að fækka smitum, sem er auðvitað bara önnur leið til að orða frestun smita. 

Þeir sem geta og vilja mega auðvitað bíða eftir sprautunni. Ég ber fulla virðingu fyrir því. Ef þú getur unnið heima eða ert á öruggri framfærslu og getur beðið af þér félagslífið - gjörðu svo vel! Ég hef séð ummæli eftir atvinnuforritara sem segja að nú sé samfélagið byrjað að haga sér eins og þeir hafi alla tíð gert - og kvarta ekki.

En aðrir? Aðrir eru að drepast úr allskonar öðru en veiru, ýmist andlega eða líkamlega, eða bæði.


mbl.is „Leiðinlegt þegar fólk spilar ekki með“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lágpunktur ársins

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri eigin bloggsíðu, var spurður um lágpunkt ársins. Hann svaraði:

Lág­punkt­ur árs­ins er að heyra rök­semd­ir fólks sem finnst að all­ir aðrir en það sjálft eigi að færa fórn­ir í heims­far­aldri. 

Miðað við að maðurinn hafa sótt marga fundi, eða kannski vegna þess, þá er þetta yfirlýsing sem má hnýta í.

Hverjir hafa fært fórnir? 

Lífeyrisþegar á öruggum tekjum í öruggu heimili? Nei.
Ríkisstarfsmenn á öruggum tekjum í öruggu heimili? Nei.
Einbúar sem hafa hvort eð er ekki þurft á öðru fólki að halda í holdi og blóði? Nei.
Skrifstofustarfsmenn í tölvuvinnu sem gætu unnið vinnuna sína í gegnum netið á toppi Mount Everet? Nei.
Stjórnmálamenn? Nei.

Ungt fólk í námi, í miðju andlegu og félagslegu þroskaferli sínu? Já.
Viðkvæmt fólk sem hefur misst vinnu sína, vini, lífsþrá eða allt ofangreint? Já.
Frumkvöðlar sem hafa ekki ratað inn í þrönga ramma lokunarstyrkja og sjá fram á að sparifé þeirra og tími sé gufað upp? Já.
Fólk sem þjónustar fólk á ýmsan hátt, t.d. með því að nudda það, klippa hár þess og rækta líkama þess? Já.
Fólk sem býr utan akstursfæris við fjölskyldu sína og vini og sér fram á að megnið af vinnufríi þess fari í sóttkví? Já.

Yfirlýsing ritstjóra eigin bloggsíðu jaðrar við fávisku, en er ekki fáviska. Viðkomandi er rosalega vel upplýstur um ástandið. Ástæðan hlýtur því að vera hroki. Eða hvað?


mbl.is Þetta ætlar Björn Ingi að gera árið 2021
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamenn og spurningar

Allir vildu blaðamaður vera, en auðvitað eftir á, þegar viðtalið er yfirstaðið. 

Sóley Tómasdóttir, kapítalisti, lætur blaðamenn heyra það í nýlegum straumi færslna á samfélagsmiðlum. DV tekur þetta saman hér

Þarna stingur Sóley upp á spurningum sem hefði átt að spyrja fjármálaráðherra vegna viðveru hans á sölusýningu þar sem áfengi var í boði.

Það er sjálfsagt að spyrja spurninga, en óþarfi að sprengja púðurskot á rjúpnaveiðum.

Spurning 1: Af hverju var verið að bjóða upp á vín á sölusýningu? Hafði verið boðið upp á vín alla aðra daga þessarar sýningar? Ertu aaaalveg viss um að þetta hafi ekki verið boð fyrir útvalin?

Oft gert, á mjög fjölbreyttan hátt. Kannski var bætt í á Þorláksmessu enda margir að leita að jólagjöf og upplagt að liðka aðeins upp á veskið einmitt þetta kvöld. Hvort almenningi hefði verið meinuð innganga veit ég ekki. Það kæmi mér nú samt ekki á óvart: Opinn bar fyrir heimilislausa og unglinga? Ekki besta sölusýningin!

Spurning 2: Varðandi Sigríði og Brynjar. Ertu í alvöru að mótmæla því að þau hafi talað gegn sóttvarnaraðgerðum? Ertu stoltur af þeirra framgöngu gegn faraldrinum?

Sigríður og Brynjar hafa ekki talað gegn sóttvarnaraðgerðum. Þau, og fleiri, hafa talað gegn þeirri tegund sóttvarnaraðgerða sem skjóta með haglabyssu á samfélagið í stað þess að leggja áherslu á að verja þá viðkvæmustu. Veiran er ekkert á förum, frekar en aðrar kórónaveirur. Það er ekki hægt að loka öllu til eilífðar, jafnvel ef bóluefni sýna góða virkni (sem er ekki víst ennþá).

Þess má geta, samkvæmt litlu plaggi, að þingmenn "eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum". Kannski er pínulítið krúttlegt að vinstrimenn vilji að Bjarni Ben ráði skoðunum annarra.

Spurning 3: Ef það var ekkert ólöglegt í gangi, fjöldi innan marka og opnumartími líka, af hverju stoppaði lögreglan þá “sölusýninguna”? Er ekki eðlilegt að slíkt valdníðsla verði þá rannsökuð?

Sanngjörn spurning að vísu, sem er verið að rannsaka. Sennilega var reglugerð dagsins brotin að einhverju leyti, eins og víða. En yfirleitt held ég ekki að almenningur sé nógu tendraður til að framkvæma meðvitaða borgaralega uppreisn gegn handahófskenndum tilskipunum yfirvalda, því miður. Hvað þá jakkafatamaður eins og fjármálaráðherra.

Punkturinn er þessi: Flestir eru virkilega að vanda sig að dansa í takt við tónlistina, en það er erfitt. Fyrirtæki þurfa að starfa og fólk - annað en opinberir starfsmenn - þarf að einhver kaupi þjónustu þess. Ég þekki einstaklinga sem sjá fram á gjaldþrot eftir að ríkið lokaði á tekjuöflun þess, lofaði bótum og borgar engar. En samt er fólk að reyna.

Meint brot á reglugerðum eru ekki borgaraleg óhlýðni uppreisnarseggja - nokkuð sem þyrfti kannski að fara gerast.

Blaðamenn ættu að spyrja, en ekki úr fílabeinsturni. Miklu frekar í þessum dúr:

1) Hvað er búið að hafna mörgum beiðnum um bætur vegna lokana?

2) Hvað má rekja margar lokanir í haust til smitútbreiðslu í vor? Og hvað margar lokanir í haust eru án sannanlegrar smiðútbreiðslu í vor og þar með í "just in case" flokknum?

3) Hvað er álagið á heilbrigðiskerfið mikið í söguleg samhengi ef tekið er til greina þann óvenjulega hátt að senda í sóttkví ósmitaðra/einkennalausa starfsmenn heilbrigðiskerfisins og loka af heilu deildunum fyrir eina tegund veiru?

4) Hvað er álagið á heilbrigðiskerfið mikið í sögulegu samhengi í fjölda sjúklinga á annars vegar gjörgæslu og hins vegar almennum deildum, miðað við getu kerfisins?

5) Hver er þróun dauðsfalla vegna sjálfsvíga, hjartaáfalla í heimahúsum og öðru sem ratar ekki inn á heilbrigðisstofnanir fyrr en eftir andlát?

Það er sjálfsagt mál að hamra á blaðamönnum, stjórnmálamönnum og embættismönnum. En það má taka til greina að flestir reyna að dansa í takt, af einlægni, en mistekst, því það er ómögulegt.


Fleira sem mætti skrá

Ýmislegt er skráð um okkur í miðlæga gagnagrunna. Vegabréf okkar gefa ákveðnar upplýsingar. Nú er rætt um að bæta við stöðu bólusetningar vegna veiru. Óskalistinn er samt lengri en það.

Ákveðnir hópar í Bandaríkjunum eru að útbúa skrá yfir þá sem studdu við kosningabaráttu Donald Trumps. Skránni er vitaskuld ekki ætlað að hjálpa þeim einstaklingum heldur mynda þrýsting á að fá þá rekna úr starfi, hafnað í bankanum og fleira slíkt.

Er bóluefnaskrá ekki bara afkimi af slíkri skrásetningu? Engir tónleikar, mannamót og flugferðir nema vera á rétta listanum! Eða vera fjarverandi á ranga listanum!

Eins mætti tengja miðlæga gagnagrunna við samfélagsmiðla og kortleggja skoðanir fólks á hinu og þessu. Segjum t.d. sem svo að einhver hafi tjáð sig með óvægum hætti um Tyrkland. Búmm, tölvan segir nei þegar viðkomandi stendur við vegabréfshliðið á leið á ströndina í Marmaris!

Finnst þér ekkert skrýtið við að konur séu í minnihluta í stjórnum fyrirtækja, á bifvélaverkstæðinu og á byggingalóðinni? Búmm, tölvan segir nei þegar þú sækir um starf hjá fyrirtæki sem hefur skuldbundið sig í tilgangslausar pappírsæfingar til að þóknast pólitískum rétttrúnaði!

Sá á annað borð verið að opna á fleiri og fleiri miðlægar skráningar á hinum ýmsu afkimum á lífi einstaklinga, svo sem stöðu bólsetningar, er verið að búa til snjóbolta og ýta niður snævi þakta fjallshlíð. 


mbl.is Skrá þá sem hafna bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsfaraldur

Myndin hér að neðan sýnir svokallað z-skor fyrir Norðurlöndin (Euromomo) og aldursdreifingu þeirra sem hafa látist vegna COVID-19 í Svíþjóð (uppruni). Z-skorið er tölfræði sem á að gefa til kynna hvort fleiri eða færri séu að látast en venjulega í gefinni viku.

heimsfaraldur

Öll Norðurlöndin nema Svíþjóð hafa verið innan við mörkin og jafnvel nokkuð undir. Svíþjóð missti veiruna inn á risastóru hjúkrunarheimilin sín og það þurrkaði út mörg þúsund líf í vor og aðeins fleiri en viðbúið í einni viku fyrir næstum því mánuði síðan. Í millitíðinni létust miklu færri en viðbúið.

Hér er nærmynd af Svíþjóð í ár:

sw

Á Írlandi er búið að halda fólki föstu heima hjá sér svo vikum skiptir (þar til nýlega).

ire

Í Danmörku er allt lokað núna nema matvöruverslanir og apótek. Til hvers?

dk

Yfir það heila vaknar samt spurningin: Hvar er heimsfaraldurinn?


Veirur og varnir

Það tekur að jafnaði 4-5 daga frá því manneskja kemst í tæri við kórónaveiruna og þar til hún fer að finna fyrir einkennum.

Þann 23. desember voru 50 manns í teiti, þar á meðal fjármálaráðherra. Smitsprengingin ætti því að vera komin fram núna.

Þann 24. desember voru yfir 100 manns í messu. Smitsprenging ætti því að vera komin fram núna.

Þetta blasir við, ekki satt?

sprengja

Nei, ekkert sést í tölunum. En kannski breytist það hratt á næstu dögum.

Heilbrigðiskerfið er líka á þolmörkum:

icu

Nei, sem betur fer ekki.

En með svona lítið í gangi eru yfirvöld auðvitað bara að biðja fólk um að vera á verði en að öðru leyti eiga nokkuð eðlilegt líf, ekki satt?

adgerdir

Aldeilis ekki! Það er allt eldrautt! Ekki eldrautt af veiru heldur eldrautt af aðgerðum!

Ég samgleðst þeim sem komust í gott teiti á Þorláksmessu og þeim sem komust í messu á jólunum. Um leið tek ég undir með þeim sem benda á hræsni fjármálaráðherra sem situr í ríkisstjórn sem stendur að baki öllum hömlunum á samfélagi manna en leyfir sér svo að fara á bak við sömu hömlur. Ég hefði miklu frekar viljað sjá hann halda litla ræðu um hvað hann er ósáttur við sóttvarnaraðgerðirnar og segja eitthvað í þessum dúr:

"Já, það er rétt að ég fór í partý. Ég styð það að fólk hittist og eigi saman gleðistund og mun berjast fyrir því innan ríkisstjórnarinnar að létta á hömlum. Um leið finnst mér lögreglan vera að forgangsraða alltof stíft í að hella niður áfengi fullorðsins fólks í stað þess að verja borgarana gegn alvöruglæpum. Ég vildi sýna fordæmi í þeirri baráttu og borgaralega óhlýðni. Nei, ég biðst ekki afsökunar. Ég tek afleiðingum reglugerðabrota en mun verja málstað minn fyrir dómstólum ef þess gerist þörf. Stjórnarskráin á að gilda í þessu landi, ekki reglugerðir með veika lagastoð sem ná langt út fyrir meðalhófsregluna."

Engin slík ræða heyrðist. Í staðinn kom enn ein væmin og hol afsökunarbeiðnin sem stjórnarandstæðingar ætla sér að nýta í botn í pólitíkinni - skiljanlega. 


mbl.is Píratar bjóðast til að styðja minnihlutastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilraunin mikla

cc_labrats_16x9_0

Bóluefni Pfizer gegn SARS-CoV-2 smiti er "first-ever authorized vaccines that use mRNA" (What is mRNA?). Bóluefni Moderna notar sömu tækni.

Hvernig stendur á því? Tæknin er áratugagömul!

"But as elegant a mechanism as this is in theory, mRNA vaccines have faced real biological challenges since they were first developed in the 1990s. In early animal studies, for instance, the vaccines caused worrisome inflammation."

Þá höfum við það.

Ef Íslendingar bjóða sig fram í risastórri tilraun á nýrri tegund bóluefnis - glænýrri tegund! - þá er það auðvitað greiði við heiminn. Þá er hægt að sjá hvernig mismunandi hópar (aldur, kyn, heilsa, ólétta, brjóstagjöf osfrv.) bregðast við bóluefninu og þegar búið er að kortleggja áhættuhópana er hægt að vara umheiminn við.

Nú þegar er búið að benda á að fólk með bráðaofnæmi (gegn lyfjum, mat eða öðrum bóluefnum)  ætti að láta Pfizer-bóluefnið eiga sig

Fleira á eftir að bætast á þann lista eftir því sem hin glænýja tegund bóluefnis nær inn í fleiri handleggi.

Sjáum hvað setur.


mbl.is Þórólfur: Vonandi sér Pfizer kosti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögregluþjónn skilur ekki. Þá þarf að útskýra

„Ég skil þetta bara ekki. Við erum búin að segja þetta skil­merki­lega og marg­ir eru að færa mikl­ar fórn­ir. Fólk er eitt um jól­in og svo fram­veg­is,“ seg­ir Rögn­vald­ur Ólafs­son, aðal­varðstjóri hjá al­manna­vörn­um.

Það er því svigrúm til að bjóða upp á útskýringar úr því Veitinga-Víðir er ekki að koma samstarfsmanni sínum til aðstoðar.

Í grunninn snýst málið um örfá einföld atriði, og má þar nefna:

  • Sumir einstaklingar telja sig vera að passa sig: Passa fjarlægð, snertingar, knús og kyss. Kannski fleiri innan ákveðins rýmis en reglugerð dagsins mælir fyrir um en engu að síður varfærni til staðar. 
  • Sumir einstaklingar telja sig einfaldlega ekki vera í smithættu eða þola að fá veiru og ná sér af henni.
  • Sumir einstaklingar þurfa einfaldlega að lifa lífi sínu og ætla sér að gera það, óháð reglugerð dagsins. Veiran hefur að mörgu leyti verið sæmilega kortlögð með tillits til áhættuhópa, fýsileika lyfja og fyrirbyggjandi aðgerða og því engin ástæða til að fórna lífi sínu til að halda sér á lífi.

Þetta þurfa yfirvöld að skilja. Reglugerð dagsins bítur einfaldlega ekki eins og áður - ekki eins og í vor þegar enginn vissi neitt og allir voru sammála um að gera „eitthvað“ og „hvað sem er“ til að fletja út kúrvuna, eins og markmiðið var þá (en ekki lengur).

Rögn­vald­ur Ólafs­son, aðal­varðstjóri hjá al­manna­vörn­um, ætti kannski að spara sorgina og depurðina og spyrja fólk einfaldlega: Hvað vakti fyrir þér? Veitinga-Víðir svarar örugglega í símann. 


mbl.is „Ég skil þetta bara ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri myndrit

Ég get því miður ekki rakið uppruna myndritsins hér að neðan öðruvísi en að segja að ég hafi fengið það sem áskrifandi á póstlista Tom Woods, en skil það eftir til umhugsunar:

deaths

Margar túlkanir eru í boði og ég vona að einhverjir skilji eftir sínar í athugasemdum en ein gæti mögulega verið: Sóttvarnaraðgerðir geta kannski frestað för veirunnar að þeim viðkvæmu í stuttan tíma, en ekki stöðvað hana.

Það væri því ráð að hleypa henni í þá sem þola hana og byggja varnarvegg í kringum þá viðkvæmustu frekar en að fórna framtíð þeirra hraustu án árangurs fyrir þá viðkvæmu.


Línurit

Fyrir áhugamenn um línurit get ég eindregið mælt með Twitter-síðu @ianmSC.

Þar er t.d. þetta línurit:

Eps4eAtUwAEcNzN

Nú er auðvitað ekki vitað með vissu af hverju grímuliðið er að smitast meira en aðrir. Kannski af því það treður sér miklu frekar nær öðru fólki og telur grímuna vera fullkomna vörn. Kannski er það meira að ota puttunum í andlitið á sér (til að laga grímuna). Kannski er fólk að nota skítugar grímur sem hafa dregið í sig veirur yfir marga daga og orðnar einskonar söfnunargámur fyrir þær. 

En þær virka ekki.


mbl.is Hættir vegna veislu á þakkargjörðarhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband