Bloggfærslur mánaðarins, október 2020
Föstudagur, 30. október 2020
Ónei
Ríkisstjórnin mun ræða tillögu Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar á fundi sínum í dag.
Eða, til að umorða:
Ríkisstjórnin mun með lokuð augun samþykkja tillögu Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar á fundi sínum í dag. Smitvarnir verða eina áherslan. Allt annað - sjálfsmorðsbylgjan, fjöldagjaldþrot, brottfall úr skólum, dauðsföll vegna einhvers annars en veiru og fórn á ákveðnum samfélagshópum (aðallega ungum karlmönnum) svo eitthvað sé nefnt - verður ekki einu sinni sett á dagskrá.
Ríkisstjórnin ræðir tillögur Þórólfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 27. október 2020
Erlendir dómstólar sem íslenskir löggjafar
Enn einu sinni stefnir í að erlendir dómstólar þurfi að slá á putta íslenska ríkisins og þvinga það til að breyta lögum.
Auðvitað eru íslensk yfirvöld að mismuna með því að banna innlenda netverslun með íslenskar afurðir en heimila viðskipti við erlendar netverslanir með íslenskar afurðir.
Fleiri lítil brugghús eru byrjuð að ögra þessu fyrirkomulagi, leynt og ljóst. Eitt slíkt er tilbúið með lögfræðing sem æðir til erlendra dómstóla um leið og lögreglan ætlar sér að stöðva smásölu þess á eigin framleiðslu. Lögreglan veit þetta og hefur hingað til haldið að sér höndum en kannski er að verða breyting þar á.
Spurningin er þá bara hvort kemur á undan: Ný löggjöf að frumkvæði Alþingis, eða ný löggjöf að frumkvæði erlends dómstóls.
Netverslun með bjór í lögreglurannsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 26. október 2020
COVID-19 útrýmdi flensunni
Ég sá ágæta ábendingu þess efnis að eftir aldagamla baráttu við hina innræmdu flensu þá er sigur loksins unninn! Flensunni hefur verið útrýmt á heimsvísu!
Á eftirfarandi mynd sjást andlát vegna inflúensu á Íslandi seinustu ár. Talan verður væntanlega núll í ár (heimild):
Ekki vantar skýringarnar frá WHO á þessu kraftaverki: "The various hygiene and physical distancing measures implemented by Member States to reduce SARS-CoV-2 virus transmission have likely played a role in reducing influenza virus transmission."
Einmitt það já? Meira að segja Svíar fá að deila kraftaverkinu með heiminum þótt þar hafi engu verið lokað með lögboði:
Góðar fréttir frá karabíska hafinu og Mið-Ameríku: "In the Caribbean and Central American countries, there were no influenza detections reported."
Flensan er líka horfin í víða í Afríku, Suður-Ameríku og Suðaustur-Asíu: "In tropical South America, tropical Africa and Southern Asia there were sporadic or no influenza detections across reporting countries."
Eða hvað?
Flensan horfin en samt mælt með því að bólusetja sig gegn henni? "It was recommended that trivalent vaccines contain the following: an A/Victoria/2570/2019 (H1N1)pdm09-like virus; an A/Hong Kong/2671/2019 (H3N2)-like virus; and a B/Washington/02/2019 (B/Victoria lineage)-like virus."
Af hverju?
Getur verið að flensan sé á ferli eins og alltaf en að einhverjir hvatar valdi því að flensutilfelli eru einfaldlega flokkuð sem tilfelli af COVID-19? Nú eða að veirupróf geti ekki gert greinarmun? Það hlýtur að vera annaðhvort.
Mánudagur, 26. október 2020
Trump-Biden veðmálið
Ég fylgist lítið með bandarískum stjórnmálum og hvað þá heldur kosningum þar sem valið stendur á milli tveggja lélegra valkosta. En þó rakst ég á nokkuð sem er athyglisvert.
Myndin hér að neðan sýnir skoðanakannanir í aðdraganda Trump-Clinton kosninganna.
Þann 26. október í aðdraganda kosninganna mældist Trump með 43% og Clinton með 48,4%. Munurinn var 5,4%. Lokatölur urðu 46,8%-43,6% (Clinton fékk fleiri atkvæði en Trump vann á fjölda svokallaðra kjörmanna).
Í Trump-Biden er staðan svona:
Trump er í dag í 43,8% og Biden er í 50,8%. Munurinn er 7%. Aðeins meiri en á sama tíma í Trump-Clinton kosningabaráttunni en ekki svakalega mikið.
Það er freistandi að veðja svolitlu fé á að Trump vinni. Mér sýnist ávöxtunin geta orðið ágæt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 25. október 2020
Jól hjá loftborinni veiru
Nú þegar veturinn er að ganga í garð er blómatíð hjá loftbornum veirum. Í stað þess að hleypa henni af stað þegar veður var betra og líkamar fólks í betri aðstæðum til að sigrast á þeim er búið að ýta veiru inn í vetur.
Flensuveiru.
Kórónaveiru.
Kvefi.
Hálsbólgu.
Öllu sem herjar á fólk, árlega eða á 10 ára eða 20 ára fresti.
Ofan á veiru leggst svo efnahagslega plágan sem ætlar að drepa miklu, miklu, miklu fleiri en nokkur veira síðan 1918:
Sjálfsmorð, barnadauðar, vímuefnamisnotkun, malaría, berklar, nefndu það!
Fréttir af hliðarafleiðingum svonefndra aðgerða á Íslandi hljóta alveg stórfurðulega þögn. Ég hef ekki séð stafkrók eða myndskeið þar sem einhver virðist ætla að hugsa sig um og segja: Jæja, við erum greinilega að hrekja miklu fleiri fram af bjargbrún en við erum að bjarga með því að drepa hagkerfið. Við kíkjum á Svíþjóð eftir að þeim tókst að verja hjúkrunarheimilin sín. Nokkuð sem okkur ætlar að mistakast á Íslandi þótt það hafi átt að vera eina forgangsverkefnið.
Ekkert! En vonandi er ástæðan sú að ég hef ekki náð að fylgjast nægilega vel með öllum sem tjá sig.
Greinilegt að ekki hafi verið farið eftir reglum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2020 kl. 07:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 23. október 2020
Partýið heldur áfram
Myndin hér að neðan (heimild) sýnir dauðsföll á dag í Svíþjóð, meðal fólks sem hefur greinst með COVID-19 veiruna (og dó úr henni eða vegna samverkandi þátta við aðra heilsubresti):
Er eitthvað sjáanlegt vandamál á ferðinni?
Partíið búið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 23. október 2020
Heilsan
Ég ætla ekki að gefa neinum heilsuráð en eftirfarandi virkar ágætlega fyrir mig:
- Sofa 7-8 tíma á nóttu sem flestar nætur.
- Drekka vatn sem oftast.
- 2 matskeiðar af lýsi á dag og 1 fjölvítamín.
- Sleppa morgunmat og borða kvöldmat snemma og reyna að láta a.m.k. 16 tíma líða á milli kvöldverðar og hádegisverðar. Að fasta aðeins er hollt fyrir líkamann.
- Borða þess á milli eitthvað sem er gott en er helst líka hollt. Venjulegur matur, í stuttu máli (með laktósa, glúten, fitu, dýraafurðum og salti).
- Stunda einhvers konar hreyfingu sem oftast, t.d. að taka nokkrar armbeygjur daglega eða planka. Nota yfirleitt stigann og labba eða hjóla styttri vegalengdir (upp að 7 km).
Lengri er listinn ekki né flóknari. Hvernig heldur þú þínum skrokki við?
Íslensk börn sofa mörg hver of lítið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 21. október 2020
Er sjálfsmorðsbylgja í fullum gangi og enginn segir neitt?
Í frétt Mannlífs kemur fram margt af því sem ég hef beðið lengi eftir að komi fram á sjónarsviðið: Aðgerðir vegna veiru eru að leiða til stórkostlegrar aukningar í sjálfsvígshugsunum og jafnvel sjálfsvígum, sérstaklega meðal yngri karlmanna.
Veiran er að blinda okkur svo mikið sýn að við sjáum einfaldlega ekki afleiðingar aðgerða gegn henni. Þær afleiðingar eru jafnvel margfalt alvarlegri en sjálf veiran. Í raun er stórfurðulegt að um þetta sé ekki fjallað víðar og með áberandi hætti. Mannlíf talar um þöggun sem er stórt orð en sennilega viðeigandi.
Það að smitast af veiru er fyrir flesta lítið mál. Það að veikjast af veiru er önnur saga. En hér segja læknar Landspítalans að vandamálið sé minna en í venjulegu flensuári. Vandamál spítalans sé skortur á úrræðum fyrir aldraða sem þurfa að komast á hjúkrunarheimili í stað þess að taka spítalarúm. Eins og alltaf!
Mín spá er sú að þegar endanlegar tölur um sjálfsvíg árið 2020 liggja fyrir, og þær bornar saman við undanfarin ár, þá verði það eins og reiðarslag fyrir almenning. Hvað gerðist? Af hverju var ekki gripið inn fyrr? Af hverju var þessu ungu fólki fórnað? Til hvers? Fyrir hvern? Eftir hvaða hagsmunamat? Af hverju?
Ótaldar eru svo aðrar afleiðingar aðgerða gegn veiru. Brottfall ungmenna úr námi verður gríðarlegt þegar á hólminn er komið og krossferðin gegn veirusmitum hefur verið aflífuð. Tölfræði hjartasjúkdóma verður skelfileg líka. Misnotkun vímuefna er að aukast. Skilnaðartíðni verður líklega meiri en í venjulegu árferði. Geðheilsa eldra fólks hrakar. Margir fá kvíða að óþörfu. Listinn er endalaus.
En aðgerðir gegn smitum skulu halda áfram að stjórna samfélaginu. Af hverju? Jú, því það er snákaolía sem er auðvelt að selja skelkuðum almenningi.
Miðvikudagur, 21. október 2020
Stjórnmál án hugsjóna
Viðskiptablaðið spyr góðrar spurningar:
Höfum það í huga að sá sem lagði fram frumvarp til laga um tryggingagjald árið 1990 var Ólafur Ragnar Grímsson. Í dag er gjaldið 70-80% hærra en það var þegar Ólafur lagði frumvarpið fram. Eins og einhverjir muna fékk Ólafur viðurnefnið Skattman. Hvað eigum við að kalla þá sem nú ráða?
Til gamans má benda á myndbandið um Skattmann sem birtist í Áramótaskaupinu 1989, hér.
En þótt spurning Viðskiptablaðsins sé góð þá er ekki víst að það sé til svar við henni. Það er ekki einu sinni víst að stjórnmálamenn sem hækka skatta ætli sér að hækka skatta. Prósentur leggjast jú á heildir sem breytast í stærð og skattheimta breytist þannig auðvitað með stærð skattstofnsins. Þannig hefur hagvöxtur gjarnan í för með sér aukna skattheimtu jafnvel þótt skatthlutföll lækki eitthvað. Skattafrádrættir fara að vega minna. Niðurstaðan verður því jafnvel sú að lækkandi skatthlutföll í umhverfi efnahagsuppgangs geti aukið þá hlutdeild í verðmætasköpun samfélags sem hið opinbera - ríki og sveitarfélög - gleypir í gin sitt.
En hvernig stendur á því að skattheimta virðist sífellt klífa upp á við, samhliða vaxandi ríkisafskiptum, án þess að það sé beinlínis stefna neins nema hörðustu vinstrimanna?
Í frægri bók, Our Enemy, the State, reynir höfundur, Albert Jay Nock, að svara því hvernig ríkisvaldið heldur áfram að þenjast út jafnvel þótt það sé ekki endilega sjálfstætt markmið neins. Hitler, Stalín, Mussolini og ýmsir stjórnmálaheimspekingar lýstu því yfir að ríkisvaldið væri æðsta valdið sem ætti að ráða. Þetta segir enginn í dag en samt virðist raunin vera sú, í vaxandi mæli. Hvað má skrifa þetta á?
Nock leggur það til að ástæðan sé kannski sú að enginn hafi neinar hugsjónir. Menn eru einfaldlega farþegar á bát sem lætur strauminn bera sig áfram. Enginn reynir að synda í hina áttina. Ríkisvaldið er jú bara samansafn sífjölgandi svokallaðra jákvæðra réttinda sem sé í eðli sínu allt annað ríkisvald en heimspekingar frjálslyndisstefnunnar á 18. og 19. öld töldu heillavænlegast - ríkisvald sem eingöngu framfylgir svokölluðum neikvæðum réttindum.
Þurfa stjórnmálamenn ekki á ný að byrja tileinka sér hugsjónir og hugleiða hvert hlutverk ríkisvaldins eigi í raun að vera, í stað þess að sigla bara eins og rekaldin á straumum tískunnar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. október 2020
Undirskriftalisti: Ísland fari norrænu leiðina í sóttvarnarmálum
Við undirrituð skorum á mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, að beita sér fyrir því að framhaldsskólar verði tafarlaust opnaðir og að þar fari fram eðlilegt skólahald rétt eins og í grunnskólum. Ísland er eina landið á Norðurlöndunum sem ekki er með opna framhaldsskóla og gerir þannig greinarmun á grunnskólum og framhaldsskólum. Börn og unglingar eru ekki í áhættuhópi fyrir Covid-19. Annars væru framhaldsskólar að sjálfsögðu lokaðir á hinum Norðurlöndunum líka. Um er að ræða mikilvægt lýðheilsumál og varla þarf að efast um skaðsemi núverandi fyrirkomulags sem að óbreyttu hefur alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar í för með sér á heila kynslóð ungmenna.
Að stöðva íþróttastarf barna og unglinga er heldur ekki forsvaranlegt af sömu ástæðu.