Stríðið gegn eiturlyfjum er stríð gegn fólki

Einhvern tímann var ég einn af þeim sem sá ekkert athugavert við stríðið gegn fíkniefnum. Ég sá skynsemi í lögbanni á ýmsum efnum, allt í senn á framleiðslu, sölu og neyslu þeirra. Af hverju? Jú af því "fíkniefni eru slæm" og engum hollt að umgangast.

En þótt efni sé óhollt, slæmt, ávanabindandi og beinlínis hættulegt leiðir ekki til að lögbann á slíku efni sé réttlætanlegt og þaðan af síður skynsamlegt. Ég ætla að spara orðin núna og láta duga að vísa á þennan ágæta pistil um lögleyfingu fíkniefna. Svo vil ég minna á að í því landi þar sem hvað mestum kröftum hefur verið eytt til að vinna "stríðið gegn fíkniefnum" er einnig hæsta hlutfall íbúanna í fangaklefum.


mbl.is Varaforseti Afganistan segir baráttuna gegn ópíumrækt hafa misheppnast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sá ekki þessa ókosti heldur fyrr en fyrir nokkrum árum.

Maður hélt alltaf að það væri ómögulegt fyrir ríkið að stjórna fíkniefnamarkaðnum, en þegar það er bara hægt að velja á milli þess og peningasjúkra glæpamanna þá er svarið frekar auðvelt.

stebbi (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband