Má segja börnum hvað sem er núna?

Það virðist eitthvað hafa breyst í viðhorfi okkar til barna. Einu sinni átti að vernda þau, umfram allt. Vernda þau fyrir ofbeldi, klámi, misnotkun, heilaþvotti, áróðri og hvað það nú nefnist (með heiðarlegri undantekningu í tilvist jólasveins eða jólasveina og jafnvel tannálfa). Þau ættu að fá að þroskast á eigin forsendum, hljóta menntun og læra umburðarlyndi svo eitthvað sé nefnt. Læra að dæma einstaklinga á eigin verðleikum en ekki eftir einhverjum flokkunum. Eða svo hélt ég. 

Þessu er kannski öfugt farið núna. Núna er einstaklingurinn ekkert nema einkenni hans. Hvaða kyn hann er eða telur sig vera. Hvaða hörundslit hann ber. Þú ert ekki maður eða kona sem kemur fram við fólk á ákveðinn hátt. Nei þú ert af tilteknu kyni með tiltekinn húðlit og afkomandi tiltekins fólks með tiltekna sögu.

Ég er þannig ekkert annað en gagnkynhneigður, hvítur, miðaldra karlmaður, og í vinnu þar að auki. Af því leiðir að ég get ekki tjáð mig um ýmislegt, svo sem réttarríkið og lagarammann og hvernig hann hefur áhrif á einhverja sem eru ekki gagnkynhneigðir, hvítir, miðaldra karlmenn, í vinnu. 

En gott og vel. Ég þarf auðvitað alls ekki að tjá mig um aðstæður eins né neins nema sjálfs míns. Sem faðirs. Sem skattgreiðenda. Sem einfara að eðlisfari sem nýt þó góðs félagsskapar við hvert tækifæri. 

En aldrei dytti mér í hug að raska hugarró barna minna með því að opna á heim þar sem allt er mögulegt ef maður einfaldlega fær hugdettuna. Að þau séu allt í einu af öðru kyni. Að ofbeldi sé í lagi fyrir utan aðstæður sjálfsvarnar. Að það megi stela ef manni einfaldlega langar til þess. Ég á stelpu sem hefur kallað sig strák og yrði sjálfsagt í einhverjum samfélögum gripin í viðtöl af einhverjum félags- eða kynjafræðingi sem er ekki til staðar næsta dag þegar hún kallar sig stelpu aftur, eins og eiginlega alla daga. Mikið yrði auðvelt að steikja í henni heilann í réttum aðstæðum rangs fólks. 

Ég rakst á athyglisverðan texta um daginn:

Via the DSM-5, which is the 2013 update of The Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders, Fifth Edition, published by the American Psychiatric Association, the prevalence rate of gender dysphoria is between 0.005 percent to 0.014 percent for males, and 0.002 percent to 0.003 percent for females.

In 2022, Pew Research puts that rate at 5% of all young adults!

Hvernig stendur á þessu? Voru geðlækningar bara eitthvað bull fram til ársins 2013 og stökkbreyttust svo í hinn heilaga sannleika fljótlega eftir það? Eða var ekkert að marka þær nokkurn tímann? Eða er ekkert að marka það sem kom síðar?

Hvar eru mörkin? Þau eru önnur en áður, ég næ því. Börn rekast fyrir tilviljun á myndbönd á netinu sem óharðnaðir unglingar þurftu að ræna úr myndbandaleigum á sínum tíma. 5 ára dóttir mín dró einhvern veginn að sér f-orðið úr leikskólaumhverfi sínu. Tímarnir breytast. En að kynin gerðu það um leið eru fréttir fyrir mér. Ég hélt einhvern veginn að 0,005 prósentin væru ennþá góð og gild. 

Það sem ég læri af þessu er að ég sem foreldri þarf núna að vera meira vakandi en áður. Meira spyrjandi um það efni sem börnum mínum er sýnt í leik- og grunnskóla. Vera meira á verði þegar blásið er í sérstakar átaksvikur. Sem íbúi í litlu sveitarfélagi í Danmörku hef ég ekki séð nein hættumerki ennþá en þau luma handan við hornið og ef þau láta sjá sig er mér að mæta.


mbl.is Bæjaryfirvöld tjá sig vegna pistils kennarans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hinir uggvænlegu barnageldarar eru að hefja innreið sína.

Systur mínar hafa þegar farið í mikla fýlu við mig, vegna þess að ég vil hvorki nauðga börnum né skera undan þeim. Þeim finnst að mikill ljóður á mínu fari, en ég er á allt öðru máli.

Sameinuðu þjóðirnar eru á kafi í svona vitfyrringu líka: https://icj2.wpenginepowered.com/wp-content/uploads/2023/03/8-MARCH-Principles-FINAL-printer-version-1-MARCH-2023.pdf

Þetta inniheldur frasa eins og "adolescent sexual activity" og "any prescribed minimum age of consent to sex must be applied in a non-discriminatory manner."

Principle 16, ef þú vilt lesa.

Þetta er vont.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.4.2023 kl. 21:47

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásgrímur,

Það mætti segja að "Team R Kelly" sé að sigra umræðuna en í hans vörn gegn ásökunum um að hafa sængað hjá ungum börnum var nefnt að hann sé enginn barnaperri því hann hefur ekki sofið hjá neinum undir 13 ára aldri, eða svo sýnist mér.

Er 13 ára orðið hið nýja 18 ára?

Geir Ágústsson, 18.4.2023 kl. 04:43

3 identicon

Semsagt frá 2013 til 2022 marghundruð-faldast greiningar á gender dysphoria.

Hvaða breyting í samfélaginu veldur því?

Hávaða regnbogasamfélagið krefst þess að enginn má efast, enginn má spyrja spurninga; þú átt einfaldlega að taka því sem gefið að kynin hafi alltaf verið fjölmörg, og þú átt að breyta þinni heimsmynd og framkomu til samræmis við það. Allt annað er hatursorðræða.   

Bragi sigurðsson (IP-tala skráð) 18.4.2023 kl. 11:47

4 identicon

Flottur pistill hjá þér.

Einar Ingvi Magnússon (IP-tala skráð) 18.4.2023 kl. 15:18

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sammála Einari, flottur pistill.

Sigurður Kristján Hjaltested, 18.4.2023 kl. 16:59

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Er 13 ára orðið hið nýja 18 ára?"

Sumir af þessum peyjum eru með... hugmyndir: https://en.wikipedia.org/wiki/French_petition_against_age_of_consent_laws

"The late 1970s saw a concerted effort on the part of Gay Rights activists, the French feminist organization Choisir, and Leftist Intellectuals to not only equalize the age of consent but rethink or discard the concept altogether."

Leftistar gera leftista hluti.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.4.2023 kl. 17:59

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Bragi,

Þúsundfaldast! 

Ég las einu sinni frásögn - man því miður ekki hvar en var í íslensku samhengi - um heilan vinahóp stráka sem lýsti sig af kvenkyninu (eða eitthvað þriðja) eftir heimsókn Samtakanna 78. Ég vona að það sé lygasaga. 

Einar,

Takk. Þegar samfélagið er orðið svona skautað og rekið áfram af ofstæki þar sem annar hver maður er orðinn einhvers konar rasisti, fordómafullur bjáni eða andsetinn kvenhatari þá þarf maður bara að sækja í ræturnar og segja: Nei, veistu, ég er bara foreldri. 

Geir Ágústsson, 18.4.2023 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband