Ruslaborgin

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins telur að urðun á rusli sé stórt vandamál í Reykjavík. Of mikið sé urðað. Allt þetta rusl leiðir til losunar á lofttegundum.

Manni sýnist kannski að hér sé fjarlægðin frá ráðhúsinu orðin of mikil því íbúar telja mögulega að annað vandamál sé stærra: Að rusl sé yfirleitt sótt.

Tunnurnar hafa minnkað, sorphirðugjaldið hækkað, ruslabílunum fækkað og sífellt færri hlutir sem mega enda í ruslatunnunni og þarf að keyra hingað og þangað um bæinn á sífellt færri móttökustöðvar.

Eða svo mér er sagt. Og sé það svo þá er bara komið enn eitt dæmið um opinberan rekstur sem hækkar í kostnaði og minnkar í gæðum.

Víða um heim er rusl talið vera mikilvægt hráefni, ýmist í eitthvað sem má nýta í annað á verðmætaskapandi hátt (án niðurgreiðslna) eða til orkuöflunar. Danir flytja til að mynda inn rusl til orkuframleiðslu. 

Íslendingar telja hins vegar að gríðarlega smámunasöm flokkun á því örlitla magni sem 370 þúsund hræður framleiða af rusli vera ógn við loftslag Jarðar. Þeir sóa því gríðarlegum verðmætum í að keyra með ruslið hingað og þangað, pakka því saman í skip sem sigla með það á hjara veraldar til að enda þar í ofnum eða efnablöndum. 

Gefið, auðvitað, að það sé yfirleitt hægt að losna við ruslið, sem er nú kannski sú þjónusta sem íbúar þurfa fyrst og fremst á að halda.


mbl.is Vill koma böndum á ruslrekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband