Leiðari ársins

Í dag birtist í Fréttablaðinu leiðari sem ég vil leyfa mér að kalla leiðara ársins. Ég er eiginlega búinn að bíða eftir svona leiðara í meira en ár.

Hann má lesa hér, skrifaður af Kolbrúnu Bergþórsdóttur. Tilvitnun:

Hinn ríki vilji taugabilaðra stjórnvalda til að takmarka frelsi þegnanna fer stigvaxandi og er fyrir löngu orðinn ógnvænlegur. Sömuleiðis er óhuggulegt hversu lítil mótstaða er gegn lítt skiljanlegum aðgerðum. En kannski er viðbragðsleysið ekki svo einkennilegt. Um leið og höft hafa verið sett á fólk þá fullyrða stjórnvöld að þau séu tímabundin og eingöngu gerð með hagsmuni og velferð almennings í huga. Svo líður tíminn og aðgerðir eru framlengdar vegna þess, er almenningi sagt, að hættan er ekki liðin hjá, hún sé jafnvel að magnast. Því er síðan bætt við að jafnvel þótt hættan væri óveruleg þá væri engan veginn rétt að slaka á höftum því hugsanlega geti eitthvað verulega slæmt gerst í nánustu framtíð.

Í leiðinni vil ég minna á eina bestu blaðagrein ársins, Hvernig skal sjóða íslenskan frosk. Boðskapurinn er svipaður. Tilvitnun:

Við búum nú í landi þar sem er eðlilegt að nágranni þinn hringi á lögregluna ef þú ert með fermingarveislu. Það er eðlilegt að loka þig inni í stofufangelsi án dóms og laga. Það er eðlilegt að banna þér að mæta til vinnu eða stunda nám. Það er eðlilegt að loka verslunum, veitingastöðum, líkamsrækt, flugvöllum og almenningssamgöngum.

Stór hluti samfélagsins hefur látið þetta yfir sig ganga, gegn betri vitund. Fólk hefur sætt sig við að láta undan hræðslu annarra vegna þess að þetta átti allt að vera tímabundið. En markmiðinu er stöðugt breytt. Það sem var fyrst flöt kúrfa er nú veirulaust samfélag. Við áttum að verja heilbrigðiskerfið en erum nú að bíða eftir hjarðónæmi - hvernig svo sem það er skilgreint. Við ætluðum að bólusetja viðkvæma hópa en nú virðast það vera allir.

Síðan greinin birtist í apríl á þessu ári hefur ekkert breyst. Heilbrigðiskerfið er ennþá að springa. Nýtt afbrigði. Engin jól. Grímur. Þriðja og fjórða sprautan. Ýjað að því að innleiða sérstakar haftir á þá sem láta ekki sprauta sig umfram þá sem láta sprauta sig.

Hvað næst? Skyldubólusetningar eins og þeir þýskumælandi í Evrópu boða fyrir þegna sína og sjálft Evrópusambandið er jafnvel að hugleiða? Að það þurfi að sækja um leyfi til að fara úr landi eins og gildir í Ástralíu? Og hætta jafnvel á að fá ekki leyfi. Heimurinn virðist vera á einni stórri vegferð sem ríki eru komin mislangt á en stefna öll meira og minna öll í sömu átt.

Er einhver endir í sjónmáli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er þetta ódýra og þaulreynda lyf Ivermectin að virka svo vel að öllum líkindum myndu innlagnir á sjúkrahús vegna c19 stöðvast og eðlilegt líf tæki við. Hvers vegna er þetta ekki gert?

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 11:23

2 identicon

Vel gert hjá Kolbrúnu. Hér er greinilega á ferð skynsöm manneskja, ólíkt fasistanum Sigmundi Erni. Grátlega sjaldgæft í íslenskri þjóðmálaumræðu.

Matthías (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 11:26

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Kristinn,

Ég veit ekki hvað "þeim" ætlar að takast lengi að bæla niður alla umræðu um fyrirbyggjandi meðferðir og snemmmeðferðir byggðar á ódýrum og þekktum lyfjum sem sum eru meira að segja dottin úr einkaleyfi (þannig að enginn græðir lengur á að búa þau til).

IVM er auðvitað einn möguleiki hérna. Sjá til dæmis línuritin hér:

https://covid19criticalcare.com/ivermectin-in-covid-19/epidemiologic-analyses-on-covid19-and-ivermectin/

https://www.worldometers.info/coronavirus/country/india

Oxford-háskóli hóf í sumar klínískar rannsóknir á lyfinu og skrifaði á þeim tíma: "For COVID-19, ivermectin has shown promising results as a potential treatment in small studies in humans." Kannski menn fari þar bráðum að gefa eitthvað út.

https://www.ox.ac.uk/news/2021-06-23-ivermectin-be-investigated-possible-treatment-covid-19-oxford-s-principle-trial

Frægt er þegar vinsælasti hlaðvarpsstjórnandi heims, Joe Rogan, fékk Covid-19 en var vel undirbúinn og búinn að kaupa sér allskyns lyf og fæðubótarefni sem hann henti í sig og jafnaði á innan við 3 sólarhringum, þar af bara einn dagur með raunveruleg veikindi - frásögn Joe hér. Þetta fór alveg svakalega í taugarnar á CNN sem sagði hann hafa étið hrossalyf. Joe Rogan fékk þá læknisfræðiblaðamann CNN í hlaðvarpið sitt og gjörsamlega snéri hann niður og fékk hann til að játa sökina upp á vinnuveitanda sinn.

Bandarísk yfirvöld sía nú landamærin fyrir IVM til að forða fólki frá eigin ákvörðunum um leið og þau vilja sprauta sama fólk með nýstárlegum líftækniefnum sem hvorki stöðva smit né sýkingu.

Geir Ágústsson, 3.12.2021 kl. 11:41

4 identicon

@Kristinn, þetta er mjög einfalt, Ivermectin er svo ódýrt að það græðir enginn á því, þú hlýtur að hafa séð fréttina um dagin um nýja lyfið gegn covid (lækningin), ein meðferð mun kosta 400.000 kr. Þetta er bara peningur sem er í spilinu þarna.

Ekki halda í eina sekúndu að þessar aðgerðir og allt sem verið er að gera sé gert í þágu almennings eða til þess að verja almenning eða fyrir heilsu almennings, það er lygin í þessu öllu.!!

Halldór (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 12:09

5 identicon

Mýtan, og hinar ýmsu flökkusögur, um fyrirbyggjandi meðferðir og snemmmeðferðir gegn covid byggðar á ódýrum og þekktum lyfjum er langlíf. En meðan ekkert þannig er til, og hvorki rannsóknir né alvöru dæmi sem styðja tilgátuna, þá munu "þeir" hundsa þá blogg, instagram og facebook umræðu álhattafólksins, trúuðum til mikils ama.

Og það að sá sem hafði einkaleyfi sitji ekki lengur einn að framleiðslunni þýðir að að nú getur fjöldi fyrirtækja grætt á að búa lyfin til. Annars væri enginn að framleiða Asperin, Panodil eða Ibufen. Íslensku lyfjafyrirtækin urðu til og og störfuðu með miklum hagnaði vegna þess þau gátu framleitt lyf sem ekki nutu lengur einkaleyfisverndar. Og þau skipta hundruðum, ef ekki þúsundum, fyrirtækin sem græða vel á framleiðslu einkaleyfislausra lyfja.

Vagn (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 14:13

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Geir.

Þú verður alltaf bjartari eftir því sem vitleysingasamfélagið kóar þig oftar upp.

Maður gæti haldið að pólitísk sannfæring þín væri í beinu hlutfalli við bjána sem kommentera pistla þína, en ekki að þú hafir skoðanir sem þú hafir kjark og þor til að setja fram.

Vísan þín í leiðara Kolbrúnu er aum vísan, síðan þá hefur mikið gengið á, til dæmis hafa frjálshyggjuvinir þínir í Flórída drepið rúmlega tuttuguþúsund manns frá því um miðjan ágúst.  Þú veist alveg eins og ég, að mótrök eru ekki að benda á afkastameiri fjöldamorðingja, sem reyndar á 20. öldinni eru aðeins Hitler, Stalín og Pol Pot.

Samt mærir þú þetta lið og uppskerð hrós fíflanna.

Ég er alveg sammála að láta reyna styrk varnanna, hvort sem það er bólusetning eða ný lyf sem hafa verið þróuð til að draga úr alvarleik veikindanna.

En að segja að þessi leiðari Kolbrúnar hafi verið einhver tímamótaleiðari, er eftir á eins og að rífast við staðreyndir.

Hundruð þúsunda hafa dáið frá því að hann var skrifaður, reyndin var sú að bólusetningar virkuðu ekki til að hindra útbreiðslu kvikindisins.

Skynsamt fólk Geir, vitiborið fólk, ekki bjánabelgirnir sem þú hefur kosið að safna að þér, veit að staðreyndir eru ekki til að rífast við. 

Það lærir að þeim.

Það fullyrðir til dæmis ekki að kvikyndið sé meinlaust fyrir fólk undir sjötugu, eða sem er líklegast mesta siðleysið sem þú ákvaðst að láta bjánana telja þig í trú um, að kóvid sýking væri meinlaus fyrir börn og unglinga.

Geir, í alvöru, þú getur alveg aflað þér upplýsinga um alvarleik veirusýkinga, um þreytuna og kraftleysið sem brýtur niður líf þeirra ungmenna sem veikjast, það er svo sárt að sjá þetta fyrir þá sem vita betur, og hafa séð afleiðingar slíkra sýkinga.

Hvað er það við bjánalofið sem fær þig til að haga þér eins og afneitunarsinni, eins og sá flokkur sem afneitar helförinni, drápum Pol Pots, fjöldamorðum Stalíns eða kínverskra kommúnista, sé eitthvað sem þú viljir stoltur tilheyra.

Mundu aðeins eitt Geir, fífl eru aldrei afsökun fyrir þig.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.12.2021 kl. 16:51

7 identicon

Ómar Geirsson: skv. opinberum tölum frá ítalskra yfirvalda, af rúmlega 130 þúsund dauðsföllum með vírusinn þar í landi höfðu allt í allt 54 manns látist sem voru undir sextugu og við góða heilsu. Það er nokkuð lág tala í jafn stóru landi. Eins og aðrir vírusar svipaðrar tegundar leggst þessi fyrst og fremst á þá sem eru með veikt ónæmiskerfi, þ.e. aldraða og þá sem þjást af öðrum heilsufarsvandamálum (offitu, krabbameini, o.s.frv.). Það heyrir til algjörra undantekninga að börn og unglingar veikist alvarlega, hvað þá látist.

Það sakar aldrei að hafa eitthvað lágmark af staðreyndum á bak við sig þegar maður tekur jafn stórt upp í sig og þú og sakar aðra um að vera bjána og fífl. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfur.

Matthías (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 17:31

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Matthías.

Það er óþarfi hjá þér að staðfesta ábendingu mína til Geirs.

Hann skyldi hana alveg hjálparlaust.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.12.2021 kl. 18:47

9 identicon

Blessaður Ómar,

Skildi er skrifað með einföldu i-i. Það er ágætt að læra að stafsetja lika svona fyrst maður er að hella úr viskubrunni sínum í veirufræðunum.

Kveðja að sunnan.

Matthías (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 19:29

10 identicon

Now listen. I am really sorry for my Poor english.

But i have something to say. I am so called Fool in comments. The same fool who have 5 friends who lost their house/ their family, peace opf the mind. And targeted by GOV AGENCIES in China and Outside for posting information about Ivermectine in early 2020. Same fool who successfully treated sick family with ivermectine and introvenous thiamine phosphate and high doses of ascorbic acid ( vitamin c ) and high doses of Zin , vitamin d and meglumine acridonacetate in ijection form. Fever gone on 2nd day and they went from having an active inflammatory syndrome to feeling perfectly good . Now about this researchers and ;OFFICIAL NEWS: What officials you talking about. Same who founded GAIN OF FUNCTION RESEARCH IN WUHAN? THEY SAME WHO CANT PROPERLY DIAGNOSE and TREAT BREAST CANCER IN ICELAND-

OR SAME officials who worryign about your health so much but meanwhile 100-120 people die in year because of doctors mistakes in iceland. Because no early diagnostic and treatment for strokes , heart diseases and Cancer in iceland. Same officials and doctors who receive millions of euro from pharma companies to push deadly SSRI and Benzodiazipines which permamently changing your brain and making you mentaly disabled ?

Same officials who gives Antipsychotics in mental hospitals in iceland To anyone with symptoms of depression in most happy country with skyrocketing suicide rates?

Same officials like ROCKFELLER FOUNDATION who wrote LOCKSTEP OPERATION and DAVOS GROUP who telling you it is your new NORM. Chinese controlled WHO ?

Same officials who give you vaccine against the VIRUS which KILLS VIRTUALLY NOBODY

And they giving you experimental DANGEROUS INJECTION which possibly are linked to infertility CANCER .

DID you even read researchers of CHINESE -AMERICANS scientist about HOW MRNA affecting DNA and what is going to happens with your BODY?

WHEN PHIZER ARE HIDING AND DONT WANT TO SHOW DATA ON DEATH AND SIDE EFFECTS UNTIL 2077 ( IT ALL OVER OFFICIAL NEWS )

WHEN YOU BEING CENCORED< BANNED ON ALL PLATFORMS FOR TELLING INFORMATION ABOUT WUHAN IVERMECTINE AND ATTACK ON UR LIFE WITH LOCKDOWNS

When you got antibody-dependent enhancement no one is going to help you. You will be required boosted until the end of YOUR LIFE. and it Only 2021 it only 1 year of vaccination where Football players are blacking out and tons of YOUNG HEALTHY VACCINATED PEOPLE With HEART ATTACK CANCER AND STROKES.

AND MOST IMPORTANT THIS VACCINE IS NOT WORKING.

YOU STILL WEAR MASK

YOU STILL IN LOCK DOWN

YOU ARE STILL REQUIRE BOOSTER.

AND IT 1st vaccine you need to carry electronical prove.

WHAT ABOUT HEPATITIS A B ?

WHAT ABOUT syphilis and honorea outbrakes in 2021 MiDDLE AGE DISEASE in ICELAND 

https://icelandmonitor.mbl.is/news/news/2020/07/12/syphilis_and_gonorrhoea_on_the_rise_in_iceland/

WHAT ABOUT EUGENIST UNEDUCATED DOCTORS IN ICELAND WHO KILLING PEOPLE AND STILL WORKING ? WHAT ABOUT LEVEL OF HEALTHCARE IN THIS COUNTRY ARE 15 years BEYOND RUSSIA/ CHINA where you can get MRI / CT SCAN in SAME by REQUEST 

WHAT ABOUT GOVERMENT OF ICELAND BLOCKING PRIVATE DOCTORS AND CLINICS.

YOU STILL THINK THEY CARE ABOUT YOU. THEN I FEEL SORRY FOR YOU. YOU ARE SO LOST. BUT IT YOUR BODY. YOUR LIFE. YOU CAN GET AS MUCH POISON GEN SHIT IN UR BODY AS YOU WANT.

WORLD PERMAMENT LOCKDOWN WITH MARSHALL LAW IS HERE

CONTACT TRACING> ISOLATION CAMPS because with 98% survival RATE./

ARE YOU MENTALLY SICK OR BEING PAID. MY FRIENDS WAS OFFERED from 100.000k $ up to half of million per year just for RIGHT BLOG POSTS AND SILENCE. I DONT KNOW IF YOU BEING PAID YOU UR JUST A SHEEPLE>

GEIR THANK YOU FOR YOUR POSTS AND THANK YOU FOR MAKING SOME PEOPLE AWARE EVEN IF IT IS 1 PERSON

IN TIME WE WILL SEE> WE ALREADY SEE WHAT WORLD HAS BECOME.

But some people are so hopeless.I honestly feel sorry for their Kids for their health for their life. Because WHO TOOK VACCINE AND STILL LIVE IN FEAR AND VACCINATED THEIR KIDS ARE MENTALLY  and SPIRITUALLY .DEAD.

https://banned.video/watch?id=6155d49626e134211735e283

Zhenxiang (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 19:59

11 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Fyrir okkur bjánana sem commenderum hjá Geir þá langar mig að vita hvað Ómar og Vagn halda að það séu miklar líkur á að þeir smitist?

Á tæpum 2 árum hafa 5% þjóðarinnar smitast. Í samkvæmi þar sem hópsmit kemur upp smitast um helmingur. Hvað eru miklar líkur á að þið smitist?

Ég, bjáninn, ætla lifa lífinu lifandi. Þið hinir getið lifað í ótta út í horni.

Rúnar Már Bragason, 3.12.2021 kl. 20:10

12 identicon

Takk Zhenxiang fyrir upplýsingarnar.

Ég er ekki hissa á að Zhenxiang hafi blöskrað málflutningur Ómars með allt þetta yfirlæti og einfeldni.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 20:52

13 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Nú er Ómar búinn að tapa týrunni aftur. Ég er feginn því. Um tíma var hann orðinn svo skynsamur að maður var hættur að kannast við hann. En nú hefur hinn blindi veiruótti heltekið huga hans að nýju og honum hlýtur að líða betur að kannast nú aftur við sjálfan sig.

Þorsteinn Siglaugsson, 3.12.2021 kl. 21:44

14 identicon

Rúnar, ég tel að það séu mjög miklar líkur á að ég smitist. Veiran er ekki að fara neitt og því lengur sem hún er því fleiri smitast, og það jafnvel oftar enn einu sinni eða tvisvar. En þegar ég smitast þá veit ég ekki frekar en aðrir hversu illa. Og þá vil ég frekar keppa um sjúkrarúm, öndunarvél og ummönnun við 5 en 500. Og óska mínum nánustu og kærustu þess sama.

Vagn (IP-tala skráð) 3.12.2021 kl. 21:49

15 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Þetta ævintýri tók við af stríðinu gegn hryðjuverkum. Ein glóbal krísan mun taka við af annarri. Þær eru nefnilega einkar hentug verkfæri þegar misbeita skal valdi og hafa borgaraleg réttindi af fólki. En öxin sljóvgast við notun og fólk aðlagast og hættir með tímanum að vera hrætt. Þess vegna þarf að finna upp á nýjum og nýjum hrekkjarbrögðum til hræða fólk svo hægt sé að selja þvi lausnir í skiptum fyrir frelsi sem veitir því smá sálarró um stund.

Helgi Viðar Hilmarsson, 4.12.2021 kl. 07:24

16 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Matthías.

Það er mýta að sá sem ræður yfir aulahúmor sanni þar með hann sé ekki auli.

Fyrst að þú vilt að ég eyði orðum á athugasemd þín þá get ég alveg bent þér á að ég sé ekkert samhengi á milli hennar og þess sem ég skrifaði til Geirs hér að ofan.  Átti þetta að vera andmæli við rökfærslu mína um hvernig maður þekkir bjánabelgi, og þú hafir því ákveðið að koma með dæmi um slíkan belg??

Það var alveg óþarfi Matthías, Geir er skynsemisvera og þekkir alveg bjánabelgi þó það henti hinni meintu frelsisvörn hans að umbera þá, sem og að nýta sér röksemdir þeirra.  Menn grípa þau vopn sem bjóðast þegar þeir eru í heilögu stríði fyrir hugsjónir sínar.

Eða ertu að sýna mér hvernig siðblindingi hugsar??, að veiran hafi svona tekið við að þeim kynbótasinnum sem nýttu sér vafasamt siðferði valdhafa Þriðja ríkisins til að sprauta sjúka og fatlaða, burt með alla aumingjana sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.

Hvort sem er Matthías þá skiptir það mig svo sem litlu, orðum mínum var beint af Geir verkfræðingi en ekki öllum þeim sem ákváðu að taka það til sín að þeir væru annað af tvennu, bjánabelgir eða fífl.  En ég get góðfúslega bent þér á þann skort á skarpleik að það að þegar fólk talar um fífl, sem er vel skilgreint orð í orðabók Menningarsjóðs, og bjánabelgi, sem ég veit ekki alveg hvort er vel skilgreint orð í orðabók Menningasjóðs, þá eru menn ekki um leið að ásaka aðra um að vera meint fífl eða bjánabelgi.

Það er nú bara svo Matthías.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.12.2021 kl. 13:50

17 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Rúnar, meintur bjáni að eigin sögn.

Það dugði alveg að þú játaðir uppá þig bjánaskapinn þó þú staðfestir það ekki í forsendum spurningar þinnar.  Þú áttar þig vonandi á að þetta meinta smithlutfall er tilkomið hjá þjóð sem var í höftum sóttvarna, segir ekkert til um líkur á að smitast í framtíðinni.

En ég get góðfúslega alveg svarað spurningu þinni, ég hef litið hugsað út í það, en ég fór í þriðju sprautuna til að minnka líkurnar, hvað hún virka lengi má guð vita, allavega vita lyfjafyrirtækin það ekki.

En er á meðan er.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.12.2021 kl. 13:57

18 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Báðar þessar greinar sem þú vísar í eru stórkostlegar, vonandi fáum við að sjá meira og meira af svona svona tímabærri vakningu vakandi fólks.

Kristín Inga Þormar, 4.12.2021 kl. 23:47

19 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Helgi Viðar er búinn að átta sig á þessu. Það er skrítið hvað margir eru ekki sjá að við höfum orðið fyrir efnaárás og sennilega er skýringin á því að fólk trúir því ekki er að þetta er svo galið. Nú er ekki rétti tíminn til að munnhöggvast heldur standa saman því þetta er mesta árás á mannkyn nokkurn tímann. Þeir sem standa á bak við þetta tóku æfingu með svínaflensuna 2009 og eru mættir aftur til leiks ótrúlega vel undirbúnir

Kristinn Bjarnason, 5.12.2021 kl. 10:50

20 Smámynd: Geir Ágústsson

Þetta varð að hinum líflegasta þræði. Vil ég biðja menn um að gæta hófs þótt ég kunni alveg vel að meta beittar pillur, hvort sem þær beinast að mér eða öðrum.

Í framhjáhlaupi vil ég nefna að borgaraleg óhlýðni Dana virðist vera aðeins á uppleið. Þrátt fyrir grímuskyldu er starfsfólk verslana yfirleitt grímulaust og sjaldan að það er atast í mér fyrir að vera grímulaus. Nema kannski ein kona í dag sem sá 3 ára dóttur mína grímulausa í kerru og gólaði á mig og hana um að "halda fjarlægð". Ótti fólks við hin ósprautuðu börn er formlega byrjaður.

Geir Ágústsson, 5.12.2021 kl. 20:23

21 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Geir.

Ég biðst forláts ef það fer gegn ritstjórnarstefnu þinni að tala almennt um fífl eða bjána, þegar það er ekki beint gegn neinum sérstökum. Málið og meinið er að íslenska formæðra minna notaði allskonar svona stuðandi orð yfir ýmsa hluti, núna á víst að tala um fósturrof í stað fóstureyðingar, hán í stað hann, meir að segja orðið þroskaheftur sem kom í stað fáviti, er talið meiðandi í dag.

Hið gamla góða orð fífl, sem notað er um vissa hegðun fólks eða skoðanir sem stangast augljóslega á við staðreyndir, á líka undir högg að sækja, það er vissulega ennþá litið hornauga að haga sér eins og fífl, en í stað þess að segja þú ert meira fíflið, eða helv. var ég mikið fíll þarna um kvöldið, þá þarf að tala Dagísku í löngu lítt skiljanlegu máli.

Núna á tímum falsfréttanna og staðreyndafölsunar, sem fólk kynroðalaust skammast sín ekki fyrir í hópsál samfélagsmiðlanna, þá dugar Dagíska skammt ef á að tækla allt ruglið, hvað á til dæmis að segja um fólk sem heldur því blákalt fram að Auschwitz hafi því sem næst verið hressingarhæli hvað aðbúnað varðar og vitnar í staðreyndafölsun þar sem Rauði krossinn í Sviss er borinn fyrir sem heimild??

Eða það afneitar steingervingafræðum og aldursgreiningum byggða á kolefnisgreiningum því það samræmist víst ekki trúarhugmyndum þess, og vitnar þá í hina ýmsustu vísindamenn, sem rök til að fara gegn vísindum.

Nú eða fólk sem ítrekað, þrátt fyrir leiðréttingar, leggur að jöfnu tilkynningar um grun um aukaverkanir, og staðfestar aukaverkanir??  Kannast þú eitthvað við það Geir að hafa fullyrt um líkur á hjartabólgu í ungmennum út frá niðurstöðu rannsókna ísraelskra vísindamanna sem mátu hana um einn á móti fimmtíuþúsund?? og borið hana saman við þekkta staðreynd að slíka bólga hrjáir um 1-2% kóvid sjúklinga.

Nú eða þá sem afneita tilvist farsóttarinnar, að hún sé alheimssamsæri runnið undan Bill Gates, sem auk margs annars stjórnar meinstrím fjölmiðum heimsins.  Hversu langt er á milli eyrnanna á fólki þegar það trúir slíku, hvað þá slær því fram??

Nú eða ég tæki nærtækara dæmi um þá sem trúa því að læknar hundsi lyf sem virka vegna ????, spurningarmerkin eru sett því það er eiginlega of heimskulegt að skrifa að það sé vegna þess að þeir eru undir hælnum á stórum amerískum lyfjarisum.  Sama hve það hefur oft verið hrakið að þessi meintu lyf virki til að slá á kóvid sýkingar þá trúa menn á þetta alheimssamsæri, sá ekki í gegnum hina algjöra heimsku að baki slíkra fullyrðinga, því hvernig dettur mönnum í hug í eina mínútu að auðurinn stjórnist af sömu hagsmunum og lúti einni stjórn, sem og að ríki heims, eins ólík og sundruð þau eru, stjórnist líka af þessum sömu hagsmunum??

Það er nú svo Geir, það er vandlifaður heimur þegar Dagískan er orðið hið ríkjandi tungumál, en þar sem ég er líka áhugamaður um að frelsi fólks sé ekki skert meir en þörf þykir, þá veit ég eins og er, að afneitun á staðreyndum, eins og þeim að kvikyndið sé hættulítið börnum og unglingum, eða allt sé gúddí hjá þeim sem eru yngri en 70., að það er bein leið til að skemma annars góðan málstað.

Ef ég væri áhugamaður um frelsisskerðingu þá myndi ég gera út svona málflutning.

Myndi meir að segja fjármagna sérstök fíflaverðlaun, þó ég myndi passa mig á að kalla þau eitthvað á Dagísku.

Veit eins og er að staðreyndir eru alltaf helsti óvinur alræðis.

Kveðja að austan.

Ps, skil nú reyndar ekki í miðað við stuðið að mér skyldi ekki vera núið því um nasir hvernig hundruð þúsunda gætu fallið á rúmum sólahring frá því að Kolbrún skrifaði leiðara sinn og hann var birtur, svona fyrst að fólk var á annað borð að taka til sín pílu sem var sérhönnuð handa þér.

Ómar Geirsson, 6.12.2021 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband