Ætli Birgitta Líf snúi aftur til Íslands með grímu?

Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir og tískubloggarinn Pattra Sriyanonge njóta núbl haustblíðunnar í kóngsins Kaupmannahöfn. Gott hjá þeim. Í Danmörku geta þær notið lífsins eins og það var í byrjun árs 2020. Engar grímur, skimanir, lokanir, takmarkanir, hindranir, girðingar, grímur og seinast en ekki síst: Ekki þessi þykka þoka af ótta og hræðslu.

En hvað ætli gerist í hausnum á þeim þegar þær snúa aftur til Íslands með grímu fyrir vitunum og prófunarpinna í nefinu? Verða þær fljótar að gleyma svigrúminu í Danmörku og flýta sér aftur í básana sína í íslenska fjósinu, rækilega aðgreindar og aðskildar, raktar með appi, skimaðar ef þær vilja út á gras og hræddar um að heilbrigðiskerfið fari á hliðina ef þær mæta á tónleika?

Ég veit það ekki. Íslendingar eru svo hræddir og ég fann það sjálfur í sumar enda alltaf verið að tala um smit og rakningu, heilbrigðiskerfið með endalaus neyðarköll sama hvað er lítið eða mikið að gera, stjórnmála- og embættismenn í endalausum viðtölum í öllum fjölmiðlum að tala um minnisblöð sem verða að reglugerðum, fólk þorir ekki að faðmast eða takast í hendur og veiran endalaust á vörum allra. Auðvitað smitar óttinn frá sér, og jafnvel meira en veira, óháð tölfræði um lífslíkur, líkur á alvarlegum veikindum og öðrum staðreyndum. Þetta er sálrænt fyrst og fremst. 

Fyrir mig að snúa aftur frá Íslandi til Danmerkur, í afslappaðra umhverfi þar sem læknar tala um að þeir hafi ágæt tök á aðstæðum þótt allt hafi verið að opna meira og meira, var léttir. Hvernig er að fara í hina áttina? Ég veit það ekki. Kannski Birgitta Líf og Pattra ræði það eitthvað við heimkomu.


mbl.is Birgitta og Pattra njóta í Köben
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fjölmiðlar og 3-eykið á íslandi  eiga að skammast sín.

Þeir mörgu bloggarar og Mogga-bloggið eiga hinsvegar heiður skilið.

Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.9.2021 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband