Sóttkvíarþrjótur

Langar að deila eftirfarandi skeyti í fórum mínum (með leyfi höfundar):

Ég fór til Íslands nýlega og átti að vera í 5 daga sóttkví. Ég stóð við það fyrir utan að fara í nokkur skipti í búðina, heimsækja vin og heilsa fólki á ganginum. Ég þurfti að passa mig vel á því hverja ég hitti til að vera ekki klagaður til lögreglunnar. Annars var þetta bara fínt. Ég hafði nóg að gera og nóg að borða og drekka (af því ég fór að versla þegar mig vantaði eitthvað).

Já, það er vissara að passa sig þegar annar hver maður er orðinn útsendari ókjörinna embættismanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Í Þýskalandi er lítill en harðsnúinn hópur sem kallar sig "Querdenker", "þverakalla". Þetta fólk berst með kjafti og klóm gegn ríkjandi skoðunum um ýmis efni, svo sem loftslagsmál, grímunotkun og bólusetningu gegn Covid, svo að eitthvað sé nefnt. Þrátt fyrir mótmælagöngur o.fl. aðgerðir hefur því þó lítið orðið ágengt. Virðist þetta hafa lagst þungt á suma hinna öfgafyllstu. Í gær kom einn þeirra inn á bensínstöð, ungur maður sem þar var fyrir bað hann að setja upp grímu. Aðkomumaður fór í burtu, en kom aftur með byssu og skaut unga manninn til bana.

Skoðanafrelsið eru grundvallar mannréttindi, en hafa skal í huga að því fylgir ábyrgð. 

Hörður Þormar, 22.9.2021 kl. 21:09

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Rétt.

Geir Ágústsson, 22.9.2021 kl. 21:19

3 identicon

Sæll Geir,
Við búum við Medical Fasisma hér á landi, svo og þar sem að sóttkvíarþrjótur hefur verið að fara með ósannindi í þessum ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlum.
Heilbrigðisstarfsfólk hefur verið í því að segja við heilbrigt fólk, að það sé veikt (eða smitað) með bæði óáreiðalegum og ónákvæmum PCR skimunum til þess eins þá að halda uppi farsóttarstiginu og til að koma inn öllum þessum hræðsluáróðri. 
Ofan á allt þegar að dómstólar í Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Portúgal hafa allir úrskurðað þessar PCR skimanir séu alls EKKI við hæfi að nota til að greina covid-19, svo og hefur þetta PCR-drasl EKKI nein lagalegan og vísindalegan grundvöll til að byggja á varðandi allar þessar lokanir, samkomutakmarkanir o.s.frv. Þar sem að EKKI er til nein Gold Standard yfir þessar PCR skimanir eða PCR smit greiningar. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)auk þess staðfest að þessi PCR skimanir eða PCR smit greiningar séu gallaðar og ekki áreiðanlegar. En þetta er eitthvað sem að hann sóttkvíarþrjótur passar mjög vel uppá að minnast ekki á.     

Fyrir utan það þá eru þessi PCR próf sérstaklega keyrð hér á 40 snúningum og/eða keyrð yfir 35 snúninga hringrásar mögnunar þröskuldinn til þess eins að geta framkallað allt að því 97% falskar niðurstöður(Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https://doi.org/10.1093/cid/ciaa1491), eða svo þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðar hér geta verið i því að öskra smit, smit og aftur smit. Hér hafa heilbrigðisyfirvöld verið í því að senda heilbrigt fólk í bæði sóttkví og einangrun samkvæmt bæði óáreiðalegum og ónákvæmum PCR skimunum, sem eru reyndar þekktar fyrir falskar jákvæðar niðurstöður. Hér á landi þá hafa heilbrigðisyfirvöld passað mjög vel uppá að gera EKKI eina einustu könnun varðandi allar þessar fölsku jákvæðu niðurstöður.    
Aðalmálið var ekki bara að gera hann Kára og Íslenska erfðargreiningu/Amgen ennþá ríkari, heldur einnig til þess að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum, sem að auk þess virka ekki neitt. Bólusettir halda áfram að smita bólusetta, og því er ekki til neitt sem heitir hjarðónæmi eftir allar þessar svokölluðu bólusetningar.
Eins og segir þá hafa heilbrigðisyfirvöld hér verið í því að segja við heilbrigt fólk, að það sé veikt (eða smitað) eða allt til þess að halda uppi farsóttarstiginu og til að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum í tilraunaskyni.
KV.




Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.9.2021 kl. 11:19

4 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.9.2021 kl. 11:48

5 identicon

Nýjasta þvingunin í Þýskalandi þar sem óbólusettir fá ekki bætur fyrir að vera sendir í sóttkví er mjög óeðlileg í alla staði. Ég hef ekki séð neinar afgerandi tölur um að þessi svokölluðu bóluefni virki nokkurn skapaðan hlut á þennann vírus. Það eru margar sannanir fyrir því að þessar sprautur eru stórhættulegar.

Ég er farinn að hallast að því að þeir sem ráða ferðinni hér og eru ekki bara að ráðleggja fólki að taka þetta eitur heldur beita þvingunum líka séu mestu glæpamenn Íslands fyrr og síðar. Maður sem þjóðin tekur mark á auglýsir eitrið sem nammi. Að ráðast á börnin toppar geiðveikina.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 23.9.2021 kl. 11:53

6 identicon

Sæll Kristinn,

"Maður sem þjóðin tekur mark á auglýsir eitrið sem nammi. Að ráðast á börnin toppar geðveikina."

Eitt er víst að hann Kári karlinn vill EKKI bera neina fjárhagslega ábyrgð fyrir öllum þessum svokölluðu bólusetningum í tilraunarskyni. Nú og ég stórlega efast um einhver geti fengið hann Kára til þessa að skrifa undir fjárhagslegri ábyrgð fyrir öllum þessum svokölluðu bólusetningum, er hann hefur reyndar mælt með, svo og þar sem hann kannast örugglega við hvað aðrir vísindamenn og læknar hafa verið að segja:  


Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.9.2021 kl. 12:36

7 identicon



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.9.2021 kl. 15:19

8 identicon

Þorsteinn, þitt framlag hefur bjargað mannslífum.

Það er passað upp á að almenningur fái ekki vitneskju um skoðanir manna eins og Luc af því að það gæti dregið úr ásókn í sprautur. Þeir sem opna augun munu sjá að það er engin björgun í sprautum heldur lífshætta. Hvernig staðið er að því að stýra fólki út í opinn dauðann og gera samninga við lyfjafyrirtæki sem þola ekki dagsljós gerir mig skelkaðan.

Samsæri Ruv,stjórnmálamanna,sóttvarnarlæknis og fl.er það skuggalegasta sem ég hef orðið vitni að.

Á bara að halda áfram að drepa fólk?

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 24.9.2021 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband