Kosningar fá blaðamenn til að vinna vinnuna sína

Forsetaframboð ýmissa einstaklinga eru að fara eins og hreinsandi eldur um marga afkima íslensks samfélags. Menn eru látnir svara fyrir rangar ákvarðanir á ögurstundu, gerðir minnislausir í útsendingu og núna er ringulreiðin innan hinnar íslensku stjórnsýslu líka komin í sviðsljósið, í þessu tilviki innan Orkustofnunar en þar tel ég víst að ekkert óvenjulegt sé á ferð þótt það sé óeðlilegt. Maður fær það miklu frekar á tilfinninguna að innan hins opinbera ríki algjör glundroði sem kostar skattgreiðendur óhemju tíma og fjár.

Til dæmis las ég á einum stað um raunir manns sem hafði lengi haft íbúð í útleigu en skyndilega fengu leigjendur hans engar húsaleigubætur því einhver þriðji aðili hafði skráð lögheimili sitt á íbúðina, og gat það alveg án afskipta eiganda. Við tók mikið flakk á milli Þjóðskrár, Hagstofu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ríkisins sem tala ekki saman, deila ekki upplýsingum og vísa hver á aðra. 

(Góður grikkur gegn einhverjum sem manni líkar illa við gæti þá verið að skrá lögheimili sitt á heimili hans og baka honum allskyns vandræði í samskiptum hans við hið opinbera.)

Í viðleitni sinni til að þrýsta aðeins á frambjóðendur eru blaðamenn að byrja vinna vinnuna sína. Það er gott. Enn betra væri að þeir gerðu það allan ársins hring og ekki bara á tímum kosningabaráttu. En það er kannski óhófleg bjartsýni. Sjáum hvað setur.


mbl.is Ráðuneytið kannast ekki við samráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband