Fjögurra skammta lágmark

Forráðamenn heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Katar á næsta ári íhuga að gera bólusetningu fyrir kórónuveirunni að sérstakri kröfu fyrir leikmenn sem taka þátt á mótinu. Í flestum tilvikum þýðir það í dag tvær sprautur af frekar lítið rannsökuðum efnum sem virka frekar illa og talað um að sprauta aftur á 5-8 mánaða fresti til ótilgreindrar framtíðar. Í Ísrael telstu ekki fullsprautaður nema hafa fengið þriðju sprautuna, og sú fjórða er handan við hornið.

Fari svo að tal um ítrekaðar sprautur um ókomna framtíð verði krafan til að mega gera hitt og þetta þá munu á þeim 14 mánuðum sem eru í heimsmeistaramótið í fótbolta þurfa að fara um tvær sprautur í viðbót í leikmenn sem hafa fengið tvær. Fjórar sprautur, kannski fimm ef einhverjir leikmenn eru þegar með útrunnar sprautur og á leið í þriðju. 

Hverri einustu sprautu fylgja líkur á alvarlegum aukaverkunum sem taka leikmenn einfaldlega úr umferð. Þessu hafa íslenskir knattspyrnumenn lent í: Sprauta fyrst og detta svo úr leik. Þessar líkur aukast með hverri sprautu. 

Textar eins og þessi frá ísraelskum yfirvöldum fara að birtast víðar:

Effective 1.10.2021, the validity of the Green Pass for those vaccinated with the third dose shall be updated and extended for up to six months from the date of receiving the third dose of the vaccine. The validity of the Pass for those vaccinated with two doses or who have recovered from COVID-19 shall be extended for up to six months from the date of receiving the second dose or recovery, respectively.

Í stuttu máli: Sprauta á 6 mánaða fresti ef þú vilt halda í frelsispappírana þína.

Taldir þig vera búinn að gera þitt með því að þiggja nálina tvisvar? Svo er ekki. Þetta er rétt að byrja nema almenningur segi þessu að stoppa.


mbl.is Verður bólusetning skilyrði á HM?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og fjölmargir fræðimenn hafa komið fram og sagt að bólupassin snúist ekki um heilsu, heldur um eftirlit, stjórnun og vald til þess að fresissvipta fólk. Og næsta skref sem er í þróun á að vera að útrýma öllum greiðsluleiðum (útrýma fyrst seðla og mynt) aðra en miðstýrð ríkis-rafmynt. Slík "stjórnun" gefur óendanlega möguleika á eftirliti og kúgunar. 

Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.9.2021 kl. 11:30

2 identicon

Sæll Geir,
Heilbrigðisyfirvöld og lyfja -og bóluefnafyrirtækin vilja halda þessum svokölluðu bólusetningum svona áfram og áfram, svo og þegja algjörlega yfir öllum alvarlegum aukaverkunum og dauðsföllum eftir þessar bólusetningar.
KV. 


Open Photo

"24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots Reported in European Union’s Database of Adverse Drug Reactions BRIAN SHILHAVY, EDITOR HEALTH IMPACT NEWS The European Union database of suspected drug reaction reports is EudraVigilance, and they are now reporting 24,526 fatalities, and 2,317,495 injuries, following COVID-19 injections. A Health Impact News subscriber from Europe reminded us that this database maintained at EudraVigilance is only for countries in Europe who are part of the European Union (EU), which comprises 27 countries. The total number of countries in Europe is much higher, almost twice as many, numbering around 50. (There are some differences of opinion as to which countries are technically part of Europe.) So as high as these numbers are, they do NOT reflect all of Europe. The actual number in Europe who are reported dead or injured following COVID-19 shots would be much higher than what we are reporting here.
The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)
https://dap.ema.europa.eu/analytics/saw.dll?PortalPages&PortalPath=%2Fshared%2FPHV%20DAP%2F_portal%2FDAP&Action=Navigate&P0=1&P1=eq&P2=%22Line%20Listing%20Objects%22.%22Substance%20High%20Level%20Code%22&P3=1+40983312
COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH https://dap.ema.europa.eu/analytics/saw.dll?PortalPages&PortalPath=%2Fshared%2FPHV%20DAP%2F_portal%2FDAP&Action=Navigate&P0=1&P1=eq&P2=%22Line%20Listing%20Objects%22.%22Substance%20High%20Level%20Code%22&P3=1+42325700
COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19) https://dap.ema.europa.eu/analytics/saw.dll?PortalPages&PortalPath=%2Fshared%2FPHV%20DAP%2F_portal%2FDAP&Action=Navigate&P0=1&P1=eq&P2=%22Line%20Listing%20Objects%22.%22Substance%20High%20Level%20Code%22&P3=1+40995439
COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S) https://dap.ema.europa.eu/analyticsSOAP/saw.dll?PortalPages&PortalPath=%2Fshared%2FPHV%20DAP%2F_portal%2FDAP&Action=Navigate&P0=1&P1=eq&P2=%22Line%20Listing%20Objects%22.%22Substance%20High%20Level%20Code%22&P3=1+42287887

From the total of injuries recorded, almost half of them (1,126,869) are serious injuries. " https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

Open Photo

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.9.2021 kl. 12:20

3 identicon

Hvaða lit munu þeir vilja a ísaumaða stjörnu mína? Ef það er grænn, þá getur maður samþykkt það,  því reikna má með að tengsl fæsér og Ísrael séu græn.

Finnbogi Karlsson (IP-tala skráð) 20.9.2021 kl. 14:47

4 identicon

Sæll Finnbogi,

Þeir eru búnir að skipuleggja þetta eitthvað, svo og næst verður það stafrænt númer eða nafnnúmer(Digital ID).
 



Þeir ætla að reyna halda þessum svokölluðu bólusetningum svona áfram til koma þessum Digital ID eða númerum inn á fólk, svo og þar sem að þessar svokölluðu bólusetningar skapa svo mikinn gróða fyrir öll þessi lyfja- og bóluefnafyrirtæki.



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.9.2021 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband