Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016
Miðvikudagur, 31. ágúst 2016
Hvað er löglegt í ESB?
Það virðist vefjast fyrir bandarískum stórfyrirtækjum hvaða lög gilda í ESB. Einstök ríki virðast ekki mega gera samninga sem fullvalda ríki. Þau virðast heldur ekki vita hvaða lög gilda í ESB.
Löggjöf ESB er sennilega þannig skrúfuð saman að allt er (hugsanlega) ólöglegt nema það sem hefur hlotið sérstaka blessun ESB. Það má bjarga bönkum fyrir skattfé en ekki lokka fyrirtæki til tiltekins ríkis með afslætti af sköttum. ESB er almennt ekki hrifið af því að einstaka ríki ráði því sjálf hvað skattheimtan er mikil.
Sumir vilja eflaust meina að viðhorf ESB snúi að mismunun: Ekki má skattleggja lögaðila á mismunandi hátt innan sama ríkis. En það má niðurgreiða landbúnað. Það má niðurgreiða fiskveiðar. Það má borga kröfuhöfum banka með fé skattgreiðenda. Það má eyða skattfé í hvað sem er en ekki gefa afslátt af innheimtu þess.
ESB virðist vera komið í óopinbert viðskiptastríð við Bandaríkin. Slíkt endar illa.
"When goods don't cross borders, soldiers will" sagði eitt sinn vitur maður.
Vonum samt ekki.
Fleiri mál ESB gegn bandarískum risum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 29. ágúst 2016
Ný vinstristjórn gýs bráðum
Nú virðist eldfjallið Katla eitthvað vera að rumska. Miðað við reynslu seinustu 1000 ára á hún inni eitt gott gos núna eða í náinni framtíð. Það verður væntanlega svakalegur atburður.
Það mætti eiginlega segja að eldgos séu einskonar vinstristjórn. Samlíkingin nær til margra atriða.
Í fyrsta lagi fara allir á tærnar og byrja að forða verðmætum sínum.
Í öðru lagi fylgir hvoru tveggja eyðilegging á verðmætum. Til að endurheimta þau verðmæti þarf að eyða miklu fé sem að öðru leyti hefði farið í fjárfestingar eða neyslu sem einhver hefði gagn og gaman af (en ekki bara í að laga það sem virkaði áður).
Í þriðja lagi fær Ísland athygli utan landsteinana. Eldgosið spýr gjósku sem tekið er eftir. Vinstristjórnin sendir umsóknir í ríkjasambönd og gerir vafasama samninga um greiðslu á ólögmætum kröfum.
Í fjórða lagi fagna vinstrisinnaðir hagfræðingar allri eyðileggingunni, sem birtist m.a. í þeirri furðufullyrðingu bandaríska hagfræðingsins (og Nóbelsverðlaunahafans) Paul Krugman sem sagði að hagkerfi Bandaríkjanna hefði gott af ógn af árás geimvera á Jörðina (því þá færi af stað vopnakapphlaup fyrir lánað og nýprentað fé).
Ef Íslendingar kjósa með ákveðnum hætti í næstu kosningum er mögulegt að á Ísland herji bæði Kötlugos og vinstristjórn á sama tíma. Eyðileggingin yrði gríðarleg og fagnaðarlæti vinstrimanna sömuleiðis.
Við hin megum hins vegar vona það besta og að bara annað hvort verði raunin.
Jarðskjálftahrina í Kötluöskjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 28. ágúst 2016
Bannið er oft vandamálið
Úti um allan heim á sér stað framleiðsla, sala og kaup á einhverju ólöglegu. Listinn yfir það sem er bannað að stunda viðskipti með en viðskipti eru engu að síður stunduð með er langur og teygir sig frá hörðum fíkniefnum til beina úr einhverjum dýrum.
Menn bregðast yfirleitt við viðskiptum með eitthvað óæskilegt með fyrirsjáanlegum hætti: Að bannað viðskiptin.
Oftar en ekki verður þá til nýtt vandamál og stærra. Bannið verður vandamálið.
Sem dæmi má nefna fílabein. Víða eru of margir fílar og þeir skotnir til að halda fjölgun þeirra í skefjum. Á öðrum svæðum eru þeir í útrýmingarhættu. Í stað þess að heimsmarkaðurinn sé fullur af ofgnótt af fílabeini til sölu á löglegan hátt eru beinin brennd. Veiðiþjóðar sjá þá verðlagið rísa til himinhæða og leggja á sig mikla áhættu til að útvega sér bein og selja fyrir mikinn ágóða.
Nú má vel vera að siðprúðir Vesturlandabúar sofi rólegir á nóttunni við að vita af banni á einhverju og endalausum (en yfirleitt vonlausum) eltingaleik lögreglu við þá sem brjóta það bann. Bannið er hins vegar oftar en ekki aðalvandamálið.
Gjalda með blóði fyrir brotin loforð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.8.2016 kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. ágúst 2016
Neytendur ráða laununum, ekki stjórnendur
Oft er mönnum tíðrætt um launamun karla og kvenna. Gott og vel, oft er hægt að greina launamun. Hann hefur hins vegar sínar ástæður.
Neytendur ráða því hver fær hvað í laun. Hér er nærtækt að líta á kvikmyndastjörnur. Þær sem skófla peningum inn í kassa framleiðenda fá hærri laun en þeir sem gera það ekki. Einstaklingur sem sogar ítrekað 100 milljónir inn í aðgangseyri fær meira í laun en sá sem sogar að jafnaði 80 milljónir inn.
En hvað með skrifstofufólk sem situr 8 tíma á dag á skrifstofu? Hér reyna menn að flækja málin með því að leiðrétta fyrir hinu og þessu, svo sem menntun og aldri, en að jafnaði er það sá sem er með meiri verðmætaskapandi þekkingu sem fær meira í laun. Konur líða hér oft fyrir barneignir. Fjarvera vegna þeirra heldur þeim utan við vinnumarkaðinn og hægir þar með á öflun verðmætaskapandi reynslu og þekkingar. Sumir kalla þetta mismunun. Hin raunverulega mismunun væri fólgin í því að borga minna fyrir meiri verðmætasköpun en minni. Tölfræðin leiðir raunar í ljós að barnlausar konur en betur launaðar en barnlausir karlmenn með sama bakgrunn, menntun og svo framvegis.
Frjáls markaður er afstöðulaus gagnvart kyni, húðlit, ásetningi, menntun og félagslegum bakgrunni. Hann verðlaunar þá sem framleiða verðmæti fyrir neytendur í hlutfalli við þá verðmætasköpun.
Munar 2,3 milljörðum á árslaununum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 26. ágúst 2016
Þingmaður með bein í nefinu
Ég vil hvetja alla með kosningarétt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til að styðja Sigríði Á. Andersen og setja hana hátt á lista, að lágmarki í 2. sætið. Hún hefur sýnt það og sannað að hún er þingmaður með bein í nefinu sem fylgir sannfæringu sinni. Um leið er hún ákaflega viðkunnaleg. Hvað geta kjósendur beðið um fleira?
Um leið vil ég hvetja kjósendur í sama prófkjöri til að styðja Guðmund Egdarsson í 5. sætið.
Í suðvesturkjördæmi ættu Sjálfstæðismenn hiklaust að kjósa Óla Björn Kárason í 3. sæti. Hann hefur stundum komið inn á Alþingi sem varaþingmaður og jafnan gustar um hann þegar hann flettir ofan af froðunni sem viðgengst á löggjafarsamkomu Íslendinga.
Margir aðrir góðir og frjálshuga einstaklingar eru í framboði hjá Sjálfstæðisflokknum en þessir þrír sem ég hef nefnt hef ég persónulegan áhuga á að fái umbeðin sæti og komist svo vonandi á Alþingi. Ekki veitir af.
Sigríður sækist eftir 2. sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 25. ágúst 2016
Er ríkiseign ekki þjóðareign? Ónei
Reykjavík innheimtir gjald fyrir ýmislegt, t.d. afnot af landi borgarinnar. Þetta kemur sumum á óvart. Sumir halda að eigur hins opinbera séu um leið eigur skattgreiðenda - sameign, þjóðareign eða álíka.
Það er gott að Reykjavík leiðréttir þennan misskilning með gjaldskrá sinni. Hún rukkar einfaldlega skattgreiðendur sína og annarra sveitarfélaga um afnot af landi sínu ef þannig liggur á borgaryfirvöldum. Það verður ekki skýrara hver á hvað - borgin annars vegar og skattgreiðendur hins vegar.
Samt eru þeir til sem vilja meina að sumt eigi að vera sameign þjóðarinnar og um leið að sú eign verði falin hinu opinbera til umráða og yfirráða. Þar ruglast menn. Sameign er eitthvað annað en ríkiseign. Sameign er t.d. andrúmsloftið og íslenska tungumálið sem allir Íslendingar hafa afnot af. Ríkiseign er t.d. Austurvöllur.
Ruglum ekki saman sameign og ríkiseign og vörum okkur á því að heimta ríkiseignarhald á því sem við teljum að allir eigi að hafa afnot af.
Rukka ekki gjald vegna mótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 23. ágúst 2016
Mokað í skurði og málið er dautt
Það er margbúið að benda á hvernig megi loka þessari gróðurhúsalofttegundaumræðu á Íslandi í eitt skipti fyrir öll en a.m.k. til ársins 2030:
"Ísland getur því samkvæmt alþjóðlegum loftslagssáttmálum minnkað losun sína um 72% með því að moka ofan í alla framræsluskurði landsins. Aðeins um 15% af hinu framræsta landi er talið nýtt til landbúnaðar." (Vefþjóðviljinn)
Ráðuneytið getur þá farið að snúa sér að einhverju gagnlegra eins og eigin lokun og flutningi á verkefnum yfir í önnur ráðuneyti (sé þörf á því).
Svarar ekki bréfi um loftslagsaðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 23. ágúst 2016
Sjálfhverfir fjölmiðlar hitta naglann á höfuðið
Fjölmiðlafólk lítur oft stórt á sig. Það telur sig vera einhvers konar lýðræðisafl sem tryggir að sagt sé satt og rétt frá og veitir yfirvöldum aðhald. Stundum er þetta rétt, stundum ekki. Oftar en ekki er fjölmiðlafólk málpípa viðtekinna skoðana, stundum ekki.
Stundum hittir fjölmiðlafólk samt naglann á höfuðið. Í yfirlýsingu Útvarps Sögu, ÍNN, miðlum Hringbrautar, Símans og 365 miðla er bent á að virðisaukaskattur af starfsemi þeirra komi niður á rekstri þeirra og að samkeppni við ríkisfyrirtæki á opinberum niðurgreiðslum sé hamlandi fyrir þá. Skiljanlega. En gildir ekki sama lögmál um alla aðra starfsemi á Íslandi? Jú, vissulega. En taka fjölmiðlar einhvern tímann upp hanskann fyrir skattgreiðendur? Það er sjaldgæft, svo vægt sé til orða tekið.
Yfirlýsingin hittir vissulega naglann á höfuðið þegar kemur að áhrifum skatta á rekstur (almennt) og samkeppni við opinbert fyrirbæri. Hún er hins vegar ákaflega sjálfhverf - eins og fjölmiðlafólk sjálft.
Fjölmiðlar vilja sjá breytingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. ágúst 2016
Ríkiseinokun vs. markaðsframleiðsla
Föstudagur, 19. ágúst 2016
Öfgakenndar sveiflur eru ekkert markaðslögmál
Margir halda ranglega að frjálst markaðshagkerfi sé einhvern veginn óstöðugra en lokað hagkerfi. Það er ekki rétt. Í frjálsu markaðshagkerfi, þar sem einkaaðilar sjá um að fjárfesta, spara og eyða og þar sem ríkisvaldið heldur sig við fá og afmörkuð verkefni (peningaútgáfa ekki þar á meðal) má búast við samfelldri aukningu fjárfestinga sem leiðir til samfelldrar lífskjarabóta fyrir alla.
Þá fyrst að ríkisvaldið er duglegt að flytja fé úr einum vasa í annan, setja hafsjó af reglum og framleiða peninga er hætt við að sveiflur verði til og verði öfgakenndar.
Seinasta hrun var bankahrun. Þarseinasta hrun var hrun hlutabréfa í tæknigeiranum. Næsta hrun verður ríkissjóðahrun. Kannski læra menn þá að vantreysta stjórnmálamönnum fyrir peningaútgáfu og krefjast þess að hún snúi aftur á hinn frjálsa markað þar sem hún á heima ásamt annarri framleiðslu og þjónustu.
Áfram útsett fyrir öfgakenndum sveiflum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |