Frelsissprautan

Þessi svokölluðu bóluefni gegn COVID-19 hafa reynst lækning verri en sjúkdómurinn.

Fyrst áttu þau að veita 90% vörn gegn smiti og gegn því að smita aðra.

Þegar í ljós kom að þeir sprautuðu smituðust og smituðu eins og aðrir þá áttu sprauturnar að draga úr alvarlegum veikindum.

Þegar kom í ljós að meirihluti sjúklinga á spítala með COVID-19 voru sprautaðir þá var sú tölfræði fjarlægð og sprauturnar taldar hafa komið í veg fyrir ennþá fleiri innlagnir á spítala.

Og nú er komið í ljós að sprauturnar beinlínis veikja ónæmiskerfið. Eru verri en engar. Fjara út og skilja eftir sig sviðna jörð. 

Á sama tíma tók veiran skæða sig til og stökkbreyttist í að verða vægari en smitast meira. Dæmigerð hegðun nýrrar veiru sem reynir að halda sér á lífi og drepa ekki of marga sem bera hana áfram. Það eru helst þeir sem hafa veikt í sér ónæmiskerfið með ýmsum aðferðum (t.d. að hanga of mikið heima, spritta sig og umhverfi sitt of mikið og sprauta í sig efnum) sem smitast og veikjast alvarlega, bæði af veiru og allskyns öðru.

Þetta vitum við núna eftir 3 ár.

En samt er ennþá verið að reyna halda því fram að það sé sprautunum að þakka að einhverju megi aflétta. Ríkisútvarp útvalinna viðhorfa (RÚV) býður okkur til dæmis upp á þennan þvætting í dag:

En er sjúkdómurinn ekki eins skaðlegur eða eru það bólusetningarnar sem draga úr alvarleikanum?

„Við teljum það nú vera bólusetningarnar. Þjóðin er mjög vel bólusett. Það er alveg greinilegt að þetta er allt öðru vísi sjúkdómsmynd heldur en var í upphafi. Ég myndi nú ekki bjóða í það hvernig staðan væri ef við hefðum ekki fengið bóluefni þegar við fengum það,“ segir Hildur [Helgadóttir, formaður farsóttarnefndar Landspítalans].

Einmitt það já? Er þetta frelsissprautan sem átti að gera yfirvöldum kleift að létta öllum takmörkunum en enduðu bara á að valda umframdauðsföllum og veikindum? 

Hildur þessi, sem fær beinlínis borgað fyrir að halda sér uppfærðri í farsóttum og veirusýkingum býður ekki í það hvernig staðan væri án sprautnanna. Hún þarf ekki að bjóða neitt. Gögnin eru til staðar. Það er enginn vandi að bera saman hlutfall sprautaðra og fjölda umframdauðsfalla. Myndin er ekki svart-hvít (ríki eins og Svíþjóð eru mikið sprautuð en hafa fá umframdauðsföll, svo dæmi sé tekið) en hún styður heldur ekki orð formannsins um að margar sprautur séu réttlæting fyrir afléttingu aðgerða.

En maður lætur svo sem ekkert koma sér á óvart. Heldur ekki það að í mars 2023 er ennþá verið að veifa sprautum fyrir framan fólk og segja því að taka þær í skiptum fyrir mannréttindi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Með því að vafra aðeins á netinu í upphafi faraldurs þá komst ég að því að það væru sterkar líkur á að með sprauturnar væri betra heima setið en af stað farið. Fyrir mér bendir allt til að þetta hafi verið gert vísvitandi en í hvaða tilgangi er mér hulin ráðgáta.

Að yfirvöld geri bókstaflega ekkert í því að komast til botns í þessu sprauturugli og fá svör hvort þetta sé þess virði að endurtaka eða hvort þetta sé stórhættulegt bendir til að það sé verið að fela eitthvað. Á meðan flestar rannsóknir sýna að sprauturnar séu mun hættulegri en vírusinn þá er haldið áfram að troða þessu í fólk.

Lifandi vísindi voru að láta okkur vita að mættum eiga von á svartadauða á næstunni en að við gætum huggað okkur við að vísindamenn eru á góðri leið með nýtt bóluefni við því.

Kristinn Bjarnason, 15.3.2023 kl. 17:07

2 Smámynd: Loncexter

Einn góður frændi minn bjó til bóluefni við heimsku fyrir 33 árum síðan.

Á leynilegum fundi stjórnvalda var ákveðið að banna framleiðslu þess.

Annars gæti fólk átt það til að kjósa rétt í næstu kosningum.

Stjórnmálin hafa ekkert breyst síðan þá, því miður.

Loncexter, 15.3.2023 kl. 18:20

3 identicon

Ef þetta ágæta bóluefni við heimsku hefði verið búið til, þá hefði þessi grein líklega ekki verið skrifuð.

halldór Halldórsson (IP-tala skráð) 16.3.2023 kl. 09:19

4 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Ég er ekki sammála síðasta ræðumanni, því ég tel að ef þetta umrædda bóluefni við heimsku hefði verið búið til að þá hefði það ekki haft nein áhrif á skrifin hér að ofan, nema hans eigin sem hefðu ekki litið dagsins ljós.

Daníel Sigurðsson, 16.3.2023 kl. 22:19

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Daníel,

Vertu ekkert að spá í svona sneiðum. Eðlilega líður mörgum eins og að þeir hafi látið plata sig og það er skiljanlegt og þarf að finna sinn farveg.

Geir Ágústsson, 17.3.2023 kl. 08:04

6 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Fá umframdauðsföll í Svíþjóð þrátt fyrir margar sprautur skýrist líkleg af því að Svíar vor flestir búnir að taka sóttina áður en þeir voru sprautaðir. Sóttin virkar svipað og bólusetning gegn mRNA sprautunum.

Guðmundur Jónsson, 18.3.2023 kl. 21:44

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Guðmundur,

Athyglisvert. Hvar get ég lesið meira um þetta? Google er væntanlega ekki að fara hjálpa mér mikið.

Geir Ágústsson, 19.3.2023 kl. 10:54

8 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Geir.  Ef bóluefni virka til að kenna ónæmiskerfinu að bregðast við veiru þá virkar sýking líka til að bergðast við sömu "eða líkri" veiru. Líkaminn þarf að bregðast hratt við óæskilegri framleiðslu sýktra fruma á gaddpróteini í báðum tilfellum. Þetta er bara ályktun sem ég dreg af gögnunum og minni þekking á þessu sviði sem virðist raunar hafa staðið framar flestum eða öllum íslenskum læknum. 

Guðmundur Jónsson, 19.3.2023 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband