Hin mörgu orð fyrir stofufangelsi

Eitt má sóttvarnarlæknir Íslands (sá eini) eiga: Hann er afskaplega lipur nýyrðasmiður.

Smitgát og skimunarsóttkví eru samheiti stofufangelsis án þess að vekja sömu hughrif. 

Örvunarskammtur hljómar eins og svolítið kitl í tærnar og manni dettur ekki strax í hug þriðja eða fjórða sprautan full af lítið rannsökuðum tilraunaefnum sem hafa valdið fjölda manns alvarlegum skaða og jafnvel örorku og dauða, meðal annars ungu og heilbrigðu fólki sem stafaði aldrei ógn af veiru.

Að tala um sóttvarnir höfðar til hins varfærna og tillitssama borgara sem vill alls ekki blása veiru inn á Landakot eins og starfsfólkið þar gerði. Engum dettur í hug að sóttvarnir fyrir mars 2020 snérust um að vernda viðkvæma og auðvitað halda sig heima ef maður er með hor og hósta en að samfélagið gengi að öðru leyti áfram. Orðinu var haldið óbreyttu en merking þess er gjörólík. Í raun má kalla slíkt nýyrðasmíði eða endurskilgreiningu í hið minnsta.

Toppurinn er svo orðið bólusetning. Áður fyrr var það orð notað um bóluefni, þ.e. 

efni (óvirkir sýklar eða veira) sem framkallar ónæmi gegn smitsjúkdómi með því að örva myndun mótefnis í líkamanum (Íslensk nútímamálsorðabók)

Orðið vísar til þess að fyrsta bóluefnið var fundið upp í tengslum við bólusótt.  

Þessi skilgreining passar ekki við mRNA-efnin frá Pfizer, Moderna og fleirum. Raunar gildir þessi skilgreining um mjög fá af þeim efnum sem notuð eru til að laða fram ónæmi í fólki. Það vantar einfaldlega viðurkennt orð fyrir efnin frá Pfizer, Moderna og fleirum. Um leið á ekki að tala um bólusetningar því þetta eru ekki bóluefni. Þetta eru efni á tilraunastigi. Tilraunasprautur er því kannski gott heiti. 

Annars vil ég óska forseta Íslands góðs bata í sóttkví sinni og vona að hann jafni sig án þess að draga allt heimilishaldið í bólið.

Eða nei, bíddu nú við, hann er ekki lasinn! Hann er bara í stofufangelsi.


mbl.is Forsetinn í smitgát næstu daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Orðið sem þú leitar eð er "eiturlyf."

Passar, sýnist mér.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.10.2021 kl. 13:17

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Líftæknilyf.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.10.2021 kl. 13:32

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ef ég skil hugsunina á bak við þessi m(essenger)RNA tilraunalyf, þá er hún sú að sprauta gaddaprótíninu í tilraunadýrin og láta ónæmiskerfi þeirra læra að þekkja þetta prótín. Síðan þegar sjálf COVID-veiran herjar á líkamann, sem hún gerir einmitt með þessu gaddaprótíni, þá kannast ónæmiskerfið við óvininn og er fljótari að bregðast við.

Samt er þetta furðulegt. Ónæmiskerfi líkamans er varnarher hans. Hefur einhver heyrt um hernaðartækni í stríði, sem felst í að hleypa óvininum bara inn fyrir varnarmúrana og í raun bara draga hann inn fyrir, því þá verði auðveldara að berjast við hann í næsta stríði?

Ég er hræddur um að ef einhver herforingi í hvaða her sem er myndi stinga upp á svona lausn, þá yrði hann fljótt rekinn og læstur inni á geðveikrahæli.

Theódór Norðkvist, 4.10.2021 kl. 15:07

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Theodór.

Það er svo sem alveg þekkt í hernaði að æfa fyrir vopn óvinarins.

Sem dæmi býr bandaríski flugherinn yfir fjölmörgum eintökum mismunandi tegunda af rússneskum herþotum sem þeim hefur áskotnast í gegnum tíðina með ýmsum hætti (liðhlaup, herfang, þýfi o.fl.). Saman mynda þessar rússnesku herþotur háleynilega flugsveit sem er notuð markvisst til að þjálfa bandaríska herflugmenn í loftbardögum gegn þeim.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.10.2021 kl. 15:13

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Munurinn er að það eru bandarískir flugmenn að fljúga þessum rússnesku þotum, ekki Rússar að reyna að drepa þá. Þ.e. þeir hafa sjálfir stjórn á þotunum. Hefur einhver stjórn á gaddaprótínunum þegar þegar þau eru komin inn í líkamann.

Ég er viss um að Þórólfur hefur sagt prótínunum (eða hinum svokölluðu bóluefnum) að vera ekki að dreifa sér um allan líkamann og allra síst til hjartans og heilans. Hinsvegar efast ég um að þau (gaddaprótínin) hafi hlustað á hann.

Theódór Norðkvist, 4.10.2021 kl. 19:04

6 identicon

Sæll Geir,

Sóttkvíarþrjótur er aðallega í því að leita eftir góðum lyga-átyllum til að halda uppi farsóttarstiginu með að styðjast við þessar líka óáreiðalegu PCR skimanir. 
Sóttkvíarþrjótur vill halda þessu svona áfram, rétt eins og hann fái borgað fyrir það líka. Ofan á allt þegar að dómstólar í Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Portúgal hafa allir úrskurðað þessar PCR skimanir séu alls EKKI við hæfi að nota til að greina covid-19, svo og hefur þetta PCR drasl EKKI nein lagalegan og vísindalegan grundvöll til að byggja á varðandi allar þessar lokanir, samkomutakmarkanir o.s.frv.
Þar sem að EKKI er til nein Gold Standard yfir þessar PCR skimanir eða smitgreiningar. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) auk þess staðfest að þessi PCR skimanir eða PCR smitgreiningar séu gallaðar og ekki áreiðanlegar. En þetta er allt saman eitthvað sem að hann sóttkvíarþrjótur passar mjög vel uppá að minnast alls ekki á.
  
Fyrir utan það þá eru þessar PCR skimanir sérstaklega keyrðar hér á 40 snúningum eða keyrðar yfir þennan 35 snúninga hringrásar mögnunar þröskuld til þess eins þá að geta framkallað allt að því 97% falskar niðurstöður (Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https://doi.org/10.1093/cid/ciaa1491), eða svo þessir líka ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðar hér geta verið i því að öskra greint smit, greint smit og aftur greint smit.
KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 4.10.2021 kl. 22:00

7 identicon

Sæll Theódór,

Þú segir að: "Síðan þegar sjálf COVID-veiran herjar á líkamann, sem hún gerir einmitt með þessu gaddaprótíni, þá kannast ónæmiskerfið við óvininn og er fljótari að bregðast við."

Það er nú meira hvað þessi gaddaprótín í bóluefninu virka fínt, alltaf eitthvað að koma í ljós.
KV. 





Scanning & Transmission Electron Microscopy Reveals Graphene Oxide in CoV-19 Vaccines

Dr. Robert Young Finds Graphene Oxide in All Four Vaccines and Other Disturbing Ingredients

American Scientists Confirm Toxic Graphene Oxide, and More, in Covid Injections

VACCINE INGREDIENTS REVEALED

Self-Assembling Nanotech Found in Moderna Vaccine

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 4.10.2021 kl. 22:25

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þorsteinn, þú ert búinn að opna galleríið þitt í tilefni af umræðunni, án þess að krefjast aðgangseyris og það er virðingarvert.

Annars virðist þessi tilvitnun í Luc Montaigner um að hinir bólusett muni drepast, vera falsfrétt. Ég komst að því eftir fimm mínútna leit á netinu.

https://rairfoundation.com/bombshell-nobel-prize-winner-reveals-covid-vaccine-is-creating-variants/

Luc er engu að síður gagnrýninn á bólusetningar eins og fram kemur í myndbandi við fréttina að ofan, en við skulum ekki hjálpa tilraunabóluefnissinnum að þagga niður gagnrýni, með því að dreifa röngum fréttum.

Theódór Norðkvist, 5.10.2021 kl. 10:36

9 identicon

Sæll aftur Theódór,

Ég er á því að þú hafir ekki lesið þessa grein, því það stendur þarna, eða: French Virologist and Nobel Prize Winner Luc Montagnier contends that “it is the vaccination that is creating the variants.” Nú og sjá einnig hérna myndbandið Warns Covid Vaccine May Lead to ‘Neurodegenerative Illness’ (Video)

Vaccines are Creating the Variants

Prof. Montagnier referred to the vaccine program for the coronavirus as an “unacceptable mistake”. Mass vaccinations are a “scientific error as well as a medical error,” he said. “It is an unacceptable mistake. The history books will show that, because it is the vaccination that is creating the variants,” Prof. Luc Montagnier continued."

Nú þar sem að þessir False Fack Cheker-s eru víða, þá getur þú athugað þetta líka hérna: 

 COVID 19 fact check: WhatsApp forward claims 'Vaccinated people will die in  2 years', here's the truth | Covid News – India TV

"While several doctors and medical councils have assured that vaccines are safe to use, fake news and unverified misinformation doesn't cease. Recently, a WhatsApp forward is being widely circulated in which an alleged statement by French virologist and Nobel Prize Winner Luc Montagnier says mass vaccination for coronavirus is an “unacceptable mistake" and “all vaccinated people will die in 2 years."

The viral WhatsApp forward reads: “All Vaccinated people will die within 2 years: Nobel Prize Winner Luc Montagnier has confirmed that there is no chance of survival for people who have received any form of the vaccine. In the shocking interview, the world’s top virologist stated blankly: there is no hope, and no possible treatment for those who have been vaccinated already. We must be prepared to incinerate the bodies. The scientific genius backed claims of other pre eminent virologists after studying the constituents of the vaccine. They will all die from antibody dependent enhancement. Nothing more can be said."

https://www.indiatvnews.com/health/covid-19-fact-check-whatsapp-forward-claims-vaccinated-people-will-die-in-2-years-here-s-the-truth-707079 )

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 5.10.2021 kl. 11:52

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég ætlaði nú ekkert að koma af stað þrasi, þar sem við erum nokkurn veginn sammála í þessu máli. Jú, það er rétt að Luc er gagnrýninn á þessi lyf, enda sagði ég það sjálfur.

Ég er almennt sammála þér um fact-checker síðurnar, eða fact-twister eins og ég vil kalla þær. Þær eru flestar hlaupatíkur fyrir big business/ tech giants og vinstri sinnuð skólpræsi.

Ég efast samt um að Luc hafi sagt að allir hafi drepist, en það er sem sagt rétt hjá þér (tel ég) að hann hafi sagt að fjöldabólusetningar væru gríðarleg mistök. Við erum sammála um að svo sé.

Theódór Norðkvist, 5.10.2021 kl. 14:02

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

...að allir myndu drepast af bóluefnunum...

Átti þetta að vera í byrjun síðustu málsgreinarinnar.

Theódór Norðkvist, 5.10.2021 kl. 14:03

12 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.10.2021 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband