Veira og trúarbrögð

Baráttan gegn veiru er í síauknum mæli farin að taka á sig búning trúarbragðs.

Vísindin eru útkljáð! Rangt. Alltaf. 

Grímur virka! Kannski, í ákveðnum aðstæðum.

Bóluefnin verja! Nema þegar þau gera það ekki.

Fjarvera veirusmita er mikilvægari en skólahald! Eða ekki.

Hárgreiðslustofur smita! Þær þurfa að loka! Sagði engin gagnaruna.

Þegar trúarbrögð og tilvísanir í vísindi sem finnast ekki verða eitt og hið sama þá læðist á mann bros. Úr frétt (Google Translate):

Slovakia lifted bans on non-vaccinated for Pope visit

Upprunaleg frétt.

Já, rétt: Í Slóvakíu átti að meina ósprautuðum að hitta páfann. Þessu var mótmælt (ég gef mér það þótt fréttin beri á borð aðrar útskýringar). Núna mega ósprautaðir hitta páfann.

Eru yfirvöld gengin af göflunum? Á að hætta á nýja flóðbylgju smitaðra? Er Slóvakía ekki að bugast undan smitum og dauðsföllum? 

Róleg! Páfinn er að koma. 

Vísindi? Trúarsetningar? Skilin eru orðin svo óljós að það má óhætt blanda báðu saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Páfinn getur kannski svarað því afhverju guð skapaði veiruna?

Guðmundur Ásgeirsson, 5.9.2021 kl. 19:52

2 identicon

Já, það er mikið rót á hugmyndum fólks sem nýtir sér nýjustu og bestu fáanlegu upplýsingar frekar. Annað er þið, þessir stabílu stólpar, sem hafið ekki bætt við ykkur neinni þekkingu í 18 mánuði, og var hún ekki mikil fyrir.

Vagn (IP-tala skráð) 5.9.2021 kl. 20:03

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Drottinn kemur auðvitað með páfanum og lætur veiruna hverfa meðan hann er í Slóvakíu. Líkindin með tilraununum til að hefta málfrelsi og þar með framþróun vísindanna nú og á fimmtándu öld, í boði forvera páfans, eru annars að verða fremur óhugnanleg.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.9.2021 kl. 20:42

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gott að vita að "KERRAN" er svona vel upplýst

eftir 18 mánuði og leyfir sér að kallaö alla aðra með

engva þekkingu og veit allt best sjálf.

Hlýtur að vera erfitt að vera svona fullkominn.

Sigurður Kristján Hjaltested, 5.9.2021 kl. 20:49

5 identicon

May be an image of 1 person, beard and text that says 'Can someone tell me how the Taliban survived the last 18 months with no vaccines, social distancing, PCR testing, masks, and shutting down businesses to then recapture an entire country with no mass deaths amongst their population during a global pandemic?'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 5.9.2021 kl. 21:37

6 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 5.9.2021 kl. 22:08

7 identicon




Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 5.9.2021 kl. 22:59

8 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 5.9.2021 kl. 23:13

9 identicon

Þarna sannast að það er auðveldara að gabba fólk en að sýna því fram á að það hafi verið gabbað. Eins og sést á þessari Ísraelsku töflu með skiptingu smita á milli bólusettra og óbólusettra að sprautan er alveg gagnslaus gagnvart vírusnum. Það er samt nóg að segja fólki að það sé öruggara með sprautuna þó staðreyndir sýni annað. Það er haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist að bólusetja með gagnslausu og stórhættulegu efni. Hverjir ætlar að taka ábyrgð á þessu? Að stjórnvöld taki á sig alla ábyrgð af væntanlegum málaferlum er óásættanlegt. Þjóðin á heimtingu á því að sjá þessa samninga sem hafa verið gerðir við lyfjafyrirtækin.

kristinn Bjarnson (IP-tala skráð) 6.9.2021 kl. 11:32

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Guðmundur, Guð bað okkur ekki um að óhlýðnast boðum Hans og þar með kalla yfir okkur plágur og sjúkdóma. Hann hefur varað okkur við, að ef við fjarlægjumst Hann og brjótum gróflega gegn boðum Hans, þá munum við uppskera plágur, en sleppa við þær ef við fylgjum Honum af trúfesti.

Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga, drepsóttina, er reikar um í dimmunni, eða sýkina, er geisar um hádegið...Þitt hæli er Drottinn, þú hefir gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu. Engin ógæfa hendir þig, og engin plága nálgast tjald þitt.

Úr Davíðssálmi 91

Ef einhver stingur höfðinu inn í örbylgjuofn og stillir á 30 mínútur, er það framleiðanda örbylgjuofnsins að kenna? Nei, a.m.k. ekki ef framleiðandinn lét leiðbeiningabækling fylgja með.

Theódór Norðkvist, 6.9.2021 kl. 13:36

11 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Theodór. Þú trúir því semsagt að guð hafi skapað veiruna?

Guðmundur Ásgeirsson, 6.9.2021 kl. 16:55

12 Smámynd: Theódór Norðkvist

Voru það ekki kommúnistar í Kína, flokksbræður Gunnars Smára Egilssonar.laughing

Án gríns, þá erum við komnir inn á flóknar spurningar sem erfitt er að svara og enn erfiðara fyrir þá sem vilja ekki skilja.

Þessu er öllu svarað í Biblíunni, lestu hana bara. Guð leyfir tilvist hins illa, Hann vildi ekki hið illa, það voru mennirnir sem báðu um það með breytni sinni.

Til að taka ekki frjálsan vilja af manninum, þá neyddist Guð til að leyfa hið illa, því allir verða að taka afleiðingum gjörða sinna, nema þeir komi til Krists og biðji um fyrirgefningu af öllu hjarta.

Þú mátt kalla það sköpun ef þú vilt, en eins og ég skýri út hér að framan, þá kalla ég það ekki steikt höfuð sk0pun frá Eloctrolux ef einhver stillir Electrolux örbylgjuofn á 600W og 30 mínútur og stingur höfðinu inn.

Ef þú veist um einhvern sem gerði slíkt, er þér velkomið mín vegna að stefna Electrolux fyrir manndráp (af gáleysi), en ég óttast að þú munir ekki hafa erindi sem erfiði.

Theódór Norðkvist, 6.9.2021 kl. 17:32

13 Smámynd: Geir Ágústsson

Þessi þráður ætlar vissulega að fara um víðan völl. Gott mál.

Í dag las ég að eyjan Malta hreykir sér af því að hafa náð hjarðónæmi með yfir 70% 16 ára og eldri sprautaða. Hvenær ætla íslensk yfirvöld að segja það sama?

Um leið komast fáir inn á eyjuna nema með nógu margar sprautur. Neikvæð próf ekki nóg, nema maður megi ekki fá sprauturnar af heilsufarsástæðum.

Þau eru orðin frekar landlæg þessi vísindi satt að segja.

Geir Ágústsson, 6.9.2021 kl. 17:50

14 identicon

May be an image of one or more people and text that says 'AMAZING, ISN'T IT? @TheFreeThoughtProject x No Masks X No Distancing X No Isolation No Quarantine X No Vaccine X No Heathcare JUST LIVING THEIR LIVES AS NORMAL AND NO DEAD HOMELESS PEOPLE PILED ON THE STREETS. Weird, right?'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.9.2021 kl. 18:00

15 identicon

May be an image of one or more people and text that says 'FRIENDLY REMINDER: IT WAS THE GOVERNMENT THAT STOLE YOUR FREEDOMS, DESTROYED YOUR BUSINESSES, AND RUINED YOUR CHILDREN'S FUTURES. NOT UNVACCINATED PEOPLE.'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.9.2021 kl. 18:45

16 Smámynd: Theódór Norðkvist

Afsakaðu Geir, var ekki ætlunin að afvegaleiða umræðuna. Varð þó að taka að mér hlutverk páfans, þó ég hafi sjálfsagt ekkert leyfi til þess og svara spurningu Guðmundar.

Varð að gera það, þar sem ég geri ekki ráð fyrir að páfinn lesi bloggið þitt (þó veit maður aldrei).laughing

Þessi spurning kemur reyndar mjög oft upp (af hverju lætur Guð þetta og hitt viðgangast) og hún er mjög skiljanleg.

Athyglivert þetta með Möltu, en eru þetta ekki meðmæli með bóluefnunum? Því miður, því við höfum verið sammála um að þau séu ekki sérlega vönduð og geri frekar óskunda en gagn.

Theódór Norðkvist, 6.9.2021 kl. 19:58

17 Smámynd: Theódór Norðkvist

Annars vildi ég að Þorsteinn myndi spara ljósmyndasýningarnar sínar - bloggsíðan er heila eilífð að endurhlaðast, eftir að maður sendir athugasemd. Það getur reyndar haft með það að gera að ég er í Svíþjóð, íslenskar síður eru almennt frekar hægvirkar hjá mér.

Theódór Norðkvist, 6.9.2021 kl. 20:01

18 identicon

Sæll Theódór, 

Þú ættir endilega að uppfæra þennan gamla router hjá þér, svo og hugsanlega uppfæra tölvuna þína líka.
Hérna er svo eitthvað fyrir páfann, þeas. ef hann er hugsanlega lesa og fylgjast með hérna, svo og þar sem að hann er að leyfa hið illa með styðja allar þessar svokölluðu bólusetningar, ekki satt?
KV.      

No description available.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.9.2021 kl. 00:31

19 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þorsteinn minn, það er ekkert að tölvunni minni - i7-8700K 16GB RAM, 2ja ára gömul. Ekkert heldur að routernum.

Þetta var bara vinsamleg ábending og í þetta sinn er ég ekki einu sinni ósammála því sem þú ert að segja.

Fyrst þú gerir alveg þvert á það sem ég bað um og gefur frekar í ef eitthvað er, ætla ég að prófa nýja nálgun.

Settu sem allra flestar myndir inn. Nú hlýtur Þorsteinn að hætta að setja inn myndir, því hann gerir alltaf þveröfugt við það sem ég bið hann vinsamlega um.

Theódór Norðkvist, 7.9.2021 kl. 07:22

20 identicon

Sæll aftur Theódór, 

Þú ætti samt að láta athuga og/eða yfirfara þessar græjur hjá þér. 

Hérna er svo eitthvað fyrir þig til að skoða varðandi þessa Zíonista New World Order:



"Dr Coleman accurately summarizes the intent and purpose of the Committee of 300 as follows:

A One World Government and one-unit monetary system, under permanent non-elected hereditary oligarchists who self-select from among their numbers in the form of a feudal system as it was in the Middle Ages. In this One World entity, population will be limited by restrictions on the number of children per family, diseases, wars, famines, until 1 billion people who are useful to the ruling class, in areas which will be strictly and clearly defined, remain as the total world population.

There will be no middle class, only rulers and the servants. All laws will be uniform under a legal system of world courts practicing the same unified code of laws, backed up by a One World Government police force and a One World unified military to enforce laws in all former countries where no national boundaries shall exist. The system will be on the basis of a welfare state; those who are obedient and subservient to the One World Government will be rewarded with the means to live; those who are rebellious will simply be starved to death or be declared outlaws, thus a target for anyone who wishes to kill them. Privately owned firearms or weapons of any kind will be prohibited." (https://www.threeworldwars.com/new-world-order.htm) 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.9.2021 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband