Gráđuverđbólgan

Undanfarin ár hefur svokölluđ gráđuverđbólga (educational inflation) hrjáđ Vesturlönd. Í Danmörku er, eđa var a.m.k. um tíma, markmiđ yfirvalda ađ 75% allra nemenda ljúki skólagöngu sinni međ háskólagráđu. Á Íslandi er nú krafist, eftir ţví sem kostur er, háskólaprófs til ađ sinna börnum á leikskólum og til ađ kenna krökkum ađ lesa og skrifa. Hugmyndir um ađ lögreglunám fari á háskólastig voru eitthvađ í umrćđunni á tímabili.

Á yfirborđinu er alltaf talađ um auknar faglegar kröfur. Fólk ţarf jú ađ kunna vélrita og nota tölvur, ekki satt? Ţađ ţarf ađ fylla út miklu fleiri eyđublöđ nú eđa áđur og uppfylla miklu fleiri kröfur til gćđa og skriffinnsku, ekki satt?

En auđvitađ blasir viđ ađ hér eru menn einfaldlega ađ minnka samkeppni innan starfsstétta. Ţađ er ljóst ađ laus stađa leikskólakennara fćr töluvert fćrri umsćkjendur ef háskólapróf er gert ađ skilyrđi. Ţar međ eykst ţrýstingur á launakjörin. Háskólapróf er einfaldlega leiđ til ađ minnka frambođiđ á međan eftirspurnin er alltaf til stađar.

Mörg fyrirtćki nota líka kröfur um háskólapróf til ađ fćkka umsćkjendum. Ţetta er leiđ til ađ spara mannauđsdeildinni fyrirhöfn. 

En nú er kannski eitthvađ byrjađ ađ breytast. Í frétt er sagt frá ţví ađ fyrirtćki eins og Netflix og Apple séu í auknum mćli ađ hćtta ađ gera háskólapróf ađ skilyrđi fyrir ráđningu.

Svolítil tilvitnun:

Now prominent companies such as Google and Apple are hiring employees who have the skills required to get jobs done, with or without a degree. LinkedIn found many of today’s hottest companies to work for do not require that employees have a college degree.

Ţetta eru góđar fréttir. Ég efast um ađ ţađ verđi gert mikiđ úr ţeim á Íslandi en úti í hinum stóra heimi er baráttan viđ gráđuverđbólguna hafin. Háskólar eru góđir fyrir marga en ekki alla. Háskólapróf sem skilyrđi er í raun útilokun á ákveđnu fólki sem á erfitt međ ađ trođa sér í ferköntuđ form formlegrar háskólagöngu.

Ef viđ viljum hlífa mannauđsdeildum viđ álagi og styđja viđ kjarabaráttu leikskólakennara ţá eru til ađrar leiđir en sóa lífum hćfileikafólks međ óţarfa bóknámi.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđjón E. Hreinberg

Ţađ hefur veriđ vaxandi umrćđa um ţetta víđa um heim síđustu árin. Peter Thiel hefur líklega veriđ hávćrastur, enda kvetur hann fólk til ađ sleppa ţví ađ fara í háskóla og einbeita sér frekar ađ ţví ađ koma hlutum í verk.

Einnig er áhugavert í ţessu samhengi ţrotlaust starf John Taylor Gatto um hvernig nútíma menntaverk er á margan hátt orđiđ stađnađ og margar upplistanir hans á fólk sem skarađi langt framúr án menntunar.

Margir vita - og ţađ er auđsannađ - ađ stćrstu afrek hugans, og stćrstu skref menningarinnar, komu frá fólki sem ekki var rammađ inn í steinrunna menntun heldur hafđi agađ kvika hugsun.

Covid farsinn er einmitt skólabókardćmi um hvernig hin steinrunna stofnanahugsun er bókstaflega kćfandi. Viđ Íslendingar höfum grobbađ okkur af ţví síđustu fimm áratugina hversu góđa menntun viđ höfum, en ég hef hvergi séđ neina umrćđu hérlendis um menntun ...

Bestu kveđjur.

Guđjón E. Hreinberg, 7.9.2020 kl. 17:45

2 Smámynd: Guđjón E. Hreinberg

hvetur :) ég vélrita of hratt :)

Guđjón E. Hreinberg, 7.9.2020 kl. 17:45

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Guđjón,

Takk fyrir hugleiđingar ţínar. Langar ađ vitna í forstjóra Apple sem segir:

"“Our company, as you know, was founded by a college drop-out, so we’ve never really thought that a college degree was the thing that you had to have to do well. We’ve always tried to expand our horizons.”

Góđur!

Ţekki einmitt marga góđa menn sem létu nokkrar kúrsa í háskólanum duga áđur en ţeir héldu út í lífiđ, gráđulausir. Og ţeir eru frjóir og drífandi menn sem sjá lausnir oftar en flestir ađrir.

Auđvitađ er svo kerfi stađnađ sem er ríghaldiđ í rammaverki "námskráa". Slíkar skrár eru ekki annađ en girđingar.

Geir Ágústsson, 7.9.2020 kl. 18:04

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband