Kerfið hannað til að hrynja, ekki dafna

Evrópusambandið treysir á aukna miðstýringu til að tryggja framtíð sína. Völd aðildarríkja minnka og miðstjórnin eflist. Um leið verður sambandið í heild sinni veikbyggðara. Þá hættir miðstjórnin að huga að því sem gæti styrkt sambandið aftur og fer að hugleiða hvernig á að bjarga því sem óumflýjanlega er að brotna í sundur. Til að fjármagna björgunarpakkana þarf svo að prenta peninga. Kaupmáttur þeirra rýrnar. Sparnaður almennings þurrkast út. Bótaþegum fjölgar. 

Svona var saga Rómarríkis líka. 

Eru Rússar hinir nýju barbarar sem stökkva á sært dýrið?

Eða er það flóttamannastraumurinn að sunnan? Eða sá sem skýtur nú rótum niður um allt sambandið og fyrirlítur samfélagið sem þar er að finna?

Verða það kannski jakkafataklæddir spákaupmenn sem svipta evruna af seinasta trúverðugleika sínum og láta kerfið hrynja til grunna?

Hver stingur á blöðruna?


mbl.is Mun auka miðstýringu á evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geir. Ég skil ekki, og mun líklega aldrei skilja fjölmiðlaþrælanna "frétta"-útskýrt valdatafl illra afla á jörðinni.

Ég hreinlega vil ekki fara niður á þetta ömurlega valdagræðginnar jarðartilveru heilaþvottaþrælaplan.

En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Oft hef ég þurft að éta ofan í mig, fyrri fáfræði fullyrðingar mínar, og þess vegna veit ég að slíkt getur gerst aftur.

Það vantar alveg réttlætanlega, verjandi, og mennskunnar siðmenntaða tilgangsmarkmiðið með þessu heimsveldanna bankarána-brambolti.

Meðan ekki er mögulegt að fjölmiðlaopinbera verjandi og siðmenntað markmið heimsstjórnssýslunnar, þá er í raun ekkert að marka fréttir og réttlætingar á öllu heimsveldanna leikritaða bullinu.

Nú í dag virðist til dæmist allt klerkaruglara lið heimsins ætla að ganga af sjálfskipuðum og túlkuðum heims-"friðar"-göflunum, vegna einhvers Jerúsalems "höfuðborgar" ástands? Sem mér er lífsins ómögulegt að skilja nokkurn skapaðs lífsins gagnsmerkingu með ?

"Heimsfriðinum"  óraunverulega og enn ófundna á jörðinni, á víst að vera svo ógurlega ógnað, út af þessu Jerúsalems-dæmi, bara svona "allt í einu"?

"Heimsfriðnum"?

"Ógnað"?

Í hvaða heimi hefur það fólk í raun lifað, sem talar nú háværum og fjölmiðlaskrækum fölskum róm, um að "heimsfriðnum" sé allt í einu núna "ógnað"?

Út af einhverju fjölmiðla fáránleika blekkinganna "Jerúsalem" upphrópunar fjölmiðlamafíu múgæsings dæmi?

Mannskepnum jarðar er ekki viðbjargandi, ef svona fáránleikans fíflagangur ábyrgðarlausra upphrópana-múgæsingsfjölmiðla-heimsins á að stjórna lífinu á jörðinni.

Almættisorkan algóða hjálpi öllum sálum tilverunnar af blekkinga og lygabrautinni tortímandi.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2017 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband