Morgunblaðið í þágu sameignarsinna?

'Morgunblaðið sýnir sjónarmiðum sameignarsinna ótrúlegt aðhaldsleysi með langri "frétt" um sjónarmið Ólínu Þorvarðardóttur. Hún fær birta langa og samhengislausa skoðun sína mótþróalaust í hinu svokallaða "borgaralega" dagblaði sem sögulega séð hefur staðið vörð um grundvallarmannréttindi (t.d. eignaréttindi) Íslendinga.

Hvers vegna?

Uppfært (16/1/2011): Morgunblaðið stendur vaktina, sjá hér. Sem betur fer. 


mbl.is Afnemi kvótakerfið strax í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Starbuck

 Eignaréttindi hvað? 

1. gr. laga um stjórn fiskveiða

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. 

Starbuck, 16.1.2011 kl. 18:30

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Starbuck,

Hugtakið "sameign" hefur enga lögfræðilega merkingu . "Ríkiseign" kannski?

Mæli samt með því að þú lesir tengilinn í uppfærslu þessarar færslu. Þar eru margar vitleysurnar útskýrðar. 

Geir Ágústsson, 16.1.2011 kl. 21:45

3 identicon

Sæll. Ólína telur að svona sé þetta, afþví hún er ekki hugsandi manneskja, heldur fremur jarmandi sauður eða geltandi hundur, sem tilheyrir ákveðnum furðufjölmennum sértrúarsöfnuði, en samkvæmt heimsmynd þess sértrúarsafnaðar kom hið illa í heiminn fyrir tilvist Sjálfstæðisflokksins, en Höfuðpaur hann er Djöfullinn, og hið sanna nafn hans er Davíð Oddsson. Mennirnir eru að eðlisfari góðir, en það var erfðasynd Davíðs og ára hans sem gerði þá illa. Allt slæmt sem mennirnir gera í heimi hér, gera þeir afþví þeir neyðast til þess, afþví Davíð Oddsson gerði hitt og þetta. Til dæmis neyðast þeir til að láta í uppgjöf og ótta undan fjárkúgun og selja barnabarnabarnabarnabarnabörnin sín í skuldaþrældóm, þar til hinn mikli Júdas og svikari, sem áður var einn af þeim, en hefur nú krossfest þau öll með tölu, Ólafur, framdi hina einu ófyrirgefanlegu synd, að hlusta á þjóðina og sýna lýðræðislega hegðun, og mun brenna í eldi og brennisteini um alla eilífð út af því og blótsyrðum meðlima sértrúarsafnaðarins. Annars værum við að borga trilljarða í viðbót, en það væri gott, afþví það var hugmynd flokksmanna, og allt sem flokksmenn segja er rétt og gott og satt. Flokknum ber að hlýða í blindni og einstaklingar innan hans, eða fólk sem sýnir minnstu tilburði til einstaklingshegðunar, skal brennt á báli.

Því miður ráða þessir brjálæðingar nú yfir þjóðinni. Það er kominn tími til að berjast gegn trúarlegu ofstæki. Ólína er gott dæmi um algjörlega heilaþvegna manneskju, sem skipti heilabúinu út fyrir tölvuforrit í boði flokksins, og er nú viljalaust vélmenni í maskínu dauðans. Vitsmunalega séð er þetta fólk á sama plani og meðalnazisti á tímum þriðja ríkisins, eða hinn almenni meðlimur Moon söfnuðarins eða Vísindakirkjunnar sem Wikileaks er búið að vera svo duglegt að fletta ofan af. Það væri gaman að sjá þá rannsaka þennan sértrúarsöfnuð líka.....

Niður með sértrúarofstæki! Heilbrigða skynsemi! Góðar stundir.

Halli (IP-tala skráð) 17.1.2011 kl. 10:46

4 identicon

PS: Ég er á móti kvótakerfinu og er ekki Sjálfstæðismaður. Bara svo það sé á hreinu.

Halli (IP-tala skráð) 17.1.2011 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband