Er slaufunarliðið að losa slaufuna sjálft?

Fræg bandarísk leikkona sagði nýlega í viðtali að hún væri búin að fá nóg af slaufunarmenningunni.

Sama leikkona var mjög stoltur slaufari á veirutímum og hreinlega gaf vinskap upp á bátinn ef rétt lyf voru ekki notuð meðal vinahópsins.

Er eitthvað að breytast? Einhver raunveruleg eftirsjá í gangi?

Nei, ætli það.

En það er gott að sjá vott af brestum í slaufunarmenningunni. Dropinn holar steininn og þeim slaufuðu sem gerðu ekki annað af sér en að vera mannlegir og viðurkenna það eru að rísa á fætur á ný.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Slaufunarmenningin er eitt það djöfullegasta sem hefur verið fundið upp af þessu mannkyni. Oft í mannkynssögunni hefur það gerzt að ein þjóð ræðst á aðra. Slaufunarmenningin er dauðastef vestrænnar menningar. Það eru Alfakarlarnir sem ráðizt er á, forystusauðirnir, hetjurnar, sem ýta áfram menningu og viðskiptalífi. 

 

Þegar Satan er þannig komið í spilið og stjórnar femínistum, kvennakirkjuguðfræðingum og næstum öllu þjóðfélaginu, þá hefur sú feita sungið eins og sagt er í enskumælandi löndum, þá er menningin hrunin og dauð.

 

Þetta eru afleiðingin af því að menga jörðina. Guð sjálfur refsar, útrýmir mönnunum.

 

Ein leikkona getur ekki stöðvað skriðuna. Ómögulegt.

Ingólfur Sigurðsson, 25.8.2023 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband