Ávext­ir fund­ar­ins

Eins sífellt fleiri hafa bent á þá var áhugi erlendra fjölmiðla á hringleikahúsinu í Reykjavík - leiðtogafundi Evrópuráðsins - lítill sem enginn. Íslenskur blaðamaður, sem greinilega var mjög áhugasamur um hringleikahúsið og taldi það mjög mikilvægt, skrifar:

Ávext­ir fund­ar­ins munu marg­ir hverj­ir mögu­lega ekki líta dags­ins ljós al­veg strax en samstaða leiðtoga Evr­ópu hvað varðar mál­efni Úkraínu verður vafa­laust dýr­mæt fyr­ir fram­haldið. Ef það er raun­in mætti kannski spyrja að því hvort að um­fjöll­un­in og umstangið hafi ekki reynst þess virði, sama hvort fjöl­miðlar annarra landa séu að fylgj­ast með eða ekki. 

Þetta er tálsýn, því fundurinn er búinn og arfleifð hans verður engin. Meint tjónaskrá verður aldrei dregin fram, umrædd samstaða var nú þegar til staðar enda búið að fleygja Rússum úr ráðinu fyrir að hafa aðra skoðun á vandamálum Austur-Úkraínu, kolefnisspor þátttakenda er staðreynd, óþægindin fyrir gesti og íbúa miðbæjarins blessunarlega yfirstaðin, reikningurinn kominn í heimabanka skattgreiðenda og búið að rýma salina og undirbúa viðburði sem krefjast þess ekki að venjulegt fólk úti á götu sé handtekið án dóms og laga. 

Eins og afskorið blóm er ekkert eftir núna nema að fleygja visnuðum laufblöðum í ruslafötuna og gleyma tilurð þess. Næsta mál, takk.

En kannski situr eitt eftir sem mun koma sér vel fyrir suma: Svona fundir styrkja tengslanet þátttakenda. Þegar kjósendur fá leið á einhverjum þeirra þá geta þeir fundið sér þægilega innivinnu í gegnum slík tengslanet. Fyrir næstu kosningar til Alþingis getur forsætisráðherra kannski tekið því rólega, lýst yfir brotthvarfi úr stjórnmálum af einhverjum ástæðum, beðið í nokkrar vikur og verða síðan auglýstur sem yfirmaður eða sendiherra einhverrar skrifstofu í Evrópu sem borgar svimandi, skattfrjáls laun fyrir að bera fínan titil en engar skyldur. 

Var það kannski hvatinn að baki hringleikahúsinu?


mbl.is Stór fundur – lítil umfjöllun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Fimmtíu mengandi einkaþotur á litlum flugvelli, og lokaðar götur með leyniskyttur á öllum þökum, er æðislega góð endurminning þegar fram líða stundir.

Hvaða ósköp finna stjórnendur þessa lands upp á næst til að auka skuldir borgarinnar ?

Loncexter, 18.5.2023 kl. 19:39

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Loncexter,

Ef við tökum útgjöldin aðeins út fyrir sviga þá er annað sem angrar mig meira, og það er þessi frásögn:

"Ég var stödd á Arnarhól fyrir um klukkustund í mesta sakleysi, fyrir utan girðingu og var að hlusta á tónlist í símanum þegar lögreglan kemur að mér og biður mig um nafn og kennitölu. Ég vildi það ekki og gaf upp rangt nafn þegar þau ítrekuðu að fá kennitöluna mína byrjaði ég að ganga í burtu en þá hlupu þau til og tóku mig fasta og handjárnuðu mig fyrir aftan bak áður en ég var sett í lögreglubifreiðina. Ég tek það fram að ég var ekki að brjóta nein lög, bara stóð fyrir utan girðingu. Síðan hvenær getur lögreglan handtekið án dóms og laga? Vitið þið að nú er hægt að handtaka með geðþóttaákvörðun hvern sem er án þess að það sé einu sinni nokkur grunur um lögbrot!"
https://www.facebook.com/groups/224353372859255/permalink/582121227082466/

Hérna er gráu bætt ofan í svart: Fólk neytt til að borga fyrir hringleikahús elítunnar, götum lokað og rekstur fyrirtækja settur í uppnám, og svo þegar fólk stendur í sakleysi sínu fyrir utan girðingarnar þá er það samt elt uppi af lögreglu, og handjárnað! 

Ég veit að það er klisja að tala um að sagan endurtaki sig, en núna eru Íslendingar að endurtaka sögu ráðstjórnarríkja frá fyrri helming 20. aldar. 

Geir Ágústsson, 18.5.2023 kl. 19:53

3 identicon

Margir hafa bent á það að lögregla allsstaðar í heiminum hafa á ca 20-25 árum breyst frá því að vera frekar meinleysislegir og jafnvel vinalegir einstaklingar í það líkjast meira hermenn á stríðsvæði - svartklæddir og vopnaðir. Á sama tíma stækkar eftirlitssamfélagið og kúgun eykst á ýmsum sviðum.

Bragi sigurðsson (IP-tala skráð) 19.5.2023 kl. 12:02

4 Smámynd: Loncexter

Skrýtið til þess að hugsa, að ég ber kostnaðinn af því að glata frelsi mínu og einkalífi.

Loncexter, 19.5.2023 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband