Óhagræði í hagræðingu?

Einhver mætti gjarnan útskýra fyrir mér hvaða sparnaður, hagræðing eða skilvirkni felst í því að sameina tvo framhaldsskóla sem eiga húsnæði víðsfjarri hvor öðrum.

Á að fækka nemendum sem nemur nemendafjölda annars skólans? Fækka plássum í framhaldsskólakerfinu?

Eða troða öllum nemendum annars skólans inn í hinn? Selja svo húseignir annars skólans og troða fleiri byggingum eða hæðum eða bæði á skólalóð hins?

Er mikið svigrúm til að fækka stjórnendum svo um muni þegar tvær skrifstofur eru lagðar saman? Tveir skólastjórar verða einn og þar fram eftir götunum? 

Verður á einhvern hátt ódýrara að veita menntunina? Kannski með því að fækka áföngum, minnka val og stækka bekki?

Ég gekk í Menntaskólann í Reykjavík og var svo heppinn að fá að gera það í fjögur ár. Við útskrift sat í manni hlý minning um tímabil mikils náms, mikils félagslífs og kennslustunda af öllu tagi - í sumum þar sem maður svaf, í öðrum þar sem maður hló, en í flestum að reyna tileinka sér námsefni af ýmsu tagi. Ég efast um að mín fjögur ár hafi kostað skattgreiðendur meira en þriggja ára námið í dag enda hélt þáverandi rektor alltaf vel um veskið og rak skólann innan fjárheimilda, nú fyrir utan að það var þröngt á þingi og ekki búið að byggja nálægt því allt sem hefur verið bætt við skólann í dag til að mæta nútímalegum kröfum um loftræstingu og tölvuaðstöðu. En mér gæti skjátlast. 

Yfirvöld tóku framhaldsskólaárin af unga fólkinu á veirutímum og hafa aldrei beðist afsökunar á því. Nú sýnist mér eiga að bæta í og afmá ýmis séreinkenni áratugagamalla skólastofnana með mikla arfleifð og sögu og enn meira af stolti, án skiljanlegs ávinnings.


mbl.is „Við elskum okkar skóla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kannski ætla þeir að auka fjarnám, það var prófað í covid.

þórdís (IP-tala skráð) 19.5.2023 kl. 23:43

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Þórdís,

Það er möguleg skýring, vissulega. Svokallaður stýrihópur er að vinna út frá þessum forsendum:

"Skólarnir standa frammi fyrir breytingum þar sem gera má ráð fyrir að nemendum í bóknámi muni fækka á komandi árum, bæði vegna fámennari árganga og vegna aukins hlutar starfs- og verknáms."
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/04/24/Styrihopur-um-eflingu-framhaldsskola/

Ekki veit ég á hverju það er byggt. 

Geir Ágústsson, 20.5.2023 kl. 06:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband