Mánudagur, 27. mars 2023
Vísindin, eða ekki-vísindin
Ég veit! Tucker Carlson er hægrisinnaður samsæriskenningasmiður! Hann er vitleysingur! Hann er á móti vísindum, heilbrigðri skynsemi og almennri vitneskju!
En mikið er hann hressandi. Algjörlega óþolandi fyrir æðstupresta okkar, og er það mögulega ástæðan fyrir því hvers vegna hann er svona vinsæll. Ég kveikti á 15 mín upptöku með honum og gerði ekki ráð fyrir að sitja límdur við hana, en endaði á að vera það. Straumur upplýsinga sem kom mér á óvart var ómótstæðilegur.
Ég mæli með þessu. Þú smellir eða ekki, en ég vil deila.
Ég lýsi eftir íslenskum Tucker Carlson, og er tilbúinn að bíða lengi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Facebook
Athugasemdir
Í lok pistils TC segir hann að Greta Thun hafi fengið heiðursdoktor nafnbót við háskólann í Helsinki. Doktor í Guðfræði. Er þá ekki verið að segja að loftslagsmál hennar séu trúarbrögð frekar en eithvað annað?
Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.3.2023 kl. 14:39
Bragi,
Mikið rétt. Sjá hér:
https://www.helsinki.fi/en/news/science-policy/thirty-new-honorary-doctorates-be-conferred-conferment-jubilee
Ég veit ekki hvað þetta segir annað en að greyið sprenglærðu einstaklingarnir sem þurfa að standa á sviði með reiðum unglingi og taka við einhverju sem á að vera mikil heiðursgráða.
Geir Ágústsson, 28.3.2023 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.