Gjaldþrota ríkissjóður grípur til óbeinnar skattlagningar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði árangur Landsvirkjunar í rekstri og arðgreiðslur frá félaginu á komandi ári vera lykilþátt í ríkisfjármálum næstu ára og í hagsæld þjóðarinnar. Landsvirkjun greiðir tugi milljarða í arðgreiðslur til ríkisins og heldur honum á floti, enda duga skattgreiðendur ekki til að borga niður lánin, greiða vaxtagjöldin og halda úti þjónustu við landsmenn.

Arðgreiðslur Landsvirkjunar koma beint úr vösum almennings og fyrirtækja. Landsvirkjun fær ekki að fjárfesta í virkjunum, skortur á rafmagni veldur hækkandi verðlagi á því og þegar stórir notendur þurfa rafmagn þá er það ekki til staðar og olían dregin fram. Óstöðugt rafmagn, skortur á því og fjárfestingastopp eru góðar fréttir fyrir ríkisvaldið og slæmar fréttir fyrir aðra.

Reykjavík hegðar sér á svipaðan hátt þegar hún mjólkar Orkuveitu Reykjavíkur um fleiri milljarða á ári til að fjármagna óráðsíuna og skuldsetninguna. 

Nú er því gjarnan haldið fram að hið opinbera þurfi að eiga ýmis fyrirtæki, sérstaklega þau er snúa að innviðum. En af hverju? Til að tryggja að gráðugir fjárfestar mjólki ekki almenning? Svo þeir geti ekki nýtt eignarhald sitt til að þjarma að neytendum? Til að tryggja uppbyggingu innviða þannig að þeir séu traustir og stækki í hlutfalli við aukna þörf og notkun?

Ég myndi segja að öll þessi rök séu fuðruð upp. Hið opinbera hegðar sér eins og hrægammasjóður sem mjólkar fyrirtæki sín til dauða og flýgur svo að næsta hræi.

Ég legg til að Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og önnur slík fyrirtæki séu annaðhvort seld eða gert að skila hagnaði sínum aftur til neytenda og notenda (eins og í tilviki Energinet í Danmörku, sem svarar nokkurn veginn til Landsnets á Íslandi, sjá hér, lagagrein 13). Óbein skattheimta á ekki að líðast. Næg eru sú beina nú þegar.


mbl.is Arðgreiðslurnar lykilþáttur í ríkisfjármálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Opinberi geirinn stækkar á ógnvekjandi hraða sem ekki verður stöðvaður með neinum venjulegum hætti heldur einhvers konar hruni. Kerfið er þannig uppsett að það virðist ekki vera hægt að minnka það. Öll eyðslufrumvörp ganga mjög greiðlega fyrir á hinu háa alþingi eins og peningar spretti á trjánum. Það er verið að nota íslenska skattgreiðendur  til að drepa fólk í Úkraínu. Frá mínum bæjardyrum séð erum við orðnir stríðsglæpamenn.

Líklega eru íslenskir ráðamenn stærsta vandamál þjóðarinnar.

Kristinn Bjarnason, 8.3.2023 kl. 18:23

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Kristinn,

Vandamálið er mögulega ekki báknið, heldur fólkið. Hér er lexía úr næstum því 500 ára gamalli bók:

"It is incredible how as soon as a people becomes subject, it promptly falls into such complete forgetfulness of its freedom that it can hardly be roused to the point of regaining it, obeying so easily and so willingly that one is led to say, on beholding such a situation, that this people has not so much lost its liberty as won its enslavement. It is true that in the beginning men submit under constraint and by force; but those who come after them obey without regret and perform willingly what their predecessors had done because they had to. This is why men born under the yoke and then nourished and reared in slavery are content, without further effort, to live in their native circumstance, unaware of any other state or right, and considering as quite natural the condition into which they were born."

Geir Ágústsson, 8.3.2023 kl. 20:21

3 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Geir,

Já, það hefur gerst núna að fólk taldi sig kaupa öryggi með frelsissviptingu. Ég hef stundum í gríni og alvöru kallað öryggi óvin okkar vegna þess að það virðist  alltaf vera hægt að selja öryggi og jafnvel á óviðráðanlegu verði. Yfivöld er alltaf að selja okkur öryggi fyrir skert frelsi og fólk gleypir við þessi alltaf. Eru virkilega einhverjir sem sjá fyrir sér öruggan heim? Fólk hefur m.a.s. látið eitra fyrir sér í von um meira öryggi. Heimurinn á að vera hættulegur og frjáls.

Það þarf ekki að velta lengi fyrir sér hegðun stjórnvalda til að komast að því að þetta er ekki fólk sem vinnur í þágu almennings og einhvern veginn virðist þetta endurtaka sig í sögunni aftur og aftur.

Kristinn Bjarnason, 9.3.2023 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband