Á að þjarma að rússneskum almenningi til að refsa Pútín?

Í dag birtist ritstjórnargrein í Morgunblaðinu þar sem kallað er eftir að rússneskir ferðamenn fái ekki að ferðast til Evrópu. Tilvitnun:

Rúss­ar leita því til Finn­lands, Lett­lands og Eist­lands og fljúga þaðan til áfangastaða sunn­ar í álf­unni án þess að hafa mikl­ar áhyggj­ur af þeim refsiaðgerðum sem eiga að bíta á Rúss­land. Flug­bannið er ein­mitt dæmi um refsiaðgerð sem al­menn­ing­ur í Rússlandi finn­ur óhjá­kvæmi­lega fyr­ir.

Þá hafa einnig verið brögð að því að sum­ir af „ferðamönn­un­um“ sem lagt hafa leið sína til Finn­lands hafi reynt að fara þaðan aft­ur heim til Rúss­lands með gamla tölvuíhluti og annað slíkt, sem nú er bannað að flytja til lands­ins vegna stríðsins. Það, að veita áfram ferðamanna­á­vís­an­ir fyr­ir allt Schengen-svæðið, er því bara enn ein leiðin sem Rúss­ar geta reynt að nýta sér, á marg­vís­lega vegu, til þess að fara í kring­um áhrif refsiaðgerðanna.

Hér er í raun og veru sagt að ferðamenn geti gatað refsiaðgerðir gegn Rússum með því að fylla ferðatöskur sínar af gömlum tölvuíhlutum og öðru slíku. Magnað. Ég veit ekki betur en að flestir þessara tölvuíhluta séu framleiddir í Kína og að Rússar geti keypt þá nýja þaðan.

Nei, gamlir tölvuíhlutir eru ekki að fara bjarga neinu ef Rússar eru í raun í einhverjum vandræðum. Boðskapurinn hérna er að þjarma að rússneskum almenningi því það muni á einhvern hátt leiða til vandræða fyrir Pútín. Banna Rússum að ferðast til Evrópu og halda því fram að þar með muni Rússar ekki ferðast neitt, ekki einu sinni með Wizz Air til Miðausturlanda. Þeir verði eirðarlausir og byrji að grýta rússnesku forsetahöllina, eða eitthvað. 

Viðskiptaaðgerðir gegn rússneskum almenningi, þar sem honum er meinað að ferðast til Evrópu, munu ekki gera annað en auðvelda rússneskum yfirvöldum að þjappa þjóð sinni saman gegn sameiginlegum andstæðingi. Við búum til hatur á Evrópu sem mun torvelda friðsamleg samskipti og viðskipti í framtíðinni. Við ýtum Rússum í fang Miðausturlanda, Kína og Afríku. 

Viðskiptaaðgerðir bitna sjaldnast á yfirvöldum. Gleymum því ekki. Þær bitna fyrst og síðast á óbreyttum borgurum. Fræg er hungursneyðin sem Bandaríkin og bandamenn kölluðu yfir Írak á meðan þáverandi forseti þeirra reisti hallir. Erum við að boða slíkt, aftur?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Reynsla mín af svíum er að þeir eru sparsamir og nægjusamir
Gott fólk þó okkur þyki það stundum framandi að rukkað sé fyrir kaffi og bensín

Nú horfir hinn almenni Svenson fram á að þurfa skjálfa úr kulda vegna  gífurlegra hækkana á rafmagni.
Spurningin í komandi kosningum (11 sept) er hvort hann skelli skuldinni á Pútín eða viðskiptaþvingarnir ESB 
svo hafa flokkarnir komið með alskyns misgáfuleg loforð um hvernig draga eigi úr yfirgangi glæpagengja í Svíþjóð
Tre röster: Så vill vi sätta stopp för gängkriminaliteten | SVT Nyheter

Grímur Kjartansson, 17.8.2022 kl. 15:22

2 identicon

Tvisvar hef ég reynt að fá vegabréfsáritun til rússlands, annars vegar hjá sendiráðinu í Helsinki og hins vega hjá sendiráðinu í Reykjavík.  Í bæði skipin var mér hafnað af því ég hafði ekki keypt skipulagða ferð með ferðaskrifstofu þar sem öll dagskrá ferðarinnar lá fyrir, þ.m.t. allir gististaðir.  Auðvitað gert til þess aðtúristar væru ekki að þvælast á stað sem þeir, að áliti yfirvalda, áftu ekkert erindi til. Rússland hefur aldrei komist útúr sovíetinu.  Rússneskur almenningur fær enga samúð frá mér fyrir að fá ekki að ferðast til frjálsrar Evrópu, þetta helvítis pakk er best geymt heima hjá sér.

Bjarni (IP-tala skráð) 17.8.2022 kl. 15:27

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Bjarni - sama var upp á teningnum þegar vinir mínir í Svíþjóð ferðuðust í gegnum austur þýzkaland fyrir örfáum árum síðan

Grímur Kjartansson, 17.8.2022 kl. 16:58

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ef þú veist allt um hversvegna þér er hafnað um vegabréfs umsókn ætturðu að vita að hinn almenni Rússi veit harla lítið um það. Ráða íslensk stjórnvöld ekki hverjir heimsækja þau?Hvað segir goða folkið um það? 

Helga Kristjánsdóttir, 17.8.2022 kl. 17:09

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Höfnunin ä Bjarna hefur greinilega gert hann reiðan út í Rússa. Nú á að gera Rússa reiða út í Evrópusambandið. Þetta er stríð sem allir tapa.

Geir Ágústsson, 17.8.2022 kl. 18:28

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Reyndar geta Rússar ferðast til Tyrklands, Víetnam og Taílands án hindrana. Allt vinsælir staðir sem Rússar halda mikið uppá. Grikkland og Ítalía tapa ferðamannatekjum á þessu banni. Tekjum sem þeir geta illa verið án.

Ragnhildur Kolka, 17.8.2022 kl. 23:46

7 identicon

Sæll Geir.

Árið 1943 kom út lítið kver e. Stein Steinarr er nefndist Tindátarnir,
myndskreytingar Nínu Tryggvadóttur.

Þar stendur m.a. þetta:

En gæfan reyndist hverful

    og gekk þeim ekki í vil.

Margt fer stundum öðruvísi,

    en ætlast var til.

Því tindátarnir bognuðu

    og bráðnuðu eins og smér.

Svo hörmulegan ósigur

    beið aldrei nokkur her.

               ---

Og þannig endar sagan –

    eða svona hérumbil

 –  og nú er ekki framar

    neinn tindáti til.

Getur verið að elítan beggja vegna víglínunnar
hagnist á því að draga stríð þetta á langinn;
nefnir nokkur vopnahlé, hvað þá frið?

Bráðar eru blóðnætur.

Húsari. (IP-tala skráð) 18.8.2022 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband