Næsta umferð nýyrða

Hinn bandaríski Þórólfur, Dr. Fauci, sagði um daginn að hann vildi ekki lengur nota hugtök eins og fullbólusettur eða örvaður. Nei, hann vill að talað sé um að fylgja bólusetningaráætluninni, eða halda bólusetningu sinni uppfærðri ("keeping your vaccinations up to date") sem þýðir á sérhverjum tíma sá sprautufjöldi sem yfirvöld vilja hafa í þegnum sínum.

Þetta er snjallt. Þá þarf Þórólfur ekki lengur að tala um að bólusettir séu "móttækilegir fyrir smiti og alvarlegum veikindum" (eins og þeir sem slepptu glundrinu) nema þeir láti sprauta sig aftur og aftur. Nei, þess í stað getur hann einfaldlega sagt að þeir sem halda bólusetningu sinni uppfærðri séu varðir, aðrir ekki. Þegar komið verður upp í sprautu 4 eða sprautu 5 þá þarf hann ekki að breyta því orðalagi. Hann þarf ekki að tala um þriðju örvunina eða álíka orðskrípi. Nei, fylgdu bara bólusetningaráætluninni (og mættu á 6 mánaða fresti í sprautu, eins og þeir í Ísrael).

Þegar veiran skýtur upp kollinum verður það svo þeim að kenna sem eru ekki að fylgja bólusetningaráætlun yfirvalda - ekki tilbúnir að láta sprauta sig í enn eitt skiptið með efnum sem eru sumum viðtakendum þess beinlínis lífshættuleg. Sem dæmi má nefna að fyrir karlmenn undir fertugu þá margfaldast líkurnar á hjartavöðvabólgu eftir hverja einustu sprautu af Pfizer- og Moderna-glundrinu skv. nýlegri rannsókn. Líkurnar tvöfaldast eftir eina sprautu af Pfizer-glundrinu og tvöfaldast aftur eftir seinni sprautu. Moderna-efnið kemur enn verr út. Viðbjóður.

En maður á nú ekki að vera svona viðkvæmur, er það nokkuð? Bara leyfa þessu að ganga yfir og treysta því að ekki verði komið á aðskilnaðarsamfélagi sem umbunar þeim þægu sem fylgja bólusetningaráætlun yfirvalda (sprauta nr. X annars færðu ekki aðgang að samfélaginu) og treysta því að lítið rannsökuð efni valdi ekki herskara ungs fólks varanlegum skaða á lífsleiðinni. Láta efnin njóta vafans. Treysta lyfjafyrirtækjunum. Styðja við ritskoðun samfélagsmiðla. Uppnefna þá sem færa á borðið önnur sjónarmið en þau sem yfirvöld halda fram.

Nei, glætan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í Ísrael fjölgar smitum ört þessa dagana eins og víða annars staðar þrátt fyrir að þeir eru byrjaðir að sprauta þeirri 4ju. Þeir segja að góðu fréttirnar séu að bóluefnið virkar. Það blasir við mér að mestu vandræðin með c-19 er þar sem mest er sprautað. Hér þakkar hver læknirinn á fætur öðrum að það sé mjög gott ástand hér vegna bólusetninga samt erum við nálægt heimsmeti í smiti. Allir hjóta að sjá að þetta er vegna óbólusettra ekki satt?

Heilþvegnir sölumenn BG sjá ekki samhengið að það eru nánast engin vandamál þar sem leyft er að nota Ivermectin t.d. Japan. Hvers vegna er ekki talað um þetta? Yfirvöld koma vísvitandi í veg fyrir lækningu með því að hindra aðgang að þessu lyfi sem virkar ótrúlega vel á cov-19 og gæti að öllum líkindum komið í veg fyrir flestar innlagnir á spítal. Það er engin óvissa með þetta lyf aukaverkanir nánast engar. 

Það er svo nauðsynlegt að sprauta börnin með efnum sem enginn getur fullyrt um afleiðingar að það þolir enga bið. Eru börnin að hrynja niður fyrst núna þegar vægasta afbrigðið er í gangi?

Ég get ekki ímyndað mér verri glæp en að nota áhrif og völd til skaða fjölda fólks. Skýringin á því að fólk mætir enn í sprautur er að finna í viðtali við Yuri Bezmanov frá 1985 á you tube.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 6.1.2022 kl. 12:22

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það er ekki byrjað að sprauta 5-11 ára þegar leikskólabörnin eru komin á dagskrá.

Þessum skrípaleik verur að taka enda.

Lækningu með lyfjum handa þeim sem þurfa og halda áfram með lífið sptautulaus.

Rúnar Már Bragason, 6.1.2022 kl. 13:06

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mig langar að vita hvað allt þetta fólk segir ef það kemur á daginn að þeir hjá Infowars hafi rétt fyrir sér: https://www.infowars.com/posts/global-alert-an-estimated-10-million-people-per-day-are-set-on-irreversible-countdown-to-vaccine-death-that-could-exterminate-billions-if-not-stopped-in-the-next-year/

Þeir sýna útreikninga, þeir vísa í heimildir.  Þeir eru svartsýnir.

Hvað er planið?

Ég held það sé ekkert plan.  Fólk veit ekkert hvað það er að gera, það bara gerir.  Anar út í einhverja óvissu, byggt á engum gögnum.

Alveg ferlega pirrandi, því fólk er sífellt glápandi á gögn í boði covid.is.  Gögn sem sýna þeim að það sem þau eru að hafa sig út í er vitleysa. (Burtséð frá því sem InfoWars hafa viðað að sér.)

Covid.is & gögn utan úr heimi (bent var á Ísrael) segja okkur að ADE er staðreynd.

Endalaust flæði fregna af íþróttamönnum (og fleirum) veltandi um koll, margfalt meira en á venjulegu áru segir okkur að hjarta-skemmdur eru staðreynd.

Hvað fleira af þessu verður staðreynd?  Krabbamein?  Bíð bara eftr því, get víst ekki annað.

Þessir tímar eru farnir að verða óþarflega áhugaverðir fyrir minn smekk.

Ásgrímur Hartmannsson, 6.1.2022 kl. 18:14

5 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Æ, þú ert aðeins of lasinn til að ég nenni að lesa bullið í þér.

Þórhallur Pálsson, 6.1.2022 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband