Furðuleg aukning í þrýstingi á að láta sprauta sig

Eftir 20 mánuði af veiru hefði maður haldið að samfélag manna væri búið að finna leiðir til að lifa með veiru. Það er búið að sprauta flesta í ríku löndunum og á að halda því áfram með ítrekuðum sprautum í sérstaklega áhættuhópa, lítur út fyrir að dauðsföllum á heimsvísu sem skráð eru á veiru fari fækkandi, margar meðferðir reyndar og margreyndar til að takast á við veiru og nýjar á leiðinni, búið að kortleggja áhættuhópa rækilega og jafnvel búið að renna upp fyrir einhverjum að árstíðarsveiflur séu viðbúnar.

Samhliða þessu ætti að hafa runnið upp fyrir einhverjum að stjórnlaus skuldsetning til að fjármagna lokanir og frelsissviptingar er ósjálfbær og jafnvel hættulegri en veiran, óbeinar afleiðingar sóttvarnaraðgerða búnar að taka mörg líf og í mörgum tilvikum munu halda áfram að taka líf í framtíðinni og veiruaðgerðir búnar að gera suma ofurríka á meðan aðrir fóru í ræsið. 

Bætum því svo við að hin svokölluðu bóluefni eru ekki mikið meira en persónuleg vörn gegn alvarlegum veikindum í besta falli (eins og fæðubótarefni og góður nætursvefn), gefið að þau geri ekki þá sem þau þiggja að öryrkjum eða líkum.

Bætum því svo að lokum við að þessar aðgerðir svokölluðu hafa í besta falli frestað hinu óumflýjanlega (gegn gríðarlegum fórnarkostnaði) eða verið eitt stórt leikrit án nytsemi. Grímur, tveggja metra reglur og lokanir skóla eru brandarar sem halda áfram að vera sagðir þótt allir séu löngu hættir að hlægja.

Í ljósi alls þessa hefði maður kannski haldið að veiran missi smátt og smátt stöðu sína sem hið eina sem skiptir máli.

En hið öfuga er að gerast.

Í Danmörku virðist almenningur núna vera tilbúinn að mismuna á grundvelli heilsutengdra ákvarðana.  

Í Austurríki á beinlínis að banna ákveðnum einstaklingum að taka þátt í samfélagi manna.

Í Ástralíu er auðvitað búið að innleiða mjög bragðsterka tegund af fasisma.

Á Íslandi er verið að endurtaka haustið 2020 og kenna örfáum ósprautuðum hræðum um.

Listinn er mögulega endalaus og þekur allan heiminn og það finnst mér furðulegt. Við þekkjum þessa veiru. Við kunnum að takast á við hana. Hún er ekki einhver svartidauði sem tæmir heilu dalina. Hún leggst þungt á suma en ekki aðra, eins og flensan. Hún stökkbreytist eins og allar veirur. Hún er sigruð af langflestum sem mynda svo mótefni sem ver ekki bara þá sem hafa það heldur aðra í kringum þá, og er miklu betri vörn er glundrið úr tilraunastofunum. Það er engin ástæða til að moka þúsundum milljarða í vasa lyfjafyrirtækja sem framleiða gölluð bóluefni til þess eins að geta framleitt gallaðar meðferðir.

En þetta er ekki staðan. Eftir því sem við vitum meira, getum meira og lærum meira, þeim mun harðar er gengið fram að láta sprautur, sem hafa augljóslega lítið að segja í baráttu gegn smitum, ná til allra! Ekki bara þverhausa meðal fullorðinna heldur ungra barna. Allra!

Eða réttara sagt: Allra í hinum ríku löndum.

Þetta er fullkomlega óskiljanlegt. Ég sé ekki rökin. Mér finnst freistandi að leita til órökréttra skýringa til að finna rökrétta skýringu.


mbl.is Boða útgöngubann fyrir óbólusetta í Austurríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Hið rökræna er að skilja þessa heimsku og þá vitum við í hvaða stöðu við erum.

Það er dapurlegt að hafa vissu fyrir því að einungis að 10-15% af fólki geti hugsað fyrir sig sjálft. 

Eggert Guðmundsson, 13.11.2021 kl. 00:42

2 identicon

Sæll Geir,

"Það er búið að sprauta flesta í ríku löndunum og á að halda því áfram með ítrekuðum sprautum í sérstaklega áhættuhópa.."
allar

Já, þeir vilja halda þessu áfram, sérstaklega þegar vitað er um þessar  áhættur og/eða alvarlegar aukaverkanir eftir þessar svokölluðu bólusetningar.   

No description available.

MUST SEE "24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots; EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)

COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH

COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)

COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)

Sjá einnig hérna:

https:/1000covidstories.com

vaxpain.us

https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html

https://www.vaxlonghaulers.com/

https://mypatriotsnetwork.com/patriot/wtf-over-1000-pages-of-horrifying-pictures-stories-facts-about-covid-vaccines/

Bólusett fólk ætti endilega að láta skoða

Bólusett  fólk ætti endilega að láta skoða blóðið sitt, nú og er mögulegt er þá bæði fyrir og eftir þessar svokölluðu  bólusetningar varðandi þá Graphene Oxið :

 

Dr. Robert Young Finds Graphene Oxide in All Four Vaccines and Other Disturbing Ingredients

American Scientists Confirm Toxic Graphene Oxide, and More, in Covid Injections

VACCINE INGREDIENTS REVEALED

Self-Assembling Nanotech Found in Moderna Vaccine  

Scanning & Transmission Electron Microscopy Reveals Graphene Oxide in CoV-19 Vaccines

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 11:33

3 identicon

Sæll,

Skulum aðeins heyra í honum Stefan Oelrich sem er í stjórn Bayern einn stærsti lyfjaframleiðandi í heimi.

Það er svo margt sem þessir aðilar segja en vegna þess hversu fjölmiðlar eru meðvirkir húsbændum sínum þá heyrum við ekkert fjallað um þetta.

https://www.youtube.com/watch?v=9jOt17LNjAU

Þröstur (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 13:27

4 identicon

Gleymdist að setja inn þennan link hérna. Þetta var sagt fyrir nokkrum vikum á World Health Summit 2021 sjá hér.

Öll lyfja elítan mætt.

https://www.worldhealthsummit.org/

Þröstur (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 13:31

5 identicon

leiðr.

Bólusett fólk ætti endilega að láta skoða blóðið sitt, nú og ef mögulegt er þá bæði fyrir og eftir þessar svokölluðu bólusetningar varðandi þá Graphene Oxið .

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 13:41

6 identicon

Athyglisvert en við Íslendingar áttum einn fyrirlesara á þessum World Health Summit sjá link:

https://www.conference.worldhealthsummit.org/Speakers/WHS2021#

Smellið á linkinn og finnið Ísland á listanum.

Dr. Kathryn Crowe

Organization:University of Iceland

Position:Postdoctoral Researcher

Country:Iceland

Þröstur (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 13:57

7 identicon

Sæll Eggert,

"Hið rökræna er að skilja þessa heimsku og þá vitum við í hvaða stöðu við erum."

Eitthvað af þessum langtíma niðurstöður eftir þessar svokölluðu bólusetningu eru farnar að koma í ljós.  

"A group of medical doctors and the leader of the Turkish Welfare Party issue a grave warning to the world. They show photos of babies born with severe genetic birth defects, like a baby with a tail, one eye, covered in hair or with multiple arms and legs. This is what could happen, as the result of the gene therapies that are injected into our people.."



"Fact is that many thousands of babies are born dead, after the pregnant mothers were injected. Something so disastrous happened to the unborn babies in the womb, that killed them."

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 14:06

8 identicon

Sæll Þröstur, 

Það er svo margt sem að þessir líka ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlar hér tala alls ekki um, og/eða hvað þá einu sinni spyrja um varðandi alvarlegar aukaverkanir eftir þessar svokölluðu bólusetningar. Því að aðalatrið hjá þeim er koma inn þessum svokölluðu bólusetningum sama hvað fólk segir.
KV.



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 13.11.2021 kl. 15:50

9 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"kenna örfáum ósprautuðum hræðum um"

Víðir Reynisson hafnaði þessu reyndar í útvarpsviðtali í gær eða fyrradag. Spurður hvort það hefði komið til tals að taka upp mismunun milli sprautaðra og ósprautaðra hér landi, svaraði hann á þá leið að slíkt hefði lítið komið til tals, enda væri það tilgangslaust þar sem núverandi smitbylgja er fyrst og fremst borin uppi af hinum "bólusettu".

Takk fyrir að staðfesta það Víðir.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.11.2021 kl. 16:59

10 Smámynd: Geir Ágústsson

Víðir fær sennilega skammir í hattinn fyrir að tala úr takt við trommusláttinn. Fengi hann sömu spurningu í dag myndi svarið verða töluvert loðnara, ég er nánast handviss um það. 

Kannski hann sjálfur hafi lært auðmýkt eftir skammirnar sem hann fékk fyrir partýhelgina sína þar sem hann sjálfur smitaðist. 

Geir Ágústsson, 13.11.2021 kl. 19:11

11 identicon

Já, eins og þú segir "þetta er fullkomlega óskiljanlegt". Og þá segi ég eins og margir hafa sagt "það er einhver annar tilgangur með þessu öllu saman", veiran er bara fyrirsláttur.

Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband