Fréttir og tölur

Í frétt sem kom út í dag á visir.is segir að nú sé mikil útbreiðsla á delta-afbrigðikórónuveirunnar í Flórída-ríki Bandaríkjanna. Fólk er ekki að taka bóluefnin sín og ég veit ekki hvað.

Ég skrifaði svolitla athugasemd við fréttina og spurði hvort hún væri ekki viku of sein og vísaði í tölfræði veirunnar í ríkinu sem um er rætt:

https://www.worldometers.info/coronavirus/usa/florida/

fl1

fl2

Athyglisvert að sjá að þótt smit hafi aldrei mælst fleiri í ríkinu (sem er ófullkominn mælikvarði, en samt) þá endurspeglaðist það ekki í dauðsföllunum. En bíddu nú við, er útbreiðsla veirunnar ekki mikil vegna lítilla bóluefnanotkunar? Varla er það þá bóluefninu að þakka að dauðsföll fylgja ekki smitum, eða hvað?

Athugasemdin:

ritskodun

Mér fannst ég nú bara vera nokkuð uppbyggilegur hér, að hnýta gögnum við fullyrðingar. En greinilega ekki því nú er búið að fjarlægja athugasemdina. Kannski innsláttarvilla mín ("of" varð "og") hafi gert útslagið en ekki tilvísun í staðreyndir. Hver veit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli fjölmiðlar séu með starfsmenn eingöngu til að eyða út óþægilegum kommentum á vefsíðum þeirra? Það er eins gott að hlýða annars missa þeir fjölmiðlastyrkinn sinn.

Það er bara ekki hægt að skoða ísl fjölmiðla vegna ritskoðunar enda hef ég ekki verið að fylgjast með þeim enda skelfilegur heilaþvottur hér á ferð.

Ekki einu sinni hægt að stóla upp á að worldometers komist í gegnum síuna þeirra.. Uss

Fékk mér kaffibolla í morgun og settist niður og horfði á klukkustunda langa heimildarmynd sem þýski rannsóknarblaðamaðurinn Paul Schreyer fer yfir staðreyndir um the war on bioterror. Mjög áhugarvert og fræðandi upplýsingar. https://www.youtube.com/watch?v=d3WUv5SV5Hg sérstaklega fyrir þá sem hafa fengið nóg af áróðursherferð ísl fjölmiðlasteypunnar.

Kv, Þröstur

 

Þröstur (IP-tala skráð) 20.8.2021 kl. 11:53

2 identicon

Sæll Geir, 

Takk fyrir þessar upplýsingar. 
 
"Fólk er ekki að taka bóluefnin sín og ég veit ekki hvað."

Ástæðan fyrir því hlýtur að liggja í því að þessi svokölluðu bóluefni eru á neyðarleyfi með "skilyrtu markaðsleyfi" og á tilraunastigi, svo og þar sem að þessi svokölluðu bóluefni eru orðin þekkt fyrir alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir bólusetningar. Nú þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlar hér passa reyndar ennþá mjög vel uppá að minnast ekki á það allt saman.
Í dag þá höfum við hér á landi 184 alvarlegar aukaverkanir, 26 dauðsföll, 8 lamanir, 140 sjó- og augnavandamál skráð hjá Lyfjastofnun Íslands (lyfjastofnun.is), svo minnst sé á eitthvað, svo og höfum við frétt af alltaf 800 konum með óreglulegar blæðingar eftir bólusetningar. Þrátt fyrir það allt saman, þá er aðalatriðið hjá heilbrigðisyfirvöldum hér að troða inn þessum svokölluðu bóluefnum í börn og unglinga, þar að sem EKKI stendur til að athuga neitt sérstaklega áður allar þessar alvarlegu aukaverkanir, hvað þá varðandi þessi nýju alvarlegu margkerfisbólguheilkenni (Multisystem Inflammatory Syndrome MIS-C), sem að 4.404 börn hafa fengið og 37 börn hafa látist af (samkvæmt CDC) eftir þessar svok-lluðu bólusetningar.

Ég er á þeirri skoðun, að menn hljóta að vera fá einhverja bónusa fyrir að troða þessu eiturefna- drasli í börn og unglinaga með öllum þessum áhættum og alvarlegu aukaverkunum, svo og þar sem við höfum heyrt um slíkt í erlendum fjölmiðlum.
KV. 

 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.8.2021 kl. 17:29

4 identicon

Heilsu-kvíði/ótti er versta afbrigðið.

Veikir ofnæmiskerfið til muna.

Og einnig hindrun tilfinninga tengsla við vini og ættingja.

Líklega betra að vera lifandi/dauður en sprell/lifandi.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 20.8.2021 kl. 23:29

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Facebook stendur víst að baki þessari ritskoðun. "Spam" kalla þeir þetta.

Geir Ágústsson, 21.8.2021 kl. 11:19

6 identicon

Sæll Heiðar Þór, 

Já, rétt hjá þér. Þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrku fjölmiðlar hér eru í því að öskra smit, smit og aftur smit, þegar megnið af öllum þessum niðurstöðum úr PCR prófum eru ekkert annað en falsakar jákvæðar niðurstöður, svo og þar sem að heilbrigðisyfirvöld hér eru í því, að segja við heilbrigt fólk aftur og aftur að það sé veikt (eða smitað). Heilbrigðisyfirvöld eru í því að koma inn hræðsluáróðrinum með styðjast við þessi líka ónákvæmu og óáreiðanlegu PCR próf til að reyna þannig halda uppi farsóttarstiginu. Allt gert til þess eins koma inn þessum svokölluðu bólusetningum án upplýsinga um áhættur og alvarlegar aukaverkanir.
KV.  


    

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.8.2021 kl. 13:26

7 identicon

Sæll aftur Geir,
Já , Facebook er með mjög mikla ritskoðun í gangi, svo og orðin þekkt fyrir að brjóta lög.
KV.

   

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.8.2021 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband