Ekki lifa lífinu, haltu lífi!

Yfirvöld flestra ríkja (en ekki allra) hafa í 18 mánuði boðað að það sé mikilvægara að halda lífi en lifa lífinu, nema auðvitað þú sért í hópum sem fá ekki heilbrigðisþjónustu í heimsfaraldri og deyja fyrir vikið fyrr en ella. Til dæmis krabbameinssjúklingar.

En eru það ekki orðin þreytt skilaboð?

Þarf ekki að spyrna við fótum?


mbl.is Ekkert plan B fyrir Þjóðhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei, eðlilegt fólk á ekki í neinum erfiðleikum með að lifa lífinu þó nauðgunarleikunum í Vestmannaeyjum verði aflýst aftur og pöbbar í Danmörku loki á miðnætti.

Vagn (IP-tala skráð) 21.7.2021 kl. 14:36

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Jú það þarf sko að spyrna við fótum, eini sanni faraldurinn hérna er af stækkandi hópi fólks sem er skaðað, sumt fyrir lífstíð eftir þessi svokölluðu "bóluefni".

Þrátt fyrir að tilkynningar um afleiðingar eftir sprauturnar séu komnar á þriðja þúsund, þá var þeim haldið áfram, og það nýjasta er að fólk "þurfi" að fá þriðju sprautuna í haust!

Það er sko löngu kominn tími til að fólk fari að vakna, þetta hættir ekkert fyrr en við segjum stopp.

Kristín Inga Þormar, 21.7.2021 kl. 17:11

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Lífið er sennilega óbreytt fyrir þá sem eiga enga vini, nenna ekkert að ferðast, hafa öruggar tekjur sem opinberir starfsmenn, eru ekki að þróa með sér krabbamein, lifðu af bóluefnin, stunda ekkert félagslíf og fagna moldvörpulíferni sem æðstu dyggð. Og lifa í ótta. Svo ég skil viðhorf þitt að því leyti, en styð ekki.

Geir Ágústsson, 21.7.2021 kl. 17:41

4 identicon

Þó þú getir ekki ferðast nema elta útikamra og deyja áfengisdauða við útisvið hvert kvöld á það sem betur fer ekki við fjöldann. Og þeir eru ekki merkilegir vinir þínir ef þeir þola þig ekki nema sem drykkjufélaga í skjóli myrkurs innan um stóran hóp ölvaðs fólks. Það er nokkuð langt síðan einhver hélt sig geta komist upp með alkaholisma með því að kalla hann félagslíf.

Vagn (IP-tala skráð) 21.7.2021 kl. 20:14

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Það hlakkar í Vagni að lesa fréttir 2020 árið 2021:

Þetta er svaka­legt; álíka og að fresta jól­un­um. Þið verðið bara að sætta ykk­ur við þetta; það verða eng­ar gjaf­ir í ár og eng­in messa,“ seg­ir Dóra Guðrún Þór­ar­ins­dótt­ir, grunn­skóla­kenn­ari í Vest­manna­eyj­um, um þá ákvörðun að af­lýsa Þjóðhátíð í bæn­um vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/07/25/eins_og_ad_fresta_jolunum/

Kannski síspilun á sömu plötu sé orðinn ávanabindandi vani.

Geir Ágústsson, 21.7.2021 kl. 20:51

6 identicon

Hún hætti ekki þar... „Við fjöl­skyld­an ætl­um alla vega að halda okk­ar striki og í stað þess að tjalda í Daln­um tjöld­um við bara heima í garði. Í stað þess að fara á tón­leika horf­um við bara á Tóna­flóð á RÚV og Heima með Helga Björns í Sjón­varpi Sím­ans. Það verður brenna á miðnætti á föstu­dags­kvöld­inu og þá ger­um við okk­ur ferð í Dal­inn og svo verður brennukaffi heima á eft­ir. Það er mjög mik­il­vægt að halda sömu venj­un­um, klæða sig upp, baka og smyrja fyr­ir krakk­ana og okk­ur öll; það verða fast­ir liðir eins og venju­lega – bara heima í garði.“     Dóra Guðrún hef­ur verið að taka púls­inn á fólk­inu í kring­um sig og seg­ir marga hafa sömu áform. „Það verður tjaldarölt milli vina og kunn­ingja alla helg­ina; annað gengi ekki upp enda er Þjóðhátíð fyrst og fremst við fólkið. Hún er hluti af sál­inni okk­ar og eng­in leið að leggja hana niður, þótt hún verði í þetta eina skipti með óhefðbundnu sniði.“     Hún á von á fjöl­mörg­um gest­um til Eyja um versl­un­ar­manna­helg­ina. „Það koma alla vega fimm manns til mín og mér skilst að lítið sé um afp­ant­an­ir hjá Herjólfi. Fólkið sem kem­ur alltaf, brott­flutt­ir Eyja­menn, aðrir vel­unn­ar­ar og tengt fólk, held­ur bara sínu striki og kem­ur. Margt af þessu fólki er löngu búið að leigja sér hús og gist­ingu.“   
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/07/25/eins_og_ad_fresta_jolunum/

Þó þér finnist það ótrúlegt þá virtist fólk geta lifað lífinu glatt og ánægt á fjölskylduvænni hátt en að veltast um Herjólfsdalinn hlandblautt og sauðdrukkið.

Kannski síspilun á sömu plötu sé orðinn ávanabindandi vani. Þessi ekkafulli sári grátur þinn í hvert sinn sem opnunartími kráa er takmarkaður eða fylleríshátíð aflýst er orðinn leiðigjarn.

Vagn (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 01:01

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mér verður nú hugsað til - Who wants to live forever

og ekki var sá eilífi  hamingjusamur í kvikmyndinni - Highlander


There's no time for us
There's no place for us
What is this thing that builds our dreams, yet slips away from us
Who wants to live forever

Grímur Kjartansson, 22.7.2021 kl. 17:37

8 identicon

May be an image of text that says 'Ok so it's Covid 19 but the vaccines were made a year before

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 18:39

9 identicon

Sömu gæði upplýsinga frá þessum hóp og venjulega.

Sömu umbúðir fyrir "lagfæringu" andstæðinga bóluefna. Enda lítið gagn í að setja dagsetningu á flipa sem ekki sést nema opna umbúðirnar. Og Svíar nota ekki röðina ár, mánuður, dagur.

Vagn (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 20:24

10 identicon

Vagn,

Þetta er ekki rétt hjá þér, því þetta sem þú birtir (hérna fyrir ofan) er eftir lagfæringu eða umbúðir sem að notaðar eru núna í Svíþjóð, hins vegar er þetta frá mér hins vegar umbúðir frá Pólandi.

KV.   

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 21:39

11 identicon

leiðr.
hins vegar er þetta frá mér umbúðir frá Póllandi.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 21:44

12 identicon

Hér er nákvæmlega sama mynd fyrir "lagfæringu".

Og nokkrar í viðbót, allar án þessarar undarlegu dagsetningu.   https://www.google.com/search?sa=G&hl=en-IS&tbs=simg:CAES9QEJwGrSht5bpYEa6QELELCMpwgaOwo5CAQSFPA_13RuwDaAjrBrcI_1kWwD6nBeMPGhuNmGmbjPJwWWE3zN4oZfwda15SfVDsbq-_1rGggBTAEDAsQjq7-CBoKCggIARIEykRQTAwLEJ3twQkaiAEKGwoIZG9jdW1lbnTapYj2AwsKCS9tLzAxNWJ2MwodCgpob3Jpem9udGFs2qWI9gMLCgkvYS8ybXF2emMKFgoDZG902qWI9gMLCgkvbS8wMjdjdGcKFwoFcGFwZXLapYj2AwoKCC9tLzA2NDFrChkKBWxhYmVs2qWI9gMMCgovbS8wNWMwbjZrDA&sxsrf=ALeKk005C2cQku6nL6N2s4bsST-R46ag_Q:1626994460956&q=astrazeneca+vaccine+4ml+vial&tbm=isch&ved=2ahUKEwiMxJXX4vfxAhXNyaQKHcLPDbYQjJkEegQIAhAC&biw=1494&bih=721#imgrc=q2KHDFbqAv55eM

Vagn (IP-tala skráð) 22.7.2021 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband