Tilgangslaus tilraunastarfsemi

Að sögn meginstefsins eru bóluefnin alveg rosalega skilvirk, áhættulaus og nauðsynleg.

Þau verja aldraða og viðkvæma og veiran skoppar hreinlega í ræsið af bólusettum.

En hvað með þá sem eru algjörlega utan áhættuhópa? Ungir, hraustir og allt það?

Þeir geta borið smit!

Til hverra?

Jú, annarra!

Líka til aldraðra og áhættuhópa með bóluefni í blóðinu?

Nei, auðvitað ekki. Bóluefnin virka.

Jú, þeirra! Bóluefnin eru ekki algjör vörn!

Eigum við þá að sprauta börnin líka?

Nei, auðvitað ekki! Þau hrista af sér þessa veiru. Það hafa rannsóknir seinustu 18 mánaða sýnt.

Jú, að sjálfsögðu! Þau geta borið veiruna áfram! Markmiðið er jú að útrýma landlægri, loftborinni veiru.

Það hefur að vísu ekki tekist með flensuna, en núna tekst það!

Jeminn eini, kverkatakinu á aldrei að sleppa. 


mbl.is Bólusetning að hafast en 828.822 skammtar eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

828.822 skammtar eftir??? búið að sprauta 238.814 sumir fá bara eina sprautu þ.e. þeir sem fengu Jansenbóluefnið. Við landsmenn erum ca. 360.000. Mér sýnist mikill afgangur muni verða af bóluefnum. Er kannski von á svo mörgum flóttamönnum?????????? eða á að bólusetja fólk aftur og aftur og aftur og aftur???????????????  Hvaða bull er í gangi??? eru stjórnvöld ekki öllum mjalla??????????

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.6.2021 kl. 20:39

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Ég gat ekki heldur orða bundist þegar ég sá þessa ömurlegu frétt og skellti líka í blogg um hana.

Það á að gera okkur að nálapúðum í lyfjatilraunum fyrir lyfjarisana, íslensk yfirvöld eru löngu búin að semja um það.

Kristín Inga Þormar, 18.6.2021 kl. 23:16

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Allir þurfa bóluefni, segja þeir.  Þeir segja líka að bóluefnin virki ekki.  Sömu menn.

Hver er tilgangurinn þá?

Heimurinn var skárri fannst mér, þegar anti-vaxxer liðið vildi ekki sprauta bóluefnum í alla.

Eina leiðin núna til þess að ástandið verði furðulegra, er að fólk byrji að breytast í zombíur.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.6.2021 kl. 00:48

4 Smámynd: Halldór Jónsson

ég hef látið bólusetja mig  gegn influenmsu í áratugi og heilsufarið snarbatnaði við það. Bólusetja frekar en ekki og absólútt gegn hættulegustu pestunum ein sog Covid verður smeð okkur lengi.

Halldór Jónsson, 19.6.2021 kl. 13:06

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Halldór,

Frábært! Þú hefur þá væntanlega trú á bóluefninu og þorir að umgangast óbólusettar yngri kynslóðir sem eru að "taka sénsinn" á eigin ábyrgð, og án þess að beita þær beinni og óbeinni pressu og jafnvel skerðingu á réttindum og frelsi.

Og gerir enn.

Geir Ágústsson, 19.6.2021 kl. 13:28

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Má bmenda Halldóri á að venjuleg inflúensa er allt annar vírus en Covid. Covid 19, heitir það af því að covid uppgötvaðist fyrst (eða var búið til) árið 2019. 
Í öðru lagi má benda á að covid bólusetning svokölluð á fátt ef nokkuð skylt með hefðbundinni bólusetningu þar sem vírusinn er settur í fólk til að mynda mótefni. Þessar sprautur eru kokteill af öðrum meiði, sem aldrei hefur verið reyndur fyrr.

Það fæst sama niðurstaða af því að fá flensu og við að fá bólusetningu. Ónæmi. Engin leið er að sjá fyrir um hvort þú hefur sloppið við flensu vegna bólusetningar. Ekki fá allir flensu. Einnig verða margir fárveikir og deyja jafnvel eftir flensusprautur, sem hugsanlega hefðu ekki fengið flensuna yfirleytt.

Allavega...allar fullyrðingar um þetta eru ályktanir en ekki staðreyndir.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.6.2021 kl. 18:54

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Vil taka fram að ég er ekki bólusettur og bý á vinsælum áfangastað fyrir útlendinga sem aðra á Íslandi, þar sem enn hefur ekki komið upp eitt tilfelli af covid.

Í fyrra Var ég á 15 manna vinnustað í reykjavík, þar sem tekin var covid skyndiprufa af öllum. Helmingur greindist með covid án þess að hafa hugmynd um það, enda allir mættir hressir til vinnu. Engum varð meint af þessu nema hvað að ríflega sjötug kempa sagðist hafa haft einhverja lumbru í nokkra daga.

Þetta samræmist illa fyrir mér þeim hryllings og hræðslusögum sem druna stanslaust í fjölmiðlum. Engin náinn, né neinn sem ég þekki, utan téðra vinnufélaga, hefur fengið þetta. 
Kannski ekkert skrítið, því þeir sem hafa fengið þetta eru á við íbúafjölda á Selfoss.  Megnið vissi ekki einu sinni af því fyrr en þeim var sagt það.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.6.2021 kl. 19:08

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Á einu og hálfu ári hafa semsag 1,7% þjóðarinnar fengið þessa lumbru. 0,008% hafa làtist, þar af helmingur dauðsjúkur af öðru á líknardeild þar sem enginn átti hvort eð er afturkvæmt.

Vert þess að leggja samfélagið í rúst yfir? Þess virði að spandera pening sem nægði til að leggja hringveginn í göng fyrir?

Örugglega persónubundið hvað mönnum finnst, en fyrir mér er sú vitfirring og múgæsing hættulegri og skaðvænlegri en nokkur veira hefur nokkru sinni orðið.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.6.2021 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband