Fimmtudagur, 25. mars 2021
Vesturlönd og veiruleiki
Á Visir.is er fréttaflokkur sem kallast Þróunarsamvinna. Fyrirsagnirnar í dag segja svolitla sögu:
Og hvaða saga er það? Jú, á meðan fólk á sumum svæðum í heiminum á við stríð, vatnsskort, hungursneyð og stríðsátök eru Norðurlöndin að gera hvað? Leggja áherslu á loftslagsmál!
Þetta verður alveg einstaklega hjákátlegt, og jafnvel veruleikafirrt, eftir að hafa lesið nýjustu grein Ásgeirs Ingvarssonar hjá Morgunblaðinu, aðgengileg skráðum notendum mbl.is (áskrifendum og öðrum) hér.
Þar kemur meðal annars eftirfarandi fram:
... þegar dauðsföll vegna umhverfisþátta voru skoðuð fyrir árið 2017 komust loftslagsbreytingar varla á blað. Fyrir hvert dauðsfall sem tengja má við loftslagsbreytingar það árið voru um fimmtán dauðsföll sem rekja mátti til mengunar utandyra og nærri níu dauðsföll vegna mengunar innandyra. Heilsuspillandi drykkjarvatn verður nær sjöfalt fleiri að bana en flökt í loftslaginu. Mælt í mannslífum ætti að vera mun ofar á forgangslista þjóða heims að sporna gegn blýmengun, laga meðferð á skólpi og gera átak í handþvotti á heimsvísu.
Svo á meðan sumir í heiminum þjást úr reykeitrun vegna eldamennsku á opnum eldi innandyra vegna skorts á rafmagni, drekkur mengað vatn og upplifir uppskerubrest þá sitja Norðurlandabúar á þingum og ræða loftslagsmál.
Vestræn veruleikafirring, kannski?
Ég geri lokaorð Ásgeirs að mínum: Hvað ætli verði um Vesturlönd sem eru orðin svo heltekin af ótta við loftslagshamfarir að skynsemisraddir virðast hvergi geta komist að?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Eins og með Covid þá er skynsemin á einhverri annarri plánetu. Ætli við lifum í hliðarveröldum?
Rúnar Már Bragason, 25.3.2021 kl. 16:26
Rúnar,
Eftir meðmæli er ég byrjaður að lesa bókina A Conflict of Visions: Ideological Origins of Political Struggles eftir meistara Thomas Sowell. Er bara nýbyrjaður en sé að markmiðið er að útskýra eða varpa ljósi á af hverju allskyns málefni raða í kringum sig svipuðum hópi "með og á móti" einstaklinga. Af hverju er sama manneskja með/á móti losun manna á koltvísýringi í andrúmsloftið, lögbundnum lágmarkslaunum og hörðum sóttvarnaraðgerðum?
Ég hlakka til að komast til enda í þessari bók.
Geir Ágústsson, 25.3.2021 kl. 20:39
Kíkti aðeins á prufu og virkar mjög áhugaverð. Setur upp sem tvo andstæða hópa en sýnist samt viðurkenna að sé mun flóknara þe. getur tilheyrt báðum hópum. Vert að skoða betur.
Vil benda á eina skemmtilega - Humankind:A Hopeful History eftir Rutger Bergman. Þar er hann að benda á að ekki er allt eins og það sýnist og tekur t.d. dæmið um Standford tilraunina (sem má sjá á Netflix). Eins og hann segir, skv. dæmum sem hann tekur, að sannleikurinn kemur sjaldnast fram í fjölmiðlum og/eða rannsóknum (annaðhvort bjagað eða ýkt). Betra að segja frá á dramantískan hátt en sannleikann sem oft er frekar ódramantískur (þurr og leiðinlegur).
Rúnar Már Bragason, 25.3.2021 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.