Núna eru allir rasistar

Eru ekki allir rasistar núna?

Þú þarft bara að detta hænuskref frá hinni réttu línu og, voila!, þú ert rasisti! Eða fasisti! 

Kannski eru allir þá bara rasistar og hugtakið gjaldfellt niður í ekkert.

Í mínum gamla grunnskóla varstu uppnefndur hommi við minnsta tilefni. Ég veit ekki hvaða sálfræðilegu áhrif það hafði en ég veit ekki til þess að neinn af minni kynslóð (fæddur 1978) hafi neitt á móti því að fólk af sama kyni giftist, ættleiði og þannig, á meðan það er ábyrgt. Sem sagt, uppfylli sömu skilyrði til lífsins og allt mögulegt annað fólk.

En gott og vel, höldum áfram að gjaldfella hugtök. Það gagnast engum en er í tísku.

Hommar.


mbl.is Sakar Pétur um rasisma og kvenfyrirlitningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég veit ekki af hverju er verið að draga þessa húmorslausu kellingu á torg og láta hana gala.

Það mátti leyfa henni að rykfalla í kjallaranum sínum, þar sem hún sörfar Twitter.

Ásgrímur Hartmannsson, 9.6.2020 kl. 19:12

2 identicon

Er konan ekki bara atvinnuvælukjói?

Er ekki allt hræðilegt og rasismi alls staðar?

Hef ekki hlustað á hana hingað til og þessi væll í henni mun valda því að ég mun loka augum og eyrum þegar hún tjáir sig framvegis. 

Tek undir með Ásgrími hér að ofan. 

Helgi (IP-tala skráð) 9.6.2020 kl. 19:14

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sumir ganga jafnvel svo langt að sýna hvorugkyninu fyrirlitningu. cool

Fjölmargir hægrimenn kalla alla vinstrimenn kommúnista og hafa þar með væntanlega gjaldfellt kommúnismann.

En nú má ekki lengur tala um rasisma, þar sem kynþættir eru ekki til.

Rasismi er því ekki til, allt byggt á misskilningi og málið því dautt. cool

Þorsteinn Briem, 9.6.2020 kl. 19:22

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

"233. gr. a. Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum."

Almenn hegningarlög nr. 19/1940

Þorsteinn Briem, 9.6.2020 kl. 19:38

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Var þetta grín framið á opinberum vettvangi? Það held ég ekki. Það má deila um hversu smekklegt svona grín er, en að kalla það rasisma er gjaldfelling á því hugtaki.

Þorsteinn Siglaugsson, 9.6.2020 kl. 19:46

6 Smámynd: FORNLEIFUR

Sema hefur drullað yfir gyðinga og telur það til mannréttinda sinna.

FORNLEIFUR, 10.6.2020 kl. 06:15

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Hvernig væri að senda Selmu eins og einn DVD-disk með Family Guy þáttum? Hún yrði sennilega græn af reiði yfir mörgu sem þar er látið flakka.

Geir Ágústsson, 10.6.2020 kl. 11:53

8 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er búið að banna Little Britain sá ég í dag. Ætli sé ekki búið að banna Family Guy líka. Þar með talið hið óborganlega atriði um "Mr. Cleany Cleany", sem að sjálfsögðu var af asískum uppruna.

Þorsteinn Siglaugsson, 10.6.2020 kl. 19:57

9 Smámynd: Örn Einar Hansen

Eitt af því fyrsta sem stingur í augun, er notkun orðsins "white supremisist". Og ég spyr, heldurðu að það sé verið að tala um Gunna, bónda á hvoliu í einhverjum afdala tungum? Að sjálfsögðu ekki, hverja þá ... til þess að skilja þessa orðanotkun, þarftu að rýna í "The book of Zion". Bók, sem nasistar notuðu til að byggja hátur á gyðingum. En samkvæmt þessu lygariti, eiga gyðingar að telja sig "æðri" öðrum.  Það sem menn einnig þurfa að athuga, er þegar notað eru orð eins og "zionismi", bent er á "gaza" og dauða glæpamannsins í höndum lögreglunnar líkt við palestínumenn.

Gott að lesa "https://www.thelocal.se/20180206/breaking-down-anti-semitism-in-swedenbreaking-down-swedens-antisemitism-problem"

En vandamálið er stærst meðal múslima, sem skýrir hvað er að baki því sem nú er að gerast þarna vestra.  Og einnig, af hverju fólk á norðurlöndum tekur þátt í þessu.

Til dæmis, eitt af því sem allir hér á norðurhveli hafa vaxið upp við er að gyðingar stálu ísrael frá aumingja palestínumönnum. Lygar, í meir en þúsund ár nurlaði fólk saman fé og um aldamótin 18/19 hundruð keyptu þeir þetta land.

Annað, sem menn þurfa að hafa í huga ... er orðið "rasismi". Þetta er annað lygaorð, sem notað er af fólki sem sjálft eru anti-semítar. Því það er bara til einn kynstofn, homo sapiens sapiens. Við skilgreinum ekki homo sapiens, út frá litarhafti ... heldur út frá því að vera hugsandi.

Þetta er dæmi um tvær orðagildrur, sem menn þurfa að hafa í huga í þessu sambandi. En lesið greinina, og þar munuð þið skilja þetta aðeins betur. En að lokum, er að pólitíkusar og ungir stúdentar í vestur evrópu hafa löngum unnið að auknum anti-semitisma, með að vís vitandi auka innflutning á fólki frá mið austurlöndum, og afríku ... frá svæðum, sem þessi hugsanaháttur er ríkur.  Sama á við demókrata í BNA.

Til dæmis, öll stríðin í mið-austurlöndum í þessari öld af hálfu BNA, frá Írak til Lýbíu, notuðu Ísrael sem blóraböggul.  Sama á við tilhneigingu margra þar vestra við að reyna að gera saudi ábyrga fyrir 9/11. Saudar eru það eina sem hægt er að segja, sé "vinsamlegir" gegn ísrael á svæðinu.

Þetta er allt dulinn fasismi, en eins og Churchill sagði ... þegar orðið fasismi er ekki lengur vinsælt, munu fasistar kalla sig anti-fasista. Sama á við kynþátta hatara.

Örn Einar Hansen, 11.6.2020 kl. 05:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband