Fimmtudagur, 6. desember 2018
Þegar hreinna eldsneyti er gert of dýrt
Kol halda áfram að knýja heiminn.
Fyrir því eru góðar ástæður.
Í fyrsta lagi hafa mörg ríki lagt meiri áherslu á að byggja upp iðnað en vernda loftgæði. Almenningur fær ekki að lögsækja þá sem spúa eitri yfir heimili þeirra og jarðir. Svona hegðuðu vestræn stjórnvöld sér á sínum tíma.
Í öðru lagi hafa mörg ríki (önnur en þau fyrrnefndu) lagt mikla áherslu á að kæfa iðnað með íþyngjandi álögum á hagkvæmt og tiltölulega hreint eldsneyti.
Iðnaður er því að flýja frá einum hópi ríkja til annars - úr íþyngjandi háskattaumhverfi þar sem hreint og hagkvæmt eldsneyti er gert óþarflega dýrt, og í umhverfi þar sem iðnaður fær að eitra fyrir almenningi.
Þess vegna er kolanotkun að aukast og mun halda áfram að aukast á meðan Vesturlönd eltast við vindmyllur (bókstaflega) en ríki eins og Kína og Indland eltast við iðnaðinn.
Kolanotkun jókst á milli ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.