Þriðjudagur, 12. júní 2018
En ...
Nýr meirihluti í Reykjavík hefur tekið upp stefnumál fráfarandi meirihluta en lofar núna allt öðrum afleiðingum. Sjáum hvað setur.
Þegar stjórnmálamenn eru í vandræðum með að stilla af framboð og eftirspurn er þá eitthvað til ráða?
Já, er það ekki?
Hvernig stilla menn af eftirspurn eftir eftirsóttustu svæðunum á tónleikum og framboði á þeim? Menn rukka meira fyrir sum svæði en önnur.
Hvernig tryggja menn að það mæti einhver í bíó á þriðjudagskvöldi? Jú, veita afslátt. Hvað með föstudagskvöldin? Þá er eftirspurnin í hámarki og því um að gera og rukka eins mikið og hægt er án þess samt að sýna fyrir tómum eða hálftómum sal. Það er jú hluti af andrúmsloftinu að horfa á mynd í fullum sal.
Í sveitarstjórnum vefjast lögmál framboðs og eftirspurnar oft alveg rosalega fyrir mönnum. Það skal byggja ódýrt á dýrustu lóðunum! Það skal halda fólki frá vegum á álagstímum þótt aðgangur að þeim kosti jafnmikið allan sólarhringinn! Það skal rukka lítið fyrir leikskólapláss þótt eftirspurnin sé gríðarleg en niðurgreiða menningarstarfsemi sem engin eftirspurn er eftir.
Kannski leynist eins og einn borgarfulltrúi innan Viðreisnar sem skilur einföldustu grunnatriði hagfræðinnar og getur komið þeirri þekkingu áleiðis á fundum meirihluta borgarstjórnar. Kannski. Líklegt er samt að menn ætli að fylgja þeirri formúlu sem heitir að ef þú gerir sama hlutinn tvisvar en býst við mismunandi niðurstöðu þá ertu geðveikur (en til vara í afneitun).
Vilja draga úr fjölda bílferða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvert sinn sem maður sér einhverjar gatnaframkvæmdir í Reykjavík þá býst maður við að þar verði sett upp þrenging eða hraðahindrun
Borgari (IP-tala skráð) 12.6.2018 kl. 19:58
Citizen Borgari, ótti þinn og áhyggjur eru mjög skiljanlegar. Þegar borgarfulltrúar í meirihlutanum (framkvæmdavaldið) hafa bara eina heilafrumu til skiptana, þá geta framkvæmdir ekki orðið annað en heimskulegar.
Þegar menn geta ekki einu sinni sett ódýra strætórein franmhjá Klambratúni, en láta í staðinn byggja ljótan óþarfa steinvegg fyrir milljónir, þá eru ljósin kveikt, en enginn heima.
Ég býst fastlega við að við lok kjörtímabilsins verði komnar hraðahindranir uppeftir allri Miklubrautinni. Og ekki minnast á borgarlínuna við mig, ég fæ svo ofsafengið hláturskast í hvert skipti sem heyri um þetta andvana fædda skrímsli.
Pétur D. (IP-tala skráð) 12.6.2018 kl. 22:00
Í Danmörku eru til margar leiðir til að ferðast en ein þeirra er svokölluð "cityline" sem mætti alveg þýða sem "borgarlínu" á íslensku. Og hvað er sú lína? Jú, tvöfaldir strætisvagnar, og málið er dautt!
https://www.moviatrafik.dk/presse/presse-og-nyheder/ny-cityline-med-plads-til-alle
Annars kemur skýrt fram í samkomulagi meirihlutans í Reykjavík að það eigi ekki að gera neitt nema bíða eftir peningum frá Alþingi og geta svo skýlt sér á bak við það þegar búið er að eyða 4 árum í vitleysu, aftur.
Geir Ágústsson, 13.6.2018 kl. 09:56
Það er rétt, Geir. Þessi borgarlína er blekkingarleikur meirihlutans. Ríkisstjórnin hefði átt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar að taka af skarið og þvertaka fyrir það að leggja eina einustu krónu í þetta andvana fædda verkefni, sem getur bara borgað sig ef allar stofnleiðir strætó verða lagðar af og ekki einu sinni þá.
Strætó veitir ásættanlega þjónustu á höfuðborgarsvæðinu, en þar eð vagnarnir keyra yfirleitt hálftómir, er nauðsynlegt (og eðlilegt) að niðurgreiða þessa þjónustu.
Ef Dagur væri jafnlélegur læknir og hann er stjórnmálamaður, þá myndu allir hans sjúklingar deyja.
Pétur D. (IP-tala skráð) 18.6.2018 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.