Miðvikudagur, 25. október 2017
Launþegar munu þurfa að standa undir skattahækkunum
Samtök skattgreiðenda benda réttilega á hið augljósa: Ef ríkið vill sópa fleiri milljörðum í hirslur sínar þá verður það ekki gert öðruvísi en með því að hækka skatta á venjulegt launafólk, og þá aðallega millistéttina (venjulegt fólk í venjulegum vinnum).
Þessir örfáu og moldríku geta ekki staðið undir nema nokkur hundruð milljónum. Það er upphæð sem skiptir ríkisreksturinn engu máli.
Nei, ef ætlunin er að sækja tugi milljarða í ríkissjóð þarf að ganga á venjulegt launafólk. Það er vissara að halda því til haga.
Hátekjuskattur á meðaltekjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það virðist vera mikil eftirspurn eftir óðaverðbólgu: Gerð er krafa um tugmilljarða opinberar framkvæmdir sem fyrst og viðraðar eru launakröfur upp á allt að 30% hækkun.
Vitnað er í úrskurð Kjaradóms um þingfararkaup því til stuðnings.
Samt get ég ekki fundið að mín kjör hafi versnað við það að einhverjir aðrir hafi fengið kjarabót.
Þórhallur Pálsson, 25.10.2017 kl. 23:20
Þín kjör versna svo sannarlega þegar opinberir starfsmenn hækka í launum.
En það er rétt, það er öllum árum róið að því að gera Ísland sem verst í stakk búið til að taka á við næsta hiksta í bankakerfinu eða gjaldþrot einhvers erlends hagkerfisins (t.d. Ítalíu).
Geir Ágústsson, 26.10.2017 kl. 06:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.