Steingrímur J. krufinn til mergar

Helgarsprok Vefþjóðviljans í gær er gott dæmi um skrif sem verða algjörlega látin í friði af íslenskum vinstrimönnum. Ekkert vinstrisinnað blogg né vefrit mun reyna að svara fyrir það sem þar er skrifað. Enginn úr röðum íslenskra vinstrimanna mun nefna skrifin við nokkurn mann og vonast þess í stað til að þau hverfi úr minningum manna hið fyrsta. 

Ástæðan er sú að í Vefþjóðvilja gærdagsins er Steingrímur J. og nýgræni sósíalisminn hans tekinn í gegn. Hver fullyrðing Steingríms á fætur annarri er spörkuð niður og rýrð öllum trúverðugleika. Svo sannarlega falleg lesning fyrir þann sem kallar sig hægrimann og pólitískan andstæðing hins íslenska vinstris. Sársaukafull og leiðinleg lesning fyrir hinn nýgræna rauðliða.

Af þessum ástæðum mun ekki verða minnst einu orði á Vefþjóðvilja gærdagsins á neinni vinstrigrænni síðu. Ef samfylkingarfólk ætlar sér að gera gott úr rassskellingu Vefþjóðviljans á Steingrími J. verður þeim bent á álíka niðurlægingu á drottningu þeirra, Ingibjörgu Sólrúnu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband