Hvađ međ einkaspítala?

Mikiđ er rćtt um byggingu nýs ríkisspítala ţessi misserin. Flestir gera sér grein fyrir ţví ađ slíkt er međ öllu óraunhćf framkvćmd eins og stađan er í dag. Ríkisvaldiđ er einfaldlega of skuldsett og er međ alltof margt á sinni könnu. Hvergi virđist mega skera niđur eđa forgangsrađa upp á nýtt án ţess ađ allt verđi brjálađ. Engin leiđ er ađ finna fjármuni fyrir svona framkvćmd ţegar ţađ er stađan.

En hvađ međ ađ breyta lögum og rekstrarumhverfi heilbrigđis- og tryggingakerfisins á Íslandi ţannig ađ einkaspítali gćti orđiđ raunhćf framkvćmd? Ţá meina ég spítala sem einkaađilar reka međ ţađ ađ leiđarljósi ađ skila hagnađi sem rennur í eigin vasa.

Slíkir spítalar finnast á öllum Norđurlöndunum nema á Íslandi og bjóđa upp á ljómandi valkost viđ biđrađirnar á ríkisspítalana. Rekstrargrundvöllur ţeirra byggist á tvennu: Heilbrigđitryggingum (sem fólk kaupir sjálft eđa fćr í gegnum atvinnuveitanda sinn), og beinum greiđslum úr vösum sjúklinga.

Slíkur spítali gćti togađ efnađ fólk eđa vel tryggt út úr röđunum á ríkisspítalana og stytt ţćr sem ţví nemur. Efnaminna fólk kemst ţví fyrr ađ hjá ríkislćknunum.

Slíkur spítali gćti bođiđ útlendingum upp á góđa heilbrigđisţjónustu á Íslandi í samkeppni viđ erlenda einkaspítala og stuđlađ ađ ţví ađ draga lćkna til Íslands međ sína ţekkingu og menntun, sem gćti e.t.v. skilađ sér í fyrirlestrum sömu lćkna í Háskóla Íslands. Ísland hefur alla burđi til ađ verđa paradís fyrir útlenda en lasna auđmenn. Í kringum ţađ gćti byggst heill iđnađur af endurhćfingarhótelum og öđru eins sem viđ getum lesiđ um í Taílandi og Indlandi. 

Slíkur spítali gćti líka bođiđ upp á eitthvađ annađ en ríkisspítalarnir, t.d. framsćknar ađferđir viđ erfiđum sjúkdómum sem er ekki pláss fyrir á ríkisspítölunum. Góđgerđarsamtök eđa frjáls framlög gćtu gert mörgum í neyđ kleift ađ njóta ţessarar ţjónustu án ţess ađ yfirgefa landiđ. 

Ríkisvaldiđ gćtu svo smátt og smátt komiđ sér út úr beinum rekstri heilbrigđisţjónustu međ ţví ađ senda sjúklinga í eins konar útbođ ţar sem greitt er fyrir ađ lćkna sjúklinga. Ekki ţarf ađ leita langt eftir fordćmi: Í Svíţjóđ hefur slíkt veriđ viđ lýđi í mörg ár og ţar er blómlegur markađur fyrir einkarekna heilbrigđisţjónustu. 

Ađ enginn hafi enn nýtt sér hátt menntastig, góđar flugsamgöngur og hreina náttúru Íslands til ađ stofna umfangsmikla heilbrigđisţjónustu í einkarekstri segir mér eitt: Ríkisvaldiđ flćkist hér fyrir, eins og á svo mörgum öđrum sviđum. 


mbl.is Greiđa ţarf af lánunum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband