Fimmtudagur, 12. september 2013
Afnemum lög nr. 22/1968
Á Íslandi finnst löggjöf nr. 22/1968 sem mætti gjarnan leggja niður eins og hún leggur sig, og allar þær stofnanir sem byggja tilvist sína á henni í leiðinni.
Alveg sérstaklega slæmar lagagreinar í þessari löggjöf eru þessar tvær:

3. gr. Peningaseðlar þeir, sem Seðlabanki Íslands lætur gera og gefur út, og peningar þeir, sem hann lætur slá og gefur út, skulu vera lögeyrir í allar greiðslur hér á landi með fullu ákvæðisverði.
Fjarlægjum þær úr íslenskri löggjöf, og við færumst skrefi nær því að láta alla gjaldeyrisdrauma allra Íslendinga rætast, hverjir svo sem þeir eru.
![]() |
Fyrirtæki velja aðra mynt en krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki afnema, bara breyta þeim það er nóg.
Ólafur Björn Ólafsson, 12.9.2013 kl. 22:23
Það hefði ekkert að segja. Því þessi lög eru bara um "smíðina" á pappírs og málm krónum. Sjálfsalar og stöðumælar þyrftu þá að taka kort þegar klinkið færi að verða sjaldséð, lítið annað mundi breytast. Peningamagn í umferð er langt umfram það sem prentað hefur verið af seðlum.
Rúnar (IP-tala skráð) 13.9.2013 kl. 15:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.