Mánudagur, 24. september 2012
Vinstrimenn: 'Ekki mér að kenna!'
Samband ungra sjálfstæðismanna opnaði nýlega síðuna Skuldaklukka hins opinbera. Þetta er gott framtak. Svipaðar klukkur má finna í mörgum öðrum löndum og er þessi frá Bandaríkjunum sennilega sú frægasta. Stjórnmálamenn elska að eyða um efni fram, safna skuldum, prenta peninga og senda skattgreiðendum framtíðarinnar himinháa reikninga.
Uppistaðan í ríkisstjórn Íslands hefur nú verið við völd í tæp 4 ár og sumir ráðherrar hennar raunar síðan 2006. Eftir hrunið hefur ekkert breyst til batnaðar í efnahagsmálum Íslendinga. Þegar vinstrimönnum er bent á gríðarlega skuldasöfnun hins opinbera, seinustu 4 ár, í deyjandi hagkerfi, eru viðbrögðin alveg stórkostleg. Tvö dæmi (úr athugasemdum á heimasíðu skuldaklukkunnar):
Hvar í rannsóknarskýrslu alþingis kemur fram að Katín Jakobsdóttir eða Jón Gnarr beri ábyrgð á hruninu?
Fólk þarf aðeins að kynna sér hugtakið "orsök og Afleiðing". Orsök þessarar skuldasöfnunnar er Afleiðing hluta sem hafa verið að gerast undanfarin 15. ár ekki síðustu fjögurra. Þegar þú kúkar á þig áttu ekki að skammast í þeim sem eru að þrífa það..
Með öðrum orðum: Skuldasöfnun vinstrimanna (hvar sem þeir nú sitja) er ekki þeim að kenna, heldur þeim sem voru við völd fyrir um 4 árum síðan (að undanskildum Samfylkingarráðherrum þáverandi ríkisstjórnar).
Ég spyr: Til hvers að bjóða sig fram til Alþingis og segja þar já við völdum og titlum og geta svo ekki litið til baka yfir verk sín og sagt, "svo sannarlega var ég við völd, og lagði mitt af mörkum, og kom stefnu minni áleiðis, þótt sumt hafi gengið betur en annað"?!
Þeir sem reyna að afsaka ríkisstjórnina frá hennar eigin valdatíma eiga vægast sagt bágt. Krakki sem brýtur glas með óvitaskap fær skammir og er beðinn um að taka ábyrgð á gjörðum sínum og lofa að vanda sig næst, og er jafnvel látinn þrífa glerbrot. En hvaða meðhöndlun fá vinstrimennirnir? Þeir eru afsakaðir! Þeim er sagt að vissulega molnaði allt í höndunum á þeim, en það sé nú í lagi, því fyrir næstum því fjórum árum voru einhverjir aðrir við völd, og á þá má endalaust klína öllu.
Þetta pólitíska hugleysi og flótti frá eigin verkum er engum til framdráttar. Siðferðisbrestur hlýtur að plaga þetta fólk. Hvernig lætur það heima hjá sér eða í hópi vina? "Það var ekki mér að kenna að ég sló þig rétt í þessu, því sjáðu til fyrir 4 árum síðan sagði Geir H. Haarde mér að sveifla hendinni, og ég var bara að framfylgja þeim fyrirmælum, og þú varst svo óheppinn að standa fyrir framan mig á sama tíma."
Næsta ríkisstjórn þarf að eyða öllu kjörtímabili sínu í þungbær og erfið verkefni, mikla tiltekt og stórkostlegan niðurskurð á öllum afkimum ríkisvaldsins svo bæði megi lækka skuldir hins opinbera og skatta á allt og alla, samtímis. Ég vona að þótt sú tiltekt sé vegna óráðsíu núverandi ríkisstjórnar muni komandi ríkisstjórn samt taka ábyrgð á verkum sínum, og um leið útskýra nauðsyn þeirra og langtímamarkmið. Í því er miklu meiri manndómur en að klína endalaust og alltaf öllum sínum skít á aðra.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.