Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2024
Laugardagur, 6. janúar 2024
Að kæfa atvinnufrelsið: Daglegt brauð
Ráðherra bannaði fyrir ekki löngu síðan atvinnustarfsemi. Allir vissu í raun að það var ólöglegt en núna hefur það loksins verið skrifað í álit.
Sumir hafa kallað eftir afsögn þess ráðherra en það virðist bara vera undir þeim ráðherra komið. Ráðherrastarf er vel launað - af hverju að segja sig frá því?
Í stærra samhenginu sést auðvitað að ráðherrar geta bannað hvað sem þeir vilja og nema því sé mætt með mótmælum, kærum og látum að þá kyngja því allir. Veirutímar voru löng runa af ráðherrum og embættismönnum þeirra að banna atvinnustarfsemi, skólastarf, félagsstarf, kirkjustarf, ferðalög og jafnvel brúðkaupsveislur, og er þá upptalningin frekar takmörkuð.
Skilur fólk ekki að stjórnarskráin og lögin eru bara dauður pappír nema venjulegt fólk veiti yfirvöldum aðhald?
Það er ekki hægt að treysta yfirvöldum fyrir réttarríkinu - því að það gildi lög sem lýsa því skýrt hvað má og hvað má ekki.
Það er ekki hægt að treysta ráðherrum, embættismönnum, dómurum, sýslumönnum og lögreglumönnum - það þarf í sífellu að minna svona fólk á lögin og mannréttindin.
Réttarríkið byggist ekki á texta á pappír og fínum titlum. Það byggist á því að fólk sé á verði og vakandi yfir tilraunum hins opinbera til að kæfa, svæfa og slæva frjálst samfélag.
Það kemur ekki á óvart að ráðherra sem tók atvinnustarfsemi í sambandi fái að sitja áfram. Íslendingar létu kúga sig í 2 ár til að forðast veiru. Þeir eru góðir læmingjar. Þeir eiga fáa góða stjórnmálamenn. Þeir trúa ennþá á fjölmiðla. En ég sé bresti í þessari trúgirni og vona að þeir verði sem hraðast að stórum sprungum sem fá hana til að hrynja, gjarnan á einni nóttu.
En í millitíðinni er gott að tileinka sér lífsstíl þar sem réttlætiskennd og samviska er ríkjandi hugarfar, frekar en bara það að fylgja seinustu fyrirmælum yfirvalda.
Kallar eftir afsögn matvælaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 5. janúar 2024
Afnám skattheimtu
Þau eru ekki öll þingmálin sem rata í fjölmiðla. Það er góð ástæða fyrir því: Flest eru eitthvað drepleiðinlegt kjaftæði sem breytir engu fyrir engan en er frekar líklegra en hitt til að þenja út báknið.
Ég rakst þó á mjög jákvæða tilbreytingu á þessu: Frumvarp 678/154 um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Frumvarpið er lítið og létt og ætti því ekki að stranda í nefndarvinnu eins og önnur góð mál:
1. gr.
Í stað orðanna 16 ára í 6. gr., 1. og 5. mgr. 58. gr. og 64. gr. kemur: 18 ára.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Hérna er sem sagt verið að leggja til að afnema heimtu tekjuskatta á ólögráða einstaklinga. Ekkert er sjálfsagðara finnst mér. Hér er um leið verið að tala um algjört afnám skattheimtu á laun þessara einstaklinga, eða eins stóra skattalækkun og hægt er að hugsa sér.
Sjálfsagt er að nafngreina þau sem standa að þessu góða frumvarpi:
Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Hildur Sverrisdóttir, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason.
Nú er að vona að blaðamenn fylgist með málinu og sjái hvort þetta frumvarp nái fram að ganga og hvernig atkvæði falla: Hvaða þingmenn vilja kreista nokkrar krónur úr vösum duglegra 16-17 ára krakka og hverjir ekki.
Föstudagur, 5. janúar 2024
Kjaraviðræður og tækifæri til tiltektar
Núna standa svokallaðir aðilar vinnumarkaðarins, sem einhvern veginn eru bara einhver samtök en ekki einstaklingar, í samningaviðræðum um svokallaða kjarasamninga, þ.e. launataxta og annað sem fólk er flokkað niður í, byggt á fjölda starfsára, námskeiða og háskólagráða.
Gott og vel, þetta er skipulag sem Íslendingar hafa valið að nota og skapar reglulega mikil vandræði fyrir alla.
Hið jákvæða er að margir af þessum svokölluðu aðilum vinnumarkaðarins hafa ákveðið að reyna semja skynsamlega og til lengri tíma í sameiginlegri baráttu gegn verðbólgu og óstöðugleika á vinnumarkaði.
Nema Sameyki og BSRB, sem eru samtök sem rúma opinbera starfsmenn (og enga aðra, að mér skilst).
Þar á bæ eru menn í fýlu:
Ekkert samráð hefur verið haft við heildarsamtök opinberra starfsmanna í tengslum við þessar viðræður. Mér vitanlega hefur enginn gert það, hvorki þessir aðilar, ríkisstjórnin né sveitarfélögin, segir hann. Ég held að ekki nokkur maður hafi tekið upp símann til að ræða við einn eða neinn á þeim vettvangi.
Hvað er þá til ráða? Vilja opinberir starfsmenn enn eina launahækkunina með tilheyrandi stökkbreytingu á útgjöldum ríkisins og auðvitað lífeyrisskuldbindingum? Meðlimir Sameykis þurfa jú að hafa efni á fluginu í sumarhús Sameykis á Tenerife og Alicante!
Hérna leynist mögulega tækifæri. Ímyndum okkur að allir meðlimir Sameykis og BSRB fari í verkfall. Hvernig bitnar það á venjulegu fólki, skattgreiðendum? Þar sem slíkt bitnar á skattgreiðendum: Er hægt að útvista þeim störfum - bjóða þau út? Einkavæða hlutverkin? Þar sem verkfall bitnar ekki á skattgreiðendum: Má ekki leggja niður slík störf?
Verkfallshótanir afhjúpa nefnilega þau störf sem þarf að vinna og þau sem skipta engu máli og geta horfið - hverjir skipta á rúmum hótela og hverjir vinna við að færa pappíra frá einu skrifborði til annars. Það blasir við að hið opinbera þarf að minnka og Sameyki og BSRB hafa á að skipa fólkinu sem þarf að lenda undir niðurskurðarhnífnum. Eða eins og fjármálaráðherra sagði nýlega í viðtali:
Ríkið á fyrst og fremst að sinna grunnþjónustu samfélagsins, kjarnanum. Og sinna henni almennilega. Öðru eigum við að leyfa öðrum að finna út úr og sinna ...
Einnig:
Óbreytt staða er oft einhvern veginn auðveldari pólitískt og það er ekki sérstaklega kallað eftir því af nægilega mörgum að draga úr eða halda aftur af ríkisútgjöldum. En ég segi fyrir mitt leyti, það er almenn kurteisi að fara vel með annarra manna fé.
Núna er kominn tími til að standa við stóru orðin, sýna kurteisi, taka óþægilegar pólitískar ákvarðanir og verja fé skattgreiðenda gegn sóun.
Og sem svolítil rúsína á pylsuendann: Ríkið gæti sagt við aðila vinnumarkaðarins (þá sem vinna raunveruleg og verðmætaskapandi störf) að sparnaðurinn við brottrekstur hundruða og jafnvel þúsunda opinberra starfsmanna geti orðið að skattalækkunum á laun venjulegs fólks. Hver veit nema Efling og ASÍ fari þá allt í einu að stinga upp á því hvaða opinberu starfsmenn mega fjúka!
Tveir fyrir einn og allir vinna (líka opinberir starfsmenn sem missa vinnuna - það er nóg af störfum sem framleiða verðmæti en geta ekki keppt við sumarhús Sameykis á Alicante).
Standa utan sáttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. janúar 2024
Almannakvarnir ríkisins
Þetta gengur ekkert betur hjá þeim núna en á veirutímum að verja almenning. Almannakvarnir ríkisins, sem mala almenning, eru ýmist á eftir áætlun eða með ranga forgangsröðun, ítrekað og jafnvel kerfisbundið.
Í kvörninni sitja núna Grindvíkingar sem héldu mögulega að einhvers konar hamfaratryggingar næðu til þeirra en í staðinn var það bara pappírsvinna og bið. Bið eftir gjaldþroti jafnvel. Eða taugaáfalli.
Á tímabili var Grindvíkingum bannað að fara heim til sín. Þeir hótuðu lögsókn og þá hurfu þær takmarkanir. Kannski hefði mátt enda veirutíma fyrr með svipaðri aðferðafræði. Kannski þarf að lögsækja ríkið til að leysa út tryggingafé sem er svo auðvitað löngu horfið í bruðl hins opinbera.
Á eldfjallaeyju sem lendir í brjáluðu roki, brotsjó og snjóflóðum er ekki til ein króna í varasjóði til að hjálpa fólkinu í landinu. Ekki ein.
Almannakvarnir ríkisins ættu mögulega bara að leggja upp laupana. Björgunarsveit skipuð sjálfboðaliðum gerir eflaust meira fyrir fólk, enda á staðnum en ekki á bak við eitthvað púlt á sjónvarpsskjá í miðri borg.
Ég óska Grindvíkingum svo sannarlega góðs gengis í baráttu þeirra við bæði náttúröflin og yfirvöldin, þar á meðal Almannakvarnir ríkisins.
Miðvikudagur, 3. janúar 2024
Margar leiðir til að stuðla að skattahækkunum
Einn versti galli ríkisstjórnar Íslands er ekki að hún er hugmyndafræðilega gjaldþrota og geti ekki tekið neinar gagnlegar ákvarðanir fyrir land og þjóð, ella hætta á að springa. Nei, stærsti gallinn er sá að til að líma ríkisstjórnina saman fá allir flokkar að halda úti ráðherrum eins og litlum ríkjum í ríkinu. Þeir fá allir að banna og leyfa eins og þeim hentar, og eyða og eyða og eyða eins og enginn sé morgundagurinn. Allir þessir ráðherrar fá að fjármagna kosningabaráttu á kostnað skattgreiðenda, að því er virðist óheft.
Alveg gapandi dæmi um þetta er dekur menningar- og viðskiptaráðherra við RÚV. Núna á að minnka samkeppni ríkismiðilsins við einkarekna fjölmiðla á auglýsingamarkaði en dæla einfaldlega skattfé í hirslur hans í staðinn.
Af hverju ekki að minnka umsvif miðilsins? Nú eða leggja hann niður? Halda mögulega úti Rás 1, ef því að skipta. Mögulega að breyta eitthvað af neyslufé RÚV í styrki til innlendrar framleiðslu á efni sem einkaaðilar geta svo séð um að senda út.
En nei, RÚV skal fá að standa á sínum litla tindi, með sína bólgnu sjóði og óstöðvandi hallarekstur, og spýja upplýsingaóreiðu og pólitískum áróðri út, óáreitt, á kostnað skattgreiðenda.
Skaðinn er kannski ekki svo mikill lengur. Hver tekur mark á RÚV í dag? En þetta kostar auðvitað, og skýtur skökku við að blása meira af lofti í þessa bólu á meðan yfirvöld boða aðhald og sparsemi fyrir aðra.
Nýskipaður fjármálaráðherra sagði nýlega í viðtali:
Ríkið á fyrst og fremst að sinna grunnþjónustu samfélagsins, kjarnanum. Og sinna henni almennilega. Öðru eigum við að leyfa öðrum að finna út úr og sinna ...
Hvernig rímar framleiðsla á lélegri afþreyingu og pólitískri upplýsingaóreiðu við þessa lýsingu? Illa. Mun fjármálaráðherra stíga inn í? Það efast ég um. Gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri. Stjórnmálin í hnotskurn.
Hömlur á auglýsingar en tekjutap bætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 2. janúar 2024
Er Ólafur Ragnar ekki á lausu?
Þá er forsetinn í skræpóttu sokkunum á leið eitthvað annað og kannski úr landi þar sem hann ætlar að fylgjast með íslensku samfélagi frekar en að taka þátt í því.
Ekki skildi hann mikið eftir sig, sem var kannski ætlunin. Hann hafði mjög mikinn áhuga á íþróttamótum barna. Hann hvatti til útskúfunar á grundvelli lyfjagjafar á veirutímum. En að öðru leyti fór litlaus fræðimaður í stól forseta og varð litlaus forseti og verður nú litlaus áhorfandi að samfélaginu.
Maður veltir því þá fyrir sér hvort Ólafur Ragnar Grímsson sé ekki á lausu eða orðinn leiður á að boða bráðnun heimskautanna nú þegar þau eru kaldari en þau hafa verið lengi. Hann var svo sannarlega ekki litlaus forseti enda reyndur stjórnmálamaður sem stóð alla tíð í lappirnar - líka þegar Evrópusambandið og tindátar þess á Íslandi reyndu að vefja íslenskan almenning í skuldahjúp um alla eilífð.
Það gæti jú verið stutt í næsta áfall í heimshagkerfinu - afdollaravæðing, óðaverðbólga og fleira slíkt - og ekkert víst að Íslendingar hafi efni á því að vera með litlausan forseta með veik hné.
Auðvitað eru þeir fleiri sem geta staðið í lappirnar og á sínu. Má þar nefna Ögmund Jónasson og Davíð Oddsson - hugmyndafræðilega í stjórnmálum á öndverðum meiði en báðir skornir úr sama grjótinu. Eins mætti nefna Kolbrúnu Bergþórsdóttur. Þetta fólk gæti dugað vel í embætti forseta ef þingið sendir einhverja þvæluna til undirskriftar.
Ég vona að Íslendingar vandi sig hérna og rifji upp að einu sinni, fyrir ekki löngu síðan, þurfti almenningur að treysta á forseta sinn til að verja þá gegn ásælni útlendinga og íslenskra strengjabrúða þeirra á Alþingi og víðar. Ef forsetinn á þeim tíma hefði verið litlaus hryggleysingi er ekki víst að Ísland væri meðal ríkra þjóða í dag.
Samkvæmisleikurinn hafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 1. janúar 2024
Hugsað í lausnum - þetta reddast
Íslendingar búa á eldfjallaeyju nálægt heimskautabaug. Þetta felur í sér bæði tækifæri og áskoranir en með réttu hugviti og hugarfari er hægt að nýta tækifærin til að takast á við áskoranirnar. Þetta hefur gengið sæmilega. Eldfjöll búa til hita sem er hægt að nýta til að kynda hús. Kuldi býr til jökla sem bráðna og vatnsaflið má nýta til að búa til rafmagn. Með því að hugsa í lausnum, frekar en vandamálum, er hægt að tryggja nokkuð fín lífskjör.
Núna skella áskoranir á Íslendinga eins og enginn sé morgundagurinn, en flestar eru manngerðar (verðbólgan, skattarnir, reglugerðirnar). Eitt slíkra vandamála er sú þörf venjulegs fólks til að losna við rusl með reglulegum og hagkvæmum hætti. Núna er það allt í einu ekki hægt. Tunnur eru ekki tæmdar og allskyns gámar fullir. Hvað gera þá lausnamiðaðir Íslendingar? Leysa málin!
Skoðum litla mynd sem mér barst til augna því til staðfestingar (frá manni sem er vægast sagt ekki Sjálfstæðismaður).
Er þetta ekki góð leið til að komast í gegnum manngerð vandamál yfirvalda sem við treystum fyrir skóla- og heilbrigðiskerfi, innviðum og orkuöflun? Öllu klúðrað í dag, en alveg hægt að laga.
Að minnsta kosti á meðan við bíðum eftir því að sýn fjármálaráðherra, og sennilega verðandi formanns Sjálfstæðisflokksins, rætist eins og hún var orðuð í nýlegu viðtali:
Ríkið á fyrst og fremst að sinna grunnþjónustu samfélagsins, kjarnanum. Og sinna henni almennilega. Öðru eigum við að leyfa öðrum að finna út úr og sinna
Sjáum hvað setur.
Eitt er ljóst: Ef Íslendingar eru hættir að hugsa í lausnum þá verða þeir gleyptir af eldgosum, snjóflóðum, gjaldþroti, kulda og hungri. Ekki er nema um öld síðan það var raunveruleikinn og gæti hæglega orðið það aftur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.1.2024 kl. 06:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)