Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2022
Fimmtudagur, 4. ágúst 2022
Enn verið að mæla með sprautum
Á heimasíðu Landlæknis er að finna þessa töflu:
Ég afrita hana hér í heilu lagi því ég býst við því að hún breytist einhvern tímann í texta, nokkurn veginn á þessa leið:
Ekki taka þetta glundur. Það virkar ekki til að hindra smit og koma í veg fyrir alvarleg veikindi (ýtir jafnvel undir slík) og er stórhættulegt.
Hvenær gerist það? Ég veit það auðvitað ekki. Rannsóknir á stórhættulegum aukaverkunum flæða nú upp á yfirborðið, umframdauðsföll meðal sprautaðra aldurshópa eru víða orðin skuggalega mörg og búið er að afhjúpa mikið af samskiptum og gögnum sem sýna að þessar sprautur voru samþykktar nánast blindandi.
Engu að síður eru menn hér að mæla með fleiri sprautum, allt niður í 12 ára börn.
Kannski að nýr sóttvarnalæknir Íslands skelli sér í að dusta rykið af vinnu og ákvarðanatöku seinustu tveggja ára og mynda sína eigin skoðun.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 2. ágúst 2022
Hin alvitru yfirvöld hinna einu sönnu vísinda
Við látum sprauta okkur með allskyns glundri, góðu og slæmu, af því yfirvöld okkar biðja okkur um það. Við treystum yfirvöldum. Þau tala jú í nafni vísinda! Þau hafa viðað að sér þekkingu og gögnum, lagt mat á kosti og galla og gefa út meðmæli sem væri heimskulegt að hunsa!
Hélstu þetta? Þér skjátlaðist.
Ég vitna nú í blaðamanninn Alex Berenson (feitletrun mín):
Emails released last week by the Food and Drug Administration show the agencys vaccine regulators felt heavy pressure from the White House and senior FDA officials to approve boosters.
By itself, that fact is not a huge surprise. The two top vax regulators, Drs. Marion Gruber and Philip Krause, announced their resignations in late August 2021 and within weeks spoke out publicly against widespread booster shots.
No, the most frightening revelation in the emails isnt the political machinations they reveal. Its how they explode the myth of FDA omniscience, that the agency somehow had knowledge unavailable to the public to help it understand if boosters might work. ...
Without good data, the regulators had no chance to make a reasonable cost-benefit analysis. They simply went with their instincts, like everyone else.
Og sem svolítil hliðarathugasemd úr sömu skrifum:
The poor countries that avoided the mRNA shots have largely put Covid behind them, while wealthy countries navigate their fifth or sixth or seventh waves.
Stóru sóttvarnaryfirvöldin eins og þau í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu ráða ferðinni. Þau minni, eins og á Íslandi, eru einfaldlega að sinna færibandavinnu. Þau taka sér tíma, segjast vera að skoða gögnin, vega og meta, hugleiða og hugsa, en eru bara að sinna færibandavinnu. Og þegar þau fá rusl í hendurnar þá er það sent áfram. Fái þau góð gögn byggð á góðum rannsóknum er það líka sent áfram. Færiband er kannski rangnefni. Skólprás er ef til vill betra heiti á íslenskum lyfja- og sóttvarnaryfirvöldum.
Ég held því ekki fram að allir sem efast, tortryggja og rengja hafi rétt fyrir sér. En að loka á slíkar raddir er heimskulegt. Þær raddir hafa að miklu leyti haft rétt fyrir sér seinustu tvö ár. Ef þú ert á leið í fjórðu sprautuna gegn kvefpest þá ættir þú að vita það núna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.8.2022 kl. 01:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 2. ágúst 2022
Takmarkanaógeð
Ég held að það hafi verið, svona eins og ég segi stundum, uppsöfnuð þjóðhátíðarþörf og við fundum hvað við höfðum saknað hátíðarinnar mikið, segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, eftir mjög vel heppnaða Þjóðhátíð.
Önnur leið til að útskýra áhugann á þeirri hátíð og öðrum svipuðum er mögulega takmarkanaógeð. Endalausar viðvaranir vegna smita og bólusjúkdóma virðast falla á dauf eyru. Enginn er að tala um smit og veirur. Fjölmiðlar skynja áhugaleysið og láta litlar tilvitnanir í spekingana duga til að klára veiruskammt dagsins.
Mér finnst viðeigandi að vitna í löngu máli í fréttabréf Tom Woods (sem varðveitti geðheilsu mína á meðan geðveikin var sem mest):
If you want to learn American history, forget about asking the typical professor.
If you want to find out what is going on in the world, forget about asking the typical journalist.
If you want a serious cost-benefit discussion of the shots for people in various age groups, forget about asking the typical physician.
If you want an overview of the Federal Reserve and its true effects on the economy, forget about asking the typical economist.
Ladies and gentlemen, welcome to Clown World.
Clown World wants to demoralize you, even make you question your sanity, with its propaganda.
It wants you demonized and isolated -- from your more obedient family and friends, and even from society at large.
It wants you to grow so weary and discouraged that you just throw in the towel, because what can one person do.
Og hananú!
Ég vona að þú sért vakandi því það er ekki búið að gefa upp alla von að endurræsa samfélagið og færa alla þræði þess á hendur einhverra trúða.
![]() |
Uppsöfnuð þjóðhátíðarþörf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)