Bloggfærslur mánaðarins, mars 2021

Fletjum kúrvuna, eða hvað?

Fyrir um ári síðan var talað um að fletja út kúrvuna. Það tókst, af ýmsum ástæðum, meðal annars með því að gera fjórðung vinnufærra á Suðurnesjum atvinnulausa. 

Þrátt fyrir að leggja þrjú veirupróf á þá sem vilja koma til Íslands hafa komið upp "smit". Enginn veikur, vel á minnst. Ekkert Landakotsklúður í uppsiglingu, vel á minnst. En "smit", segja þeir.

Strax er talað um næstu bylgju. Þetta ítrekaða bylgjutal er séríslenskt, svo því sé haldið til haga. Flest ríki eru enn í bylgju tvö.

Allt tal um að fletja út kúrvuna er gufað upp. Það er ekki ætlunin lengur. Ætlunin er að eyða loftborinni veiru algjörlega, eða bíða á meðan afgangur heimsins gerir það á einhvern undraverðan hátt.

Læknar segja að þeir hafi lært ýmislegt seinustu 12 mánuði en greinilega ekkert nothæft: Engar forvarnir eru taldar duga, engin lyf eru talin áreiðanleg og engar meðferðir eru taldar nægjanlega góðar til að leyfa veiru að fjara út af náttúrulegum ástæðum, á meðan læknar grípa þá örfáu sem þurfa á aðstoð að halda.

Íþrótta- og skólastarf barna er enn og aftur komið í skuggann á bylgjutali. Ef þú átt fyrirtæki skaltu byrja að fylla út umsóknir fyrir styrki sem koma seint eða jafnvel aldrei. 

Það er bara eitt að segja: Helvítis andskotans vitleysa.


mbl.is Framhald faraldursins ræðst á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðhald og óánægja

Yfirvöld í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hafa kynnt tilslakanir á samkomutakmörkunum. Hin opinbera skýring er sú að nýju reglurnar séu til komn­ar í ljósi lækk­andi ný­gengi smita, færri inn­lagna á sjúkra­hús og mik­ill­ar fækk­un­ar dauðsfalla af völd­um veirunn­ar að und­an­förnu en vel geng­ur að bólu­setja í rík­inu.

Sú skýring er kannski sú rétta, en önnur möguleg skýring er það kannski líka.

Í Kaliforníu er búið að safna svokölluðum "recall signatures" seinustu vikur. Þær geta gert það að verkum að kosning til ríkisstjóra er dæmd ógild ef ég skil kerfið rétt:

Article II of the California Constitution, approved by California voters in 1911, allows people to recall and remove elected officials and justices of the State Supreme Court from office.

Þann 26. janúar sagði CNN svo frá:

Recall proponents must gather 1.5 million signatures, which are due March 17. Leaders of the recall say they have gathered more than a million signatures.

Sem betur fer fylgdist ríkisstjórinn vel með þessari söfnun:

unnamed

Nýjustu tölur hljóða upp á 1,9 milljónir undirskrifta. Það er orðið verulega heitt undir pottinum!

Opnaði maðurinn af því veiran var á niðurleið og bólusetningar gengu vel eða af því hann sá fram á að missa völdin?

Og hafi ástæðan verið ótti við að missa völdin hvað getur það kennt okkur hinum? Að eina leiðin til að hrista af sér veirusamfélag sé að þrýsta á stjórnmálamanninn til að hrökklast úr stól sínum?

Hér er auðvitað gullið tækifæri fyrir einhvern sem vantar ókeypis fylgi í kosningabaráttu að gera sig gildan og krefjast afsagnar ráðandi afla ef það má ekki leyfa fólki að fá líf sitt til baka.


mbl.is Skemmtigarðar fá að opna í Kaliforníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afbrigði og afleiðingar

Úr frétt visir.is:

Einn hefur greinst með suður-afríska afbrigði SARS-CoV-2 hér landi, það var fyrir fjórum dögum.

Þetta afbrigði virðist vera mikil blessun. Það breiðist að sögn hratt út og verður ráðandi. Í kjölfarið dregur úr faraldrinum. 

Eða svo Suður-Afríka sé notuð sem sýnidæmi um hegðun hins suður-afríska afbrigðis:

sa

Hér er annað dæmi þar sem er búið að merkja inn spakmæli hinna vitru sóttvarnarsérfræðinga  um tilkomu hins nýja afbrigðis:

us

Það er vitað að flensuveiran stökkbreytir sér þannig að hún smiti hraðar en verður um leið hættulausari. Með því að halda smituðum á lífi lengur nær veiran þannig meiri útbreiðslu. Kannski - og ég segi bara kannski - er hið sama að eiga sér stað hérna? Þá verður kannski fagnaðarefni að fá hin nýju afbrigði sem leysa hin fyrri af hólmi.


mbl.is 8 fölsk neikvæð PCR-próf við landamærin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var bara hringt í fólk vestan við Elliðaárdalinn?

Þegar fylgi flokka í Reykjavík er mælt er mikilvægt að hafa í huga að um er að ræða meðaltal allra Reykvíkinga. Ef margir Vesturbæingar svöruðu símtalinu þá mælast vinstriflokkarnir hátt. Ef margir austan við Elliðaárdalinn svöruðu símtalinu þá mælast vinstriflokkarnir lágt.

Árið 2018 var gerð athyglisverð könnun á fylgi flokka í Reykjavík og má lesa um hana hér. Þegar meðaltal allra sem svöruðu var reiknað út endaði Samfylkingin með 31%. Ef Grafarvogur er skoðaður sérstaklega endar Samfylkingin með 22% (og Sjálfstæðisflokkurinn með 42%).

Það skiptir því máli hvort skoðanakönnunin nái til margra námsmanna í niðurgreiddu húsnæði við Eggertsgötu eða vinnandi fólks með reikninga og skattgreiðslur austan við Elliðaárnar. Það skiptir máli hvort viðmælandi lifir hinum bíllausa lífsstíl í nágrenni ÁTVR á Austurstræti eða þurfi að sækja sína þjónustu og sitt áfengi í stærri verslunarkjarna eftir að hafa plægt þunga umferð á heimleið úr vinnunni.

Bara svo því sé haldið til haga.


mbl.is Samfylkingin stærst í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðalög í heimsfaraldri!

Þeir sem hafa kvartað yfir yfirgengilegum sóttvarnaraðgerðum vegna neikvæðra áhrifa á hagkerfi Íslands og þá sérstaklega ferðamannaiðnaðinn hafa oftar en ekki fengið þær mótbárur að það vilji enginn ferðast hvort eð er. Það er jú heimsfaraldur! Ferðamenn hefðu ekki komið þótt stofufangelsið við landamærin væri ekki til staðar!

Þetta er auðvitað bara bull og vitleysa. Vissulega er minna um ferðalög og margir hræddir við veiru. En aðallega fylgir því einfaldlega of mikið af flækjustigum að ferðast. Til dæmis er oft erfitt að gera sér grein fyrir því hvaða sóttvarnarreglur gilda á hverjum stað. Grímuskylda? Fjarlægðaskylda? Háar sektir? Er hægt að gera eitthvað, t.d. fara á barinn eða í skemmtigarð? Allt þetta bætist ofan á ótta við veiruna.

En margir vilja ferðast og bíða bara eftir því að geta það án yfirgengilegra sóttvarnarráðstafana. Um leið og Ísland opnaðist seinasta sumar flykktist fólk í flugvélar, og um leið og stofufangelsi við landamærin var komið á þá hurfu ferðamennirnir jafnharðan. Það var ekki vegna einhverrar bylgju eða smitrakningar. Það var vegna stofufangelsisins.

Kannski sumarfríið í ár verði bara til frjálsu ríkjanna vestan við Atlantshafið? Til dæmis Norður-Dakota þar sem er hreinlega ólöglegt að skylda fólk til að vera með grímur.


mbl.is Íslendingum hefur fjölgað á Tenerife
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegt, heilbrigt, ánægjulegt og yndislegt fjölskyldulíf: BANNAÐ

Vegna sóttvarnaraðgerða er búið að aflýsa fjölskylduboðum, ættarmótum, brúðkaupum, fermingarveislum, tónleikum, útihátíðum, bíóferðum, utanlandsferðum, sumarbústaðarferðum, skírnarveislum, matarboðum, drykkjuferðum, heimsóknum, utanlandsferðum, kaffiboðum, hópeflum, fundum, ráðstefnum, vinnuferðum, sölusýningum og matarboðum, svo fátt eitt sé nefnt.

En þetta er ekki nóg. Alltaf skal hrópað á nágrannann eða náungann í búðinni eða jafnvel á ókunnugt fólk víðsfjarri sem birtir myndir af fjölskyldu á góðri stundu.

Geðveikin er allsumlykjandi. 

En sem betur fer er verið spyrna við fótum, af ýmsum ástæðum.

Ef nú bara sóttvarnaraðgerðir hefðu frá því seinasta vor nokkurn veginn tekið tillit til raunveruleikans (fyrir seinasta vor voru allir á sama báti og tilbúnir að fylgja yfirgengilegum sóttvarnaraðgerðum; að fara varlega á meðan vísindamenn áttuðu sig á veirunni).

Þá held ég ekki að fólk væri á öskra á hvert annað fyrir að fylgja ekki gagnslausri grímunotkun og voga sér í klippingu. Og uppnefna hvert annað.

Vonandi eru dómínó-kubbar sóttvarnarlögreglunnar og leyniþjónustu hennar í umbúðum hins áhyggjufulla borgara að hrynja. Hratt.


mbl.is Samfélagsmiðlar loga vegna Kate og fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttist í áfengi í matvöruverslanir og fjölgun hverfisbúða

Ný aðgerðaáætl­un og lofts­lags­stefna Reykja­vík­ur­borg­ar var nýlega samþykkt á fundi borg­ar­stjórn­ar og felur meðal annars í sér svokölluð 15 mínútna hverfi þar sem allt er innan hjólafæris.

Sérstaklega er tekið fram að í þessu felist aðgangur að græn­um svæðum, úti­vist og þjón­ustu. 

Ekki er tekið fram að þjónustan skuli vera "allt nema áfengi". 

Og ólíklegt er að ÁTVR sé að fara stórfjölga útibúum sínum og pipra yfir Reykjavík.

Það blasir því við að til að ná markmiðinu um 15 mínútna hverfi þurfi borgarstjórn að taka aftur til umræðu að senda áskorun til Alþingis um að hleypa áfengi í matvöruverslanir. Með tilkomu áfengisins breytist rekstrargrundvöllur lítilla hverfisverslana alveg og þeim mun stórfjölga og vera lengur opnar. Fólk þarf þá ekki lengur að sækja í stærri verslunarkjarna á bílum sínum til að gera stórinnkaup sín. Svolítill göngutúr er nóg og kippa af bjór tryggð fyrir fótboltaleikinn.

Góð tíðindi, dömur mínar og herrar!


mbl.is Reykjavík verði hjólreiðaborg á heimsmælikvarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra uppstokkunin

Ein af mörgum neikvæðum afleiðingum yfirgengilegra sóttvarnaraðgerða er stórkostleg uppstokkun á auði. Efnað fólk sem getur unnið að heiman í gegnum tölvu hefur varla séð nein áhrif á efnahag sinn og er jafnvel búið að safna í stóra sjóði á meðan ekki er hægt að flakka um heiminn að vild og eyða fé í skíðalyftupassa í Ölpunum og margarítur á spænskri strönd. 

Á hinum endanum er fólk sem vinnur með höndunum, ef svo má að orði komast: Fólk í ferðaþjónustu, veitingageira, við ræstingar og þjónustu almennt. Þegar því er sagt að fara heim þá fer það heim með skertar tekjur - jafnvel mjög skertar tekjur. Reikningarnir koma engu að síður. Margir hafa og eru að lenda á götunni. Ungt fólk fær ekki tækifæri og missir vonina. Innflytjendur eru látnir fjúka. 

Nú þegar samfélög fara að opnast aftur (vegna bóluefna, árstíðabreytinga og hvaðeina) þá munu efstu lögin - heimavinnandi miðstéttin og efnaða fólkið - fljótlega taka upp fyrri siði. En á botninum er fólk sem nær ekki að spyrna sér úr skuldafeninu.

Ekki bætir úr skák að ýmsar björgunaraðgerðir yfirvalda eru að gagnast þeim sem höfðu mest á milli handanna til að byrja með. Á heimsvísu eru milljarðamæringar að verða ríkari en þeir fátækari - og fátækustu - að verða fátækari.

Þetta eru menn að kalla "K-laga efnahagsbata" og má lesa nánar um hér, meðal annars þetta:

Economic performance of different sectors, industries, and groups within an economy always differ to some extent, but in a K-shaped recovery some parts of the economy may see strong growth while others continue to decline.

Þetta útskýrir auðvitað mismunandi viðhorf mismunandi þjóðfélagshópa við lokunum vegna veiru. Fólk sem er búið að missa lífsviðurværið og jafnvel aleiguna vill eðlilega frekar fá veiru en vera svangt, einmana og húsnæðislaust. Heimavinnandi fólkið telur sig vera að gera öllum góðverk með því að vinna að heiman og panta mat á netinu. En raunveruleikinn blasir mismunandi við okkur og fer eftir því hvar við erum stödd í lífinu og hvernig framtíðin virðist ætla að þróast.

Það ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart, en gerir það samt. Eða eins og einn ágætur prófessor skrifaði nýlega (feitletrun mín):

Við búum svo vel að eiga heima á strjál­býl­asta landi Evr­ópu og að vera eyja lengst norður í hafi. Við erum líka vel upp­lýst þjóð og lítið og sam­heldið sam­fé­lag. Það hef­ur því gengið nokkuð vel að tak­ast á við far­ald­ur­inn hér, þ.e.a.s. að því leyti að tak­marka smit og af­leiðing­ar þeirra. Hins veg­ar hafa af­leiðing­ar af aðgerðum gegn far­aldr­in­um verið al­var­leg­ar og þær eru senni­lega ekki komn­ar að fullu fram enn. Þar má nefna seink­un nauðsyn­legra skurðaðgerða og skimun­ar við krabba­mein­um, aukið of­beldi gegn börn­um, aukið heim­il­isof­beldi og aukna drykkju áfeng­is og vanda­mál því tengd. Ísland er háðara ferðamanna­straumi en lönd­in í kring­um okk­ur og nú er svo komið að við erum með mesta at­vinnu­leysi á Norður­lönd­um. Það er vel þekkt að at­vinnu­leysi leiðir af sér dauðsföll og fleiri hörm­ung­ar. Rík­is­sjóður starfar í ósjálf­bæru um­hverfi og safn­ar skuld­um, sem mun koma niður á nauðsyn­legri þjón­ustu og vel­ferð á kom­andi árum. Þetta al­var­lega ástand á Íslandi skap­ast að mestu vegna aðgerða gegn Covid-19 en leggst mis­jafn­lega illa á sam­fé­lagið. Þeir sem eru í fíla­beinst­urni aka­demí­unn­ar og eða í þægi­legu starfi hjá rík­inu hafa það bara nokkuð gott. Það eru þess­ir aðilar sem hafa mest­an aðgang að fjöl­miðlum og stýra því umræðunni.

Það er víða ójafnt gefið af ýmsum ástæðum, en nú hefur verið bætt töluvert í þann ójöfnuð: Fílabeinsturninn hefur stækkað og holan í jörðinni fyrir marga aðra hefur dýpkað.

En það liggur ekkert á, er það nokkuð?


Ef þetta væri bara spurning um dánartíðni

Rakst á þessa samsettu mynd (enginn vandi að biðja um frumheimildir):

flu

Dauðsföll vegna COVID-19 eru oft notuð sem rökstuðningur fyrir því að fletja út samfélagið. En hvar voru sömu raddir seinustu 100 ár? Þegar lítil börn dóu úr flensu? Þegar skólakrakkar dóu úr flensu? Þegar vinnandi fólk dó úr flensu? Þegar aldraðir dóu úr flensu?

Hvergi, auðvitað, enda ganga veirur yfir okkur og ýmist leiða til uppfærða bóluefna, mótefnaframleiðslu eða eru punkturinn yfir i-ið.

En auðvitað hafa bandarísk sóttvarnaryfirvöld bara rétt fyrir sér þegar þau syngja með kórnum.


Á meðan í Danmörku

Veirutímar í Danmörku eru að taka á sig furðulega ásýnd. Fyrir jól var lokað á meira og minna allt og síðan þá er enn lokað á ýmislegt og verður fram yfir páska, svo sem að fara í klippingu sem hefur ekki verið rakið til eins einasta smits.

En skítt með það. Hárprúðir geta snoðað sig eða safnað í eitthvað hippalegt.

Það eru þeir sem deyja vegna óbeinna afleiðinga sóttvarnaraðgerða eða missa lífsviðurværi sitt sem eru hin raunverulegu fórnarlömb.

Danski fjölmiðillinn BT er með tvær nýlegar fréttir um þessar hliðar hins (nánast) veirulausa samfélags.

Í fréttinni Kræftpatient rystet over statsministeren: "Jeg er stiktosset" (krabbameinssjúklingur hneykslaður á forsætisráðherra: "Ég er brjáluð") er sagt frá nokkrum einstaklingum sem sitja nú við dauðans dyr, eða skriðnir yfir þær, því veiran lokaði á aðgang þeirra að heilbrigðiskerfinu. Það var ekki áætlun yfirvalda, auðvitað, en bara framkvæmdin. 

Þeirra örlög rata ekki inn í "smit" línuritin, sem virðast vera eina stjórntækið.

Í fréttinni Mette Frederiksen til 37-årige Edel: "Jeg beklager – det er ikke godt nok" (MF segir til hinnar 37 ára gömlu Edel: "Afsakið - þetta er ekki nógu gott") er sagt frá sjálfstæðum atvinnurekanda, hárgreiðslukonu, sem er búinn að steypa sér í djúpar persónulegar skuldir og komin í þrot vegna sviksemi yfirvalda í greiðslum á bótum vegna þvingaðra lokana. Þetta var ekki áætlun yfirvalda, auðvitað, en bara framkvæmdin.

Þeirra örlög rata ekki inn í "smit" línuritin, sem virðast vera eina stjórntækið.

Er búið að rekja smit til veikra einstaklinga sem leita að læknisaðstoð vegna gruns um krabbamein og annað slíkt, sem drepur utan við tölfræði veirunnar?

Er búið að rekja smit til klippinga?

Og úr því ég er að spyrja spurninga:

  • Var ekki ætlunin að koma í veg fyrir yfirhlaðið heilbrigðiskerfi frekar en að gera það alveg veirulaust?
  • Var ekki ætlunin að halda út í nokkrar vikur frekar en heilt ár og jafnvel annað til?
  • Var ekki ætlunin að verja ákveðna hópa, en ekki skola námsfólki úr námi og heilbrigt fólk úr störfum sínum?
  • Var ekki lagt upp með allt þetta ævintýri á forsendum sem hafa verið traðkaðar í svaðið?
  • Er "betra" að horfa upp á aðstandanda deyja hægum dauðdaga vegna seinkunar á krabbameinsskimun og -meðferð en vegna loftborinnar veiru sem fyrir langflesta hópa er skaðminni en flensan?

Þetta glapræði verður að stoppa. Kannski borgaraleg óhlýðni sé orðið eina úrræðið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband