Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011
Mánudagur, 29. ágúst 2011
Dýrt áhugamál
Á misserunum fyrir hrun var búið að spá heimsendi vegna "loftslagsbreytinga" oft og stjórnmálamenn voru mjög fúsir til að hella peninga í rannsóknir til að reyna sporna við þessum heimsendi, og í rándýrar ráðstefnur um "hlýnun jarðar" (í köldu veðri) til að tala um hinar miklu rannsóknir og heimsendaspár þeirra.
Heimsendinn lét samt bíða eftir sér og svo skall kreppan á.
Núna eru ríkissjóðir allra landa tómir, og því er peningastraumurinn í heimsendaspárnar nánast uppþornaður. Enginn einkaaðili leggur þessu áhugamáli fárra útvaldra lið, sem má teljast ótrúlegt í ljósi þess að trúarbrögð hljóta almennt mikið af frjálsum framlögum frá einstaklingum, og hið sama má segja um önnur og öllu nytsamlegri vísindi. Kannski er trúin á loftslagsheimsendann ekki nógu sterk þegar allt kemur til alls?
Þeir sem spáðu hlýnun jarðar hafa nú hætt því og tala núna almennt um "loftslagsbreytingar". Þeir sem spáðu hlýnun eða kólnun hafa nú breytt um áherslur og tala um allt mögulegt annað (t.d. súrnun sjávar og breytingar á vaxtarhraða plantna sem vitaskuld eru allar af hinu slæma).
Það er í sjálfu sér ágætt að einhverjir vísindamenn rannsaki loftslagið og það sem hefur áhrif á það, beint og/eða óbeint. Ég vona samt að heimsendatóninn sé farinn úr þessum hópi, og mér sýnist líka svo vera, enda lítið fé úr slíkum tóni að hafa nú á dögum.
![]() |
Alþjóðleg ráðstefna í Öskju um hlýnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 28. ágúst 2011
Pólitískur ásetningur
Brýnt er að taka upp vistvæna, græna þjóðhagsreikninga og meta verðmæti ósnortinnar náttúru.
Á mannamáli: Í stað hefðbundinna vísindarannsókna og arðsemisreikninga eiga að koma óræðnar og óskiljanlegar skýrslur sem setja stólinn fyrir dyrnar á öllum virkjunarframkvæmdum, nema í einstökum undantekningartilvikum, t.d. ...
[í] mörgum tilvikum geta smávirkjanir til staðbundinna nota verið vænlegur kostur.
Aðrar virkjanir og stærri og virkjanir sem knýja iðnað? Aldrei.
Allt þetta tal VG-liða um skort á rannsóknum eru yfirskyn. Það er aldrei hægt að rannsaka nóg til að mæta kröfum VG-liða. Þeim er líka alveg sama um rannsóknir. Hinn pólitíski ásetningur er að beita ríkisvaldinu til að stöðva virkjunarframkvæmdir á Íslandi, hvað sem tautar og raular hjá landeigendum, iðnfyrirtækjum og orkufyrirtækjum. Þessu þurfa menn að gera sér grein fyrir ef VG á að skiljast rétt.
![]() |
Virkjanir í Þjórsá verði fluttar í biðflokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 26. ágúst 2011
Lausn: Taka peningaprentunarvaldið af ríkinu
Ég skil vel málstað þeirra sem vilja afnema verðtrygginguna. Ég skil líka málstað þeirra sem lána peninga út og vilja að kaupmáttur þeirra peninga rýrni ekki á meðan þeir eru í láni hjá öðrum.
Lausnin er í sjálfu sér einföld, og sú að tryggja að kaupmáttur hverrar einingar peninga varðveitist með tíma. Ef ég lána milljón með 3% vöxtum í 10 ár, þá vil ég geta keypt það sama fyrir milljónina eftir 10 ár og í dag, og hagnast um 3%. Þetta er einfalt.
Hvernig er kaupmáttur peninga varðveittur? Markaðurinn er fyrir löngu búinn að finna svarið við því: Binda fjölda peninga í umferð við eitthvað sem verður ekki fjöldaframleitt svo auðveldlega, er auðþekkjanlegt, stenst tímans tönn og er hægt að deila upp í margar smærri einingar án þess að summa eininganna sé verðminni en heildin óskipt.
Markaðurinn valdi góðmálma sem peninga, þá sérstaklega gull (fyrir stærri kaup) og silfur (fyrir smærri kaup). Það er erfitt að auka umferð gulls í umferð, bæði af því það er dýrt að grafa það upp og líka af því að gull er eftirsótt til annarra nota (skartgripi, raftæki).
Það kemur líka í ljós að þrátt fyrir allt fikt ríkisvaldsins við peninga seinustu 100 árin, þá er ennþá hægt að kaupa góð jakkaföt fyrir únsu af gulli, rétt eins og árið 1900.
Lausnin á verðbólgudraugnum er að taka upp notkun stöðugri peninga. Markaðslausnin er sú að nota góðmálma. Mér finnst hún vera góð.
![]() |
24.000 vilja afnema verðtryggingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 25. ágúst 2011
Nýr varaforðagjaldmiðill?
... Kínverjar reyna nú að markaðssetja júan sem alþjóðlegan gjaldmiðil.
Það er hressandi að sjá rétta fréttaskýringu úr heimi alþjóðlegra fjármála.
Kínverjar eiga hrúgur af peningum. Þeir þurfa ekki að taka lán. Skuldabréfasala í kínverska gjaldmiðlinum er einfaldlega tæki sem Kínverjar nota til að koma gjaldmiðli sínum í aukna notkun.
Bandaríski dollarinn er slæm fjárfesting og hefur verið það lengi. Þetta vita Kínverjar. Bandaríkjamenn vita það í sjálfu sér líka, en þeir beita pólitískum þrýstingi á eigendur dollara um að halda þeim. Japanir fengu t.d. ekki vinsamleg viðbrögð frá Bandaríkjamönnum þegar þeir stungu upp á því að selja eitthvað af dollurum sínum til að fjármagna endurbyggingu eftir tsunami-eyðilegginguna þar í landi.
Kínverjar lána ekki bara fyrirtækjum. Þeir kaupa evrópskar skuldir í stórum stíl, t.d. af Portúgal. Kínverjar búast sennilega við því að Þjóðverjar geri sig ábyrga fyrir þeim skuldum á endanum, og Kínverjar trúa því sennilega að Þjóðverjar geti borgað sína reikninga þótt afgangur Evrópusambandsins fari á hvínandi kúpuna.
Á meðan heimurinn er smátt og smátt að leita leiða til að losa sig við bandaríska dollarinn (sjá t.d. þessa frétt) eru Kínverjar komnir vel áleiðis.
![]() |
Tesco í skuldabréfaútboð í Hong Kong |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 22. ágúst 2011
Stjórnmál trompa vísindi
Á Íslandi er allt land í eigu eða undir stjórn ríkisins. Það sem ríkið kallar ekki beinlínis sitt eigið land, það er engu að síður ekki undir fullri stjórn hinna formlegu eigenda. Reglugerðir, lög, opinbert "skipulag" og fleira slíkt takmarkar nýtingu og notkun lands svo mikið, að réttara væri að tala um að allt land sé í raun undir stjórn ríkisins (og því tilgangslaust að tala um "eign" einhvers annars).
Ríkið á líka nánast öll orkufyrirtækin.
Vangaveltur um virkjunarkosti á Íslandi eru þar af leiðandi alltaf pólitískar í eðli sínu.
Vísindi og rannsóknir og "hagkvæmi" og góð eða slæm "nýting" á landi eru bara sjónarhorn sem stjórnmálamenn geta valið að nota, eða sleppt því.
Menn skulu því ekki vera undrandi á því að "orkukostir" séu færðir upp og niður í forgangsröðun í skýrslum, hvað sem líður rannsóknum og vísindum. Ef stjórnmálamaður tekur þá pólitísku ákvörðun að slá allar vatnsaflsvirkjanir af borðinu, þá er það einfaldlega hans ákvörðun. Stjórnmálamaðurinn tapar hvorki né græðir á því að breyta forgangsröðun sinni. Það gera aðrir. Stjórnmálamaðurinn sefur rólegur á nóttunni yfir því að hafa trompað alla aðra í gegnum stjórn ríkisins á öllu íslensku landi.
Ef menn vilja að orð eins og "hagkvæmni" og "sjálfbærni" komi í stað stjórnmála og opinberra hrossakaupa, þá er leiðin mörkuð tveimur vörðum sem auðvelt er að skilja:
- Einkavæðing opinberra orkufyrirtækja.
- Sala á opinberu landi til einkaaðila, samhliða stórkostlega minnkuðu regluverki í kringum landnýtingu á Íslandi.
Voila!
![]() |
Röðun orkukosta kemur á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. ágúst 2011
Vinstristjórnin er rétt að byrja
Þrettán nýir skattar, og vinstristjórnin er bara búin með hálft kjörtímabil. Áfram verður haldið.
Þegar menn umbylta skattkerfinu með þessum hætti, þá skulu menn ekki láta það koma sér á óvart að fólk bregðist við. Þeir sem liggja þétt upp að nýju eða hærra skattþrepi, þeir láta staðar numið og vinna minna eða finna leið til að afla sér tekna "svart". Þeir sem geta, þeir reyna að koma sér úr skattlagðri starfsemi og í aðra minna skattlagða eða jafnvel óskattlagða.
Hækkandi skattþrep segja ekki einu sinni alla söguna. Allskyns bætur og endurgreiðslur skatta í formi skattaafsláttar koma einnig inn í áætlanir fólks um framtíðina. Þetta er m.a. rætt hérna á Vefþjóðviljanum.
Ég átti stutt spjall við Svía um daginn. Konan hans hafði verið heimavinnandi seinustu 5 árin vegna barneigna, en þau hjón áttu þrjú börn. Svíinn sagði mér að með því að eignast barn með rétt undir 20 mánaða millibili væri hægt að halda fullum fæðingarorlofstekjum. Þau eignuðust því sín þrjú börn með minna en 20 mánaða millibili. Það er "sænska leiðin".
Hver segir svo að skatt- og bótakerfið hafi ekki áhrif á hegðun (heiðarlegs) fólks? Ekki ég.
![]() |
Skattaflóran ennþá fjölbreyttari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 10. ágúst 2011
Erfitt?
Steingrímur J. Sigfússon, sósíalisti og fjármálaráðherra, viðurkennir að hann eigi erfitt með að skilja sumt:
Nokkur umræða fer nú fram um skattsvik, bótasvik og svarta atvinnustarfsemi. Leiða sumir að því líkum að slíkt hafi aukist undanfarin þrengingamisseri. Erfitt er að segja til um það með vissu en allar vísbendingar um slíkt ber að taka alvarlega.
Nú veit ég ekki hvað Steingrími finnst svona "erfitt" að segja til um, en á móti kemur að þegar rökhugsunin er í ólagi, og pólitíski ásetningurinn svo einlægur, þá er erfitt að skilja margt.
Steingrímur á líka erfitt með að sjá heildarmyndina. Hann skrifar:
Staðreynd mála er hins vegar að öll helstu skatthlutföll á Íslandi, með einni undantekningu þar sem er efra þrep í virðisaukaskatti, eru lægri en í flestum samanburðarlöndum.
Skatthlutföll eru vissulega hærri mjög víða, en hið sama gildir líka um möguleika fólks til að draga frá skattstofni og fá endurgreiðslur í formi ýmissa bóta og niðurgreiðsla. Í Danmörku er til dæmis himinhár skattur á tekjur, en menn geta dregið vaxtagjöld frá skattstofni, og ef menn keyra langt til og frá vinnu þá er hægt að fá skattaafslátt út á það, auk þess sem menn þurfa ekki að greiða ríkinu aukalega fyrir ýmislegt sem hið íslenska ríki rukkar tvisvar fyrir (bæði í formi skatta og gjaldtöku).
Steingrímur tekur viljandi ekki tillit til alls þessa í háfleygum yfirlýsingum sínum og mildi skattpíningar hans.
Steingrímur er vissulega illa jarðtengdur ("Tekjuöflunaraðgerðir sem hluti af ráðstöfunum til að vinna á hallarekstri ríkissjóðs hafa fyllilega skilað tilætluðum árangri ..."), en það er skiljanlegt, því Steingrímur stjórnast af sterkum pólitískum ásetningi um að stækka ríkisvaldið. Rökhugsun kemst því varla að hjá honum.
Mánudagur, 8. ágúst 2011
Af hverju gull?
Margir furða sig á því að fjárfestingar á óvissutímum færist í auknum mæli yfir í gull. En fyrir því eru margar og góðar ástæður.
Gull er, sögulega séð, hinn eini sanni "peningur", eða milliliður í viðskiptum (t.d. þegar maður sem ræktar banana vill fá klippingu). Fyrir því eru margar góðar ástæður:
- Það er erfitt að framleiða gull (námuvinnsla er dýr) og því erfitt að auka magn gulls í umferð, og kaupmáttur þess er því stöðugur.
- Gull er auðþekkjanlegt, hefur hátt verð á þyngdareiningu, hægt að deila upp án þess að það missi verðmæti (ólíkt t.d. demöntum) og þolir veðrun og snertingu við vatn/súrefni án þess að litast eða rýrna.
Í byrjun 20. aldar var hægt að kaupa góð jakkaföt fyrir únsu af gulli. Nú, í byrjun 21. aldar, er enn hægt að kaupa góð jakkaföt fyrir um únsu af gulli. Það er þessi stöðugleiki sem heillar fjárfesta á tímum þar sem allir seðlabankar keyra peningaprentvélarnar á fullum afköstum, olíumarkaðurinn er sveiflukenndur (af ýmsum ástæðum, t.d. vegna óstöðugleika í kaupmætti hins bandaríska dollars), og hlutabréf hafa oftar en ekki neikvæða ávöxtun (að teknu tilliti til verðbólgu/peningaprentunar).
Menn sem spáðu því að gullúnsan færi yfir 1000 dollara á sínum tíma spá því að hún fari yfir 5000 dollara innan nokkurra ára. Aðrir hafa spáð endurkomu gullfótarins innan fárra ára. Þeir sem eiga auð og hafa tækifæri til, þeir ættu að kaupa gull, og "geyma" þannig kaupmátt auðs síns.
![]() |
Olíuverð lækkar en gull setur met |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 5. ágúst 2011
Landbúnaðarstyrkir (og annað) úr tómum ríkissjóði
Ég var að henda inn örlítilli hugleiðingu á blogg Frjálshyggjufélagsins sem vekur vonandi einhvern til umhugsunar.
Þegar kemur að tillögum til að vinda ofan af ríkisvaldinu þá er úr nægu að moða úr reynslubrunnum annarra ríkja. Heilu afkimar ríkisrekstursins á Íslandi (sem og alls staðar annars staðar) þurfa að víkja, og sem betur fer er nóg til af innblæstri t.d. frá hinum Norðurlöndunum.
- Í Svíþjóð aðskilja menn í auknum mæli rekstur og fjármögnun heilbrigðiskerfisins (t.d. í Stokkhólmi), og leyfa sjúkrahúsum að "keppa" um sjúklinga á forsendum gæða og verðlags.
- Í Danmörku eru líka til einkasjúkrahús sem létta á álaginu af þeim ríkisreknu, t.d. með allskyns mjaðmaaðgerðir og endurhæfingu og jafnvel krabbameinsmeðhöndlun. Margir Danir kaupa sér heilbrigðistryggingu til að komast inn á þessi sjúkrahús og sleppa við (bókstaflega) lífshættulegar biðraðir í hinu opinbera kerfi.
- Í Danmörku eru atvinnuleysistryggingar líka einkamál hvers og eins, ella er einver örlítil dúsa í boði fyrir þá sem missa vinnuna án atvinnuleysistrygginga.
- Í Noregi eru menn nú komnir í stöðu "skattaparadísar" fyrir olíuvinnsluiðnaðinn í Norðursjó, eftir að Bretar hækkuðu skatta á olíuvinnslu í sínu landgrunni. Fjárfesting streymir nú frá breska hluta Norðursjávarins og yfir í þann norska. Hvern hefði grunað að Norðmenn, af öllum, yrðu "Sviss norðusins" í olíugeiranum?
- Í Danmörku er bönkum yfirleitt leyft að fara á hausinn. Þeim sem er "bjargað" er bjargað með mjög skilyrtum ríkislánum sem stöðugir bankar afþakka pent.
Við þurfum ekki endilega að apa bara allt þetta slæma upp eftir "frændum okkar" á Norðurlöndum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 3. ágúst 2011
Meðvituð aðferð sósíalískra yfirvalda
Heldur einhver að það komi ríkisstjórninni á óvart að svarta hagkerfið vaxi á miklum hraða á tímum hækkandi skatta og samdráttar í hagkerfinu?
Þetta kemur ríkisstjórninni ekkert á óvart. Þetta er meðvituð aðferð hjá yfirvöldum. Þegar skattahækkanir hafa skapað mikið svigrúm fyrir stóran svarta markað tekur svo næsta skref við: Aukið eftirlit og refsingar.
Með þessu móti er ríkisvaldið stækkað á tvo vegu: Það hirðir til sín stærri hluta af minnkandi köku, og eftirlitsmenn ríkisins fá nóg að gera að handtaka "venjulegt" fólk og stinga einhverjum í steininn til að "letja" aðra.
Svona hafa öll sósíalísk/fasísk stjórnvöld smátt og smátt náð tangarhaldi á hagkerfinu. Þetta byrjar e.t.v. "smátt", en boltinn er byrjaður að rúlla og hættir því ekki fyrr en ný og frjálslyndari stjórnvöld taka við stjórnartaumunum.
![]() |
Ein umsókn eftir 3 auglýsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |