Fimmtudagur, 30. apríl 2009
Kreppumeðal dagsins: Lifa í myrkri
Leyfi mér að leggja eitt mjög svo ómálefnalegt innlegg í "umræðuna" hér:
Hin íslenska ríkisstjórn ætlar, að því er virðist, að beita kreppumeðali hér sem heitir: "Hættu að eyða peningum þínum í rafmagn - lifðu í myrkri og eigðu fyrir skattinum."
Ein leið til að ná fram slíku markmiði er að setja dýr og þvingandi lagaákvæði á framleiðendur rafmagns, sem þurfa þá að hækka verð til neytenda, sem munu þá sumir hverjir ekki hafa efni á að kaupa rafmagnið, og þurfa því að lifa í myrkri, nú eða afla sér ódýrra kerta.
Umdeilanleg hugmynd get ég ímyndað mér, en hví ekki að prófa þegar hin svokallaða umhverfissinnaða elíta fær áheyrn yfirvalda?
Losunarmörk á jarðvarmavirkjanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það þarf að hækka verð til neytenda, almennings ef búið er að læsa lágt verð í langtímasamningum til stóriðju. Það dugar víst ekki til, eins og áður, því magnið til stóriðjunnar er orðið svo mikið.
Pétur Þorleifsson , 1.5.2009 kl. 10:25
Pétur,
Þakka fyrir fræðslu um innihald stóriðjusamninganna. Ég hef lengi spáð í því hvaða kjör er verið að bjóða þar miðað við t.d. verð á kW-stund til annarra stórnotenda á rafmagni. Ertu með þá töflu einhvers staðar?
Geir Ágústsson, 2.5.2009 kl. 09:44
Eins og þetta hefur verið eru hér upplýsingar og tölur. Er ekki verðið nú í kringum 15 dollarar fyrir megavattstundina ?
Pétur Þorleifsson , 2.5.2009 kl. 10:00
Pétur,
Takk fyrir tengla þína. Að vísu mjög óaðgengilegar upplýsingar en það er önnur saga.
Ég veit ekki hvaða forsendur eru á bak við þessar tölur, en geri ráð fyrir að enginn sé að tapa pening á þeim, nema auðvitað skattgreiðendur EF hið opinbera er að beita pólitískum áhrifum og þrýstingi á þær til að "skapa störf".
Geir Ágústsson, 2.5.2009 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.