ESB vs. BNA

Rakst á eftirfarandi á bloggrúnti, langar að halda því til haga og birti því hér (án þess að hafa kannað sannleikisgildið):

Þjóðartekjur á mann í ESB 2004 voru 18 árum á eftir tekjum í BNA

Þjóðartekjur á mann í ESB 2006 voru 21 árum á eftir tekjum í BNA

Þjóðartekjur á mann í ESB 2007 voru 22 árum á eftir tekjum í BNA

 

Framleiðni í ESB 2004 var 14 árum á eftir framleiðni BNA

Framleiðni í ESB 2006 var 17 árum á eftir framleiðni BNA

Framleiðni í ESB 2007 var 19 árum á eftir framleiðni BNA

 

Rannsóknir og þróun í ESB 2004 var 23 árum á eftir BNA

Rannsóknir og þróun í ESB 2006 var 28 árum á eftir BNA

Rannsóknir og þróun í ESB 2007 var 30 árum á eftir BNA

 

Atvinnuþáttaka í ESB er núna 11 til 28 árum á eftir BNA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Geir


Allar heimildir standa neðst á þeirri síðu sem ég vísa til á blogg mínum. Þetta er ekkert nýtt af nálinni nema fyrir ca. 99,9% af Íslendingum og 100% af íbúum í ESB: Breytt mynd af ESB - höfuðstefna

Heimssýn fjallaði stuttlega um 2004 rannsóknina. Newsweek skrifaði smá klausu um 2006 rannsóknina sem kom út 2007:

Study: EU Economy 22 Years Behind U.S

Sjálfur hef ég með undrun og vonbrigðum fylgst með öllum útgáfunum.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar geta snúið sér til www.eurochambres.eu og www.gaptimer.eu og http://www.sicenter.si/ps_cv.html en þetta eru S-Time-Distance rannsóknir

Created in 1958, EUROCHAMBRES is the European Association of Chambers of Commerce and Industry and forms one of the key pillars of business representation to the European institutions.

EUROCHAMBRES voices the interests of over 19 million member enterprises in 45 European countries through a network of 2000 regional and local Chambers represented by 45 national and one transnational organisations. More than 90 % of these enterprises are Small or Medium Enterprises. Chamber members employ over 120 million employees.

EUROCHAMBRES is the sole European body that serves the interests of every sector and every size of European business - due to the multi sectoral membership of Chambers - and the only one so close to business, as a result of the Chambers&#146; regional focus.<(i>

Seinasta skýrsla:: Brussels, 10 March 2008 :: (slóð á PDF neðst í press release)

Press Release - Not only is European economy still lagging behind the United States&#146; by an average of 20

years, but if China&#146;s current GDP growth levels will continue, it will take about only 15 years

for it to catch up with the EU current level of wealth

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.7.2008 kl. 21:34

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Gunnar,

Ég þakka fyrir ítarlega heimildaskrá þína og skil því tölfræði þína eftir á síðu minni með litlar áhyggjur af skorti á sannleiksgildi hennar. 

Hérna er fjallað um svipað þema í NY Times (ótrúlegt en satt), þar sem meðal annars segir:  

"After adjusting the figures for the different purchasing powers of the dollar and euro, the only European country whose economic output per person was greater than the United States average was the tiny tax haven of Luxembourg, which ranked third, just behind Delaware and slightly ahead of Connecticut.

The next European country on the list was Ireland, down at 41st place out of 66; Sweden was 14th from the bottom (after Alabama), followed by Oklahoma, and then Britain, France, Finland, Germany and Italy. The bottom three spots on the list went to Spain, Portugal and Greece.

Alternatively, the study found, if the E.U. was treated as a single American state, it would rank fifth from the bottom, topping only Arkansas, Montana, West Virginia and Mississippi. In short, while Scandinavians are constantly told how much better they have it than Americans, Timbro&#39;s statistics suggest otherwise."

Hérna er einnig að finna gullmola:

"...Scandinavians are the poorest people in Western Europe once income is adjusted for taxes and the cost of living."

"If nations are being judged on the prosperity of their poorest citizens, then Nordic nations certainly are equal to the United States."
 
"...strong economic growth is better than income redistribution if the goal is to help the least fortunate in society."

Geir Ágústsson, 15.7.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir Geir.

Það bætist í Gleðibanka ESB - kredit hliðina

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.7.2008 kl. 22:05

4 Smámynd: Einar Jón

Áhugavert...

En eru þessar tölur líka "leiðréttar" fyrir kostnaði við framhaldsnám, sjúkratryggingu og öðru sem kostar Bandaríkjamenn þúsundir dollara á ári en er frítt í fátækrahverfum Norðurlandanna?

Einar Jón, 16.7.2008 kl. 05:26

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Einar


Mér vitanlega eiga "sum" hagkerfi ekki til nein hliðarhagkerfi sem sjá þeim fyrir peningum fyrir utan það sem heitir þjóðartekjur landsins. En það eru þjóðartekjurnar sem eru summan af öllum þeim tekjum sem verða til í þjóðfélögunum. Þjóðartekjur ESB eru sem sagt núna eins og þær voru í Bandaríkjunum árið 1985, og sem voru árin áður en tölvur og upplýsingatækni fyrir alvöru komu til markaðar og juku framlegð, framleiðni og ríkidæmi í þjóðfélaginu.

Ekkert er "frítt" á Norðurlöndum. Allt sem þegnarnir halda að sé "frítt" er fjármagnað með þeim peningum sem skattgreiðendur, einstaklingar og fyrirtæki, setja í kassa ríkisins og sem núna leggur hald á um það bil 60% af öllum þeim verðmætum sem verða til í þjóðfélögum Skandinavíu. Í Sovét varð þetta hlutfall 100%. Það eru sem sagt einungis 40% enn eftir til umráða í hinum "frjálsa" hluta þessara þjóðfélaga.

Í ESB er þetta hlutfall aðeins lægra í heild eins og er, en fer samt hækkandi því svoleiðis verða öll þjóðfélög sem eru haldin kassahugsun og sem gera sér illa grein fyrir því að flestir hlutir geta alveg skeð og farið fram með miklum sóma og góðum árangri án þess að þeir þurfi fyrst að fara fram í hausnum á starfsmönnum ríkis og bæja, sem svo koma og sturta fjármunum skattgreiðenda niður í þær holur sem ríkisvaldinu þá stundina dettur í hug að bora ofaní jörðina til þess eins að veðra kosnir á þing aftur. En eins og allir vita þá laðast svo margir að þeim sem hafa peningana, og þess vegna eru kassamenn kosnir aftur og aftur ef þeir hafa nógu mikla peninga annarra í kössum sínum. Þetta skeður yfirleitt nánast sjálfkrafa og er mjög auðvelt í framkvæmd.

Þess vegna eru þessi þjóðfélög einmitt að veða fátækari því peningarnir fossa ofaní holur sem ekki er hægt að fylla því þær eru botnlausrar. Og þegnarnir eru svo hættir að hugsa neitt að ráði því þeir eru á opinberu dópi sem stundum er kallað velferð og geta því ekki lengur ímyndað sér að þeir sjálfir geti skapað sjálfum sér velferð með fjármunum sem þeir búa til sjálfir, og sem svo skapa undirstöður alls, og sem heitir velmegun. Athugið að velmegun er allt annað en velferð. Aðeins frjálsir einstaklingar geta búið til velmegun sem svo býr til þá hluti sem skaffar peninga til að setja í þá kassa sem dreifa peningum út til þeirra sem minna meiga sín, og sem einusinni hét velferð, en sem núna er orðið að Dópsölu Ríkisins í ESB. Svona fer maður að því að verða kosinn aftur og aftur. Allir sem eru á kassanum munu alltaf kjósa þá sem stýra kössunum. Þetta virkar sérstaklega vel á næstum alla þegna í Skandinavíu og ESB hefur því tekið eftir þessum einstaka árangri og er nú í óða önn að byggja miklu stærri kassa, til að verða kosnir aftur og aftur.

En eins allir vita þá er ESB elliheimili fyrir ónýta stjórnmálamenn sem megna ekki lengur að keppa við yngri og sprettharðari kassamenn á heimamörkuðum sínum. Svo gefur ESB einnig sumum meðlimslöndum tækifæri á að halda að þau séu ekki lengur "fyrrverandi hitt og þetta" í samfélagi þjóðanna. ESB skaffar til dæmis Þýskalandi svo góða fjarvistarsönnum að Þjóðverjar eru fanir að halda að þeir séu ekki Þjóðverjar lengur og þeim líður betur þannig. ESB fær einnig Frakkland til að gleyma að þeir eru einungis Frakkar.

En þeir í ESB eru sem sagt alltaf að verða blánkari. Allt er því eins og það á að vera. It just plain works!

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.7.2008 kl. 07:16

6 identicon

Þessar tölur eru ekkert annað en sláandi.

Jahérna, aldrei hélt maður að munurinn væri svona mikill, þó að maður gerði sér grein fyrir því að innlimun fjölmennra og fátækra A-Evrópuríkja myndi draga meðaltalið niður.

Valþór (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 10:52

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Valþór

Það er næstum enginn munur á EU15 og EU27 þegar að þessum tölum kemur. Örlítill. Sum EU15 löndin eru að hrapa á lista OECD.

EU-15 löndin:

Austria, Belgium, Luxembourg, Denmark (Grænland og Færeyjar talið með), Finland (Áland talið með), France, Germany, Greece, Ireland, Italy, Netherlands, Portugal, Spain, Sweden og United Kingdom.

EU (27 lönd = EU-27):

EU-15, Cyprus, Czech Republic, Estonia, Hungary, Latvia, Lithuania, Malta, Poland, Slovakia, Slovenia, Bulgaria og Romania

Nýju löndin ná ekki að draga EU15 það mikið niður því þau eru öll það lítil nema Pólland. Svo það eru fyrst og fremst gömlu lönd ESB sem eru að gefa eftir. En nýju löndin munu svo staðna þegar þau að fullu eru klemmd föst í vaxtagildru ESB, Euro-Zone og ECB

Síðustu 3 vaxtahækkanir ECB, og sú næsta sem kemur bráðum, munu verða skráðar í sögubækurnar sem stærstu mistök fjármálasögunnar. Afleiðingarnar verða hrikalegar fyrir ESB og þær eru ekki einusinni byrjaðar að sýna sig og munu ekki byrja að sýna sig fyrr en eftir 12 mánuði.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.7.2008 kl. 11:24

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Einar Jón,

"...Scandinavians are the poorest people in Western Europe once income is adjusted for taxes and the cost of living."

Ef Skandinavía er meira og minna hluti af ESB (þó án ríka Noregs), og ESB er fátækari en USA, og Skandinavar fátækari en ríkustu þjóðir Vestur-Evrópu (uppistaða ESB hagkerfisins), þá leiðir af klemmureglu að Skandinavar eru fátækari en USA að teknu tilliti til uppihaldskostnaðar og skatta. 

Mætti e.t.v. fínpússa orðalagið en punkturinn kemst vonandi áleiðis! 

Geir Ágústsson, 16.7.2008 kl. 12:57

9 Smámynd: Einar Jón

Punkturinn er mjög skýr núna. Ég sá ekki í fljótu bragði þetta "cost of living" - annars væru menn að bera saman epli og eplamauk. 

Eins og ég sagði - áhugavert...

Einar Jón, 17.7.2008 kl. 08:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband