Árni, sýndu nú gott fordæmi og hættu að fljúga til sólarlanda handan hnattarins

“The current warming trend is simply part of a natural cycle of climate warming and cooling that has been seen in ice cores, deep-sea sediments, stalagmites, etc., and published in hundreds of papers in peer-reviewed journals. The mechanism for producing such cyclical climate changes is still under discussion; but they are most likely caused by variations in the solar wind and associated magnetic fields that affect the flux of cosmic rays incident on the earth’s atmosphere. In turn, such cosmic rays are believed to influence cloudiness and thereby control the amount of sunlight reaching the earth’s surface—and thus the climate.” (Heimild)

Er ekki hægt að sanna og afsanna allt með því að skoða réttu tölurnar og túlka á réttan hátt? Jú, ætli það ekki. Er búið að sanna að Balí-ferðalag Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, sé að valda breytingum í loftslagi Jarðar? Sennilega trúir hann því sjálfur (og kærir sig kollóttan því hann er að komast í sólarfrí á reikning annarra). Ég trúi því ekki. Ef ég tryði því þá væri mér líka alveg sama, því mannleg velferð Árna er (honum) mikilvægari en samkeppni mólikúla um pláss í lofthjúpnum, eða ég býst við því.

Hið minnsta sem ég get krafið græningjana um er að þeir sýni gott fordæmi. Af hverju þessi eilífa barátta fyrir ríkisþvinguðum lögboðnum lögregluaðgerðum gegn ísskápa- og bílnotkun almennings, og það í nafni vísinda sem eru vægast sagt ennþá á þróunarstigi? Af hverju sýna skattfjárfóðraðir embættismenn ekki einu sinni viðleitni til að sýna í verki að þeir trúi því sem þeir segja í orði?

Núna er stæðaskortur fyrir einkaflugvélar á Balí (takk Sigurgeir!). Hvað segir það okkur um meintan vilja stjórnmálamannanna til að gangast undir sársaukafullar lífskjaraskerðingar í nafni vísindagreinar sem enn hefur ekki haft rétt fyrir sér um nokkurn skapaðan hlut? 


mbl.is Mikil spenna á Balí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hvernig átti Árni að sýna fordæmi í ferð sinni til Bali? Átti hann alls ekki að fara þangað vegna þess að það væri hræsni að fljúga þangað?  Áttu Árni og aðrir ráðstefnugestir  sem vilja betri meðferð á auðlindum jarðar  að sitja heima og lofa Bandaríkjamönnum, Áströlum og öðrum þeim sem draga lappirnar í þessum málum að ákveða þetta eina?

Eða átti Árni og hans skoðansystkin að sigla yfir hálfan hnöttinn og til baka aftur? Kannski á seglskútu?

Ég bíð spenntur eftir nánari útlistingu á því hvað Árni átti nákvæmlega að gera. 

Ómar Ragnarsson, 10.12.2007 kl. 22:38

2 identicon

Árni hefði getað afgreitt þetta gegnum símafund, það hefði ekki kostað neitt CO2. Öll þessi ráðstefna hefði getað verið með þeim hætti. Þessar fréttir af einkaþotum hafa stórskaðað þennan málstað og gefið mönnum eins og Geir Ágústssyni, sem engu trúa um skaðsemi CO2, gott tækifæri til að hæðast af öllu saman. 

En nú er Geir búinn að skrifa svo mikið um þetta CO2 að það fer að verða þreytt. Nú hvet ég hann til að taka eitthvað annað fyrir og sting upp á því að hann fari að skoða útþenslu íslenska ríkisins. Ég las það eitthver staðar, ég held í skýrslu frá Seðlabanka, að spáð sé fyrir 2009 að ríkið taki til sín 50% af landsframleiðslu. Það er engu líkara en VG hafi stjórnað hér undanfarin 16 ár en ekki Sjálfstæðisflokkurinn. Hvað segir Geir um þetta?

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 17:08

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Baráttan gegn ríkisvæðingu orkunotkunar er bein barátta gegn útþenslu ríkisvaldsins. Í raun er um að ræða algjört lykilbaráttumál andstæðinga ríkisútþenslunnar og stofnunar alheimsríkisvalds. 

Ráðstefnan hefði mátt missa sín með öllu. Ekki er verið að gera annað en ræða sama einnar blaðsíðna útdráttinn úr hnausþykkri skýrslu IPCC - útdráttur sem er skrifaður af opinberum embættismönnum úr útdráttum vísindaskýrslna þar sem allar verstu ályktanirnar eru dregnar fram og gert lítið úr öllum fyrirvörum.

Geir Ágústsson, 12.12.2007 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband