Tilvitnun dagsins

"[É]g kaupi ekki ríkisstyrktar landbúnaðarvörum af prinsipástæðum"

Ef það er eitthvað sem ég dáist að þá eru það hugsjónir sem felast í því að forðast að beita aðra ofbeldi. Ónefndur félagi minn er innblástur sem ég skjalfesti hér með.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Pálsson

Þegar prinsipp eru leyst upp og grunnurinn rannsakaður, þá er oft ekki sterkur. Leitin að landbúnaðarafurð sem ferðast um heiminn styrkjalaus er ansi erfið. Það er nær ALLTAF einhvers konar styrkur (eða veikleiki eins og þú og ég myndum kalla það) í spilinu: útflutningsafslættir, kvótameðgjöf, markaðsherferðar- styrkur eða hvaðeina. Síðan ef prinsipp-vinurinn athugar hlutina enn nánar, þá er kannski áburðurinn, flutingarnir, svæðameðgjöf vegna atvinnustarfsemi og slíkt í gangi þar sem hann telur enga styrki vera. Útflutningurinn til Íslands leysir alls kyns vandamál í útflutningslandinu. Svo erum við góður "dumping" markaður í jaðrinum, af því að líkur á veseni eru litlar.

En vinurinn á bara að ráðast á grunninn: Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki breyta kerfinu. Ef þessu er breytt innan flokksins, þá myndi Einar Kristinn taka við sér. 

Ívar Pálsson, 28.10.2007 kl. 17:48

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Köllum þetta þá bara viðmið. Kaupa nýsjálenskt þegar það sést en annars að reyna lágmarka kostnað samfélagssystkina sinna af eigin matvælainnkaupum.

Annars játa ég það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið mér töluvert á óvart hvað varðar uppstokkun á landbúnaðarkerfinu og ekki virðist samflokksflokkurinn vera beita miklum þrýstingi. Hvað þarf eiginlega til?! 

Geir Ágústsson, 28.10.2007 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband