Fórdómafullir heilbrigðisstarfsmenn þurfa fræðslu

Eins og allir vita eru læknar og hjúkrunarfræðingar mjög uppteknir af því að veita heilbrigðisþjónustu sem byggist á vísindum og aðlagar sig að þörfum skjólstæðinga sinna, með þeirri veigamiklu undantekningu að ef einhver þrýstir að þeim sprautum sem eiga að fara til sem flestra að þá bognar þetta ágæta fólk undan þrýstingi.

Almennt þýðir þetta að ef karlmaður hittir lækni og kvartar undan óþægindum í pungi eða ef kvenmaður kveðst hafa fundið þykkildi í brjóstum að þá eru þessir einstaklingar færðir í meðferðarúrræði sem miða að því að lækna líkama þeirra.  

Komi til læknis einstaklingur sem kveðst vera kona í líkama karlmanns, með óþægindi í pung, þá spáir læknirinn væntanlega ekki í slíkum skilgreiningum og einbeitir sér að pungnum. Líkami er líkami. Líffæri er líffæri. Hvaða máli skiptir það hvort manneskjan sem er tengd við líffærið skilgreini sig sem eitthvað, ekkert eða allskonar?

Þessi nálgun er að því er virðist að sögn Stúdentaráðs Háskóla Íslands alveg ómöguleg. Nýleg yfirlýsing þess annars ágæta ráðs ber vott um það. Ég afsaka langa tilvitnun, en gullmolarnir dreifa sér um langar vegalengdir. Áhersla er mín.

Árið 2022 voru gefnar út tvær skýrslur unnar af nemum HÍ sem fjalla um stöðu og réttindi trans og kvára á Íslandi. ... Báðar rannsóknir sýndu þær niðurstöður að trans og kynsegin fólk stendur frammi fyrir stórum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, og þá sérstaklega þegar kemur að þekkingarleysi heilbrigðisstarfsfólks. Niðurstöður úr báðum rannsóknum sýndu að kerfið vinnur ekki með trans og kynsegin fólki og að auknir fordómar og vanþekking innan heilbrigðisgeirans skili af sér lélegri þjónustu fyrir þennan hóp samfélagsins.

Mikilvægt er að brugðist verði við og ráðist sé á rót vandans, sem í grunninn er fáfræði og vanþekking heilbrigðisstarfsfólks, með því að byggja upp þekkingu strax í grunnnámi. ...

Stúdentaráð telur því nauðsynlegt að hinseginfræðslu verði bætt við í kennsluskrá skyldufaga innan sviðsins, þá sérstaklega í grunnnámi læknis- og hjúkrunarfræði, og skorar á stjórn Heilbrigðisvísindasviðs að bregðast fljótt við. Með því að opna á umræður og auka fræðslu innan sviðsins er Háskólinn að stíga fram og taka eindregna afstöðu með trans einstaklingum í samfélaginu og tilverurétt þeirra. Háskóla Íslands ber samfélagsleg skylda til þess að vinna gegn mismunum og ein leið til að gera það er með aukinni fræðslu um jaðarsetta hópa og stöðu þeirra innan samfélagsins.

Þá höfum við það. Fordómafullir heilbrigðisstarfsmenn, ekki nægilega fræddir í grunnnámi sínu um eitthvað sem skiptir miklu máli, þurfa meiri fræðslu. Eða svo segja tvær skýrslur með sama höfund (í raun).

Læknar eru ekki að skera brjóst af stelpum og typpi af strákum nógu hratt. Þeir eru skilningssljóir!

Auðvitað er öll þessi yfirlýsing tóm tjara. Margar skýrslur eru til, og sumar jafnvel með mismunandi höfunda. Þær leggja mögulega og vonandi sem flestar áherslu á að heilbrigðisstarfsfólk lækni líkama fólks, óháð því hvað eigendur þeirra kalla sig. Ég geri ráð fyrir að læknar séu ekki að hrópa að skjólstæðingum ókvæðisorð vegna trúarskoðana þeirra, hárlits og húðlits, eða halda aftur af sérfræðiþekkingu sinni þótt til þeirra komi Birgir sem kallar sig Björg, og er illt í pungnum. 

Að eyða tíma nemenda í heilbrigðisnámi í hvernig á að meðhöndla líkama öðruvísi en líkama er annaðhvort algjör þvæla eða gróf aðför að heilbrigðisstarfsfólki.

Stúdentaráð Háskóla Íslands er á vegferð sem kemur stúdentum ekkert við. Kannski það ætti á næsta aðalfundi að leggja til að það gufi upp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skítur skökku við að nemar við skóla sem styðst við og kennir vísindi vilji þau á lægra plan. Álit fólks á HÍ hlýtur að bíða hnekki við þessa ,,kjánalegu" yfirlýsingu. Hallast helst að einhver gerræði hafi gripið stjórn stútendaráð og þetta sett fram á þess að hugsa málið til enda. 

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2023 kl. 22:43

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Algjörlega sammála þér. Þetta trans kjaftæði er komið út fyrir allt

velsæmi og orðið af einhverju tísku-geðveikis bulli.

Það má alveg leggja niður þetta stúdentaráð ef þetta er það

sem skiptir máli.

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.6.2023 kl. 08:03

3 Smámynd: Loncexter

Málin er auðvelt að einfalda og spara kerfinu og skattborgurum stórar upphæðir. Lausn; Tvö eða þrjú helgarnámskeið með Snorra í betel leysa málin á einfaldann og skjótann hátt. Punktur !

Loncexter, 15.6.2023 kl. 08:36

4 identicon

Mig grunar að fordómana og skort á fræðslu sé frekar af finna hjá verkfræðingi sem hefur sýnt og sannað algert þekkingarleysi á flestu sem hann tjáir sig um.

Vagn (IP-tala skráð) 15.6.2023 kl. 08:44

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þrátt fyrir greiðar samgöngur til og frá landinu, frjálsan aðgang að erlendum fjølmiðla- og samfélagsmiðlasiðum er Ísland alltaf skrefinu á eftir. Transismi er nú á uppleið hér á meðan fjarar undan honum annars staðar. Sífellt fleiri fylki í BNA og lønd í Evrópu banna nú inngrip í kynþroska barna (<18). En hér á landi er ballið rétt að byrja. Fyrst skal "mennta" børnin í transfræðum og rugla sálarlíf þeirra endanlega og þá er eftirleikurinn auðveldur. Nýnemar í heilbrigðisfræði þurfa að vera tilbúnir að opna skurdstofurnar upp á gátt til að Anna eftirspurninni. Vandinn er að transfrædin hafa bara misst af strætó. Geldingartilraunin er deyjandi tískufyrirbrigði. 

Ragnhildur Kolka, 15.6.2023 kl. 10:49

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Ragnhildur,

Sástu heimildamyndina "What is a woman?" eftir Matt Walsh? Alveg svakaleg mynd sem skilur mann eftir í hálfgerðu áfalli. 

Geir Ágústsson, 15.6.2023 kl. 10:57

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Já, ég sá hana og póstaði á FB síðuna. Þar fékk hún lítil viðbrögð frá vinum sem telja "öruggara" að tjá sig ekki um "umdeild" mál.
Alltof margir koma sér hjá að kynna sér það sem þeir eru óöruggir um svo þeir þurfi ekki að taka afstöðu.

Myndin er engan vegin öfgafull, en sýnir hvernig fólk hefur grafið sig í skotgrafir transumræðunnar og lokað augunum fyrir staðreyndum lífsins.

Ragnhildur Kolka, 15.6.2023 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband