Mánudagur, 17. október 2022
Lýðheilsa skiptir ekki mál. Landlæknir segir það
Heilbrigðisráðherra hefur boðað til lýðheilsuþings. Þar verður mikilvægi lýðheilsu rætt, eða eins og segir í fréttatilkynningu:
Samkvæmt lýðheilsustefnu skulu stjórnvöld stuðla að því að landsmenn verði meðvitaðir um ábyrgð á eigin heilsu, m.a. með fræðslu og vitundarvakningu um gildi forvarna og heilsueflingar, svo sem á sviði næringar, hreyfingar og geðræktar.
En skiptir lýðheilsa máli? Forvanir? Heilsuefling? Nei, auðvitað ekki! Til að forða fólki frá veikindum hefur seinustu misseri verið talið nauðsynlegt að:
- Rægja fæðubótarefni og aðrar aðferðir til að næra líkamann og styrkja ónæmiskerfið
- Loka líkamsræktarstöðvum
- Sprauta ungt fólk gegn veiru sem er því nánast hættulaus (á meðan sprauturnar eru það ekki)
- Einangra eldra fólk og hraða hrörnun þess
- Fylla líkama okkar af stresshormónum, t.d. með ótta við smit, að snerta hluti og hitta fólk
- Lengja biðlista í heilbrigðiskerfinu
- Taka ferðalög af fólki
- Loka á súrefnisflæði með grímum
- Gera vínskápinn meira aðlaðandi í innilokuninni
- Skerða menntun og íþróttaiðkun krakka
- Loka krakka ítrekað og svo dögum skiptir inn í sóttkví
- Veikla ónæmiskerfi fólks með endurteknum lyfjagjöfum
- Skerða aðgengi fólks að fjölbreyttum upplýsingum og skoðunum á tímum mikillar óvissu
- Þurrka upp og sprengja húð fólks með allskyns hreinsiefnum við hverja hurð
- Troða pinnum í nefkok fólks eftir að hafa látið það húka í kulda og trekki úti í biðröð
- Þrýsta fólki frá fersku lofti útihátíða undir berum himni inn í lokuð rými innandyra, svo sem sóttvarnarhótel og sprautuhallir
Lýðheilsa? Nei, hættu nú alveg. Landlæknisembættið ber ábyrgð á því orðskrípi og henti í ruslið fyrir löngu síðan.
Það er undir okkur hinum komið að bera ábyrgð á eigin heilsu, nú eða vanrækja hana að einhverju leyti við ákveðin tækifæri ef það að lifa lífindu lifandi krefst þess (eins og að mæta í brúðkaupsveislu).
Lýðheilsuþing já? Frá þeim sem tröðkuðu á heilsu lýðsins í tvö ár? Mjög gott. Hvað næst? Að grænmetisætur og loftslagsprestar heimsins hendi í þing um mikilvægi hinnar blóðugu nautalundar í mataræði okkar?
Boðar til lýðheilsuþings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.10.2022 kl. 10:35 | Facebook
Athugasemdir
100% sammála,
ættu ad skammast sín.
Sigurður Kristján Hjaltested, 18.10.2022 kl. 05:49
Elítan hefur ekki vald yfir heilsuvitund okkar. Sósíalister eru með Lýðheilsuþingi að ræna fólk.
Guðjón E. Hreinberg, 18.10.2022 kl. 08:35
Í hugum fólks virðist þetta allt saman vera í lagi af því þetta er nú allt gert sérstaklega fyrir okkur fólkið. Ef þetta er allt gert með góðum hug þá er ekkert að því að endurtaka þetta allt saman.
Kristinn Bjarnson (IP-tala skráð) 18.10.2022 kl. 14:44
Nýjast lýðheilsan er að það sé stórhættulegt að borða minna og hreyfa sig meira
ef maður vill grennast og þar sem allir með BMI yfir 30 eru flokkað sem offitusjúklingar (langflestir landsmenn) þá ætti að byrja dæla þessu frábæra lyfi sem ruglar hormónana svo heilinn heldur að líkaminn sé saddur í alla - strax í dag
Kastljós - Offitumeðferð, breytingar á menntakerfi og loftslagsaktívismi | RÚV Sjónvarp (ruv.is)
Grímur Kjartansson, 18.10.2022 kl. 17:18
Guðjón,
Rétt! En að hugsa sér ósvífnina að ætla nú að "re-branda" sig sem talsmenn lýðheilsu - heilsu lýðsins.
Grímur,
Magnað! Myndi ég þá frekar velja prógrammið hjá Lindu Pé:
https://www.lindape.com/products/vip
Geir Ágústsson, 18.10.2022 kl. 20:32
Í hugum fólks virðist þetta allt saman vera í lagi af því þetta er nú allt gert sérstaklega fyrir okkur fólkið. Ef þetta er allt gert með góðum hug þá er ekkert að því að endurtaka þetta allt saman.
Kristinn Bjarnson (IP-tala skráð) 19.10.2022 kl. 14:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.